Staðla seljum við eingöngu á pdf sniði sem afhendast í gegnum "Mínar síður" strax eftir kaup.
STAÐLAR ERU HÖFUNDARÉTTARVARIÐ EFNIÐ OG ÞAÐ ER MEÐ ÖLLU ÓHEIMILT AÐ HLAÐA ÞEIM UPP Í HVERS KYNS MÁLLÍKÖN OG HUGBÚNAÐ SEM STYÐJAST VIÐ GERVIGREIND (T.D. TIL TEXTAVINNSLU, LEITAR EÐA ÞJÁLFUNAR) ÁN SÉRSTAKRAR HEIMILDAR FRÁ STAÐLARÁÐI ÍSLANDS.
Vinsamlega athugið að til að kaupsaga fyrirtækis varðveitist á "Mínum síðum" þarf að skrá sig inn á kennitölu fyrirtækis fyrir kaup. Kaupsaga varðveitist ekki ef starfsmenn skrá sig inn í eigin nafni, jafnvel þó reikningur sé gefinn út á fyrirtækið. Þess vegna er mikilvægt að prókúruhafar fyrirtækja veiti starfsmönnum umboð því umboðið er forsenda fyrir því að umboðshafar fái aðgang að "Mínum síðum" og geti þannig séð hvaða staðlar hafa verið keyptir hjá fyrirtækinu. Sjá flipann "Veita umboð" hér að neðan.
Sérstaklega mikilvægt er að þeir sem eru í reikningsviðskiptum eða eru með áskriftarsamninga við Staðlaráð stjórni umboðsveitingum í gegnum umboðsmannakerfi Signet til að komast framhjá greiðsluferli í vefverslun.
Við minnum á að með innskráningu í vefverslun Staðlaráðs er hægt að panta vöktun á einstaka staðla (óháð því hvort þeir hafa verið keyptir) Pöntun á slíkri vöktun felur í sér að sá sem um hana biður, fær tölvupóst þegar staðallinn breytist (er uppfærður með nýju ártali eða felldur úr gildi). Vöktunin er án endurgjalds og aðgengileg fyrir alla að lokinni innskráningu með rafrænum skilríkjum.