Kæru viðskiptavinir, Vegna breytinga hjá Ísland.is þarf Staðlaráð Íslands að skipta yfir í nýtt innskráningarkerfi í vefverslun sinni. Innskráningin sjálf breytist ekki að ráði og byggir áfram á notkun rafrænna skilríkja notenda en þau fyrirtæki sem hafa gefið starfsmönnum umboð vegna reikningsviðskipta eða áskriftarsamninga þurfa að endurnýja þau umboð í nýju kerfi. Eldra kerfi verður tekið úr sambandi 1. september og því mikilvægt að ráðast í nauðsynlegar breytingar strax til að tryggja hnökralausa aðlögun og koma í veg fyrir töf á viðskiptum. Leiðbeiningar um aðgerðir má finna hér.
Í Staðlatíðindum eru auglýstir nýir íslenskir staðlar, frumvörp að íslenskum stöðlum og niðurfelldir íslenskir staðlar.
Niðurstaða leitar í Staðlatíðindum birtir efnisflokka (ICS-flokka) þar sem breytingar hafa orðið. Ef engar breytingar hafa orðið í tilteknum efnisflokki, birtist hann ekki. Fjöldi skjala undir hverjum efnisflokki er í sviga. Smelltu á efnisflokk sem þú vilt athuga til að sjá hvaða skjöl er um að ræða.