TÍÐAHEILSA OG BREYTINGASKEIÐ GETA HAFT ÁHRIF Á LÍÐAN OG UPPLIFUN FÓLKS Í VINNU. VINNUAÐSTÆÐUR OG STJÓRNUN GETA SKIPT MÁLI
HVERNIG ER STAÐAN Á ÞÍNUM VINNUSTAÐ?
🌡️ Er hægt að bregðast við hita og öðrum líkamlegum óþægindum?
Hafa starfsmenn möguleika á aðlögun þegar hitastig, loftræsting eða vinnuaðstæður hafa áhrif á líðan?
🚻 Er aðstaðan við hæfi?
Eru salerni og önnur aðstaða þannig að starfsfólk geti sinnt þörfum vegna blæðinga á öruggan og þægilegan hátt?
👷 Hentar vinnufatnaðurinn öllum?
Getur vinnufatnaður eða persónuhlífar skapað óþægindi eða óþarfa hindranir?
⏰ Er nægur sveigjanleiki í vinnunni?
Er hægt að aðlaga hlé, vinnutíma eða verkefni tímabundið þegar þörf er á?
💬 Getur starfsfólk óskað eftir stuðningi?
Er hægt að ræða þarfir vegna tíða eða breytingaskeiðs af trúnaði og virðingu?
👥 Eru stjórnendur tilbúnir í samtalið?
Hafa þeir þekkingu og stuðning til að bregðast við með skilningi og fagmennsku?
🤝 Er menningin opin og inngildandi?
Getur starfsfólk rætt þessi mál án þess að óttast fordóma eða skömm?
Þetta eru meðal þeirra þátta sem ISO 45010 tekur til, þar á meðal vinnuaðstöðu, hitastigs og loftræstingar, fatnaðar og persónuhlífa, hléa, vinnutíma, stjórnunarhátta, trúnaðar og vinnustaðamenningar.
LITLAR BREYTINGAR GETA SKIPT MIKLU MÁLI
ISO 45010 hjálpar atvinnurekendum að skoða hvað í vinnuumhverfinu getur skapað hindranir og hvaða úrbætur geta stutt starfsfólk.
Með markvissri nálgun má stuðla að:
♥ Vellíðan
Betri stuðningi við heilsu og líðan starfsfólks.
⚖ Sveigjanleika
Vinnuaðstæðum sem hægt er að laga að ólíkum þörfum.
💬 Opnu samtali
Menningu þar sem hægt er að ræða þarfir af virðingu og trúnaði.
👥 Þátttöku og starfsánægju
Stuðningsríkt vinnuumhverfi getur styrkt þátttöku og starfsánægju.
↻ Því að halda í starfsfólk
Betri stuðningur getur hjálpað fyrirtækjum að halda í fjölbreytt vinnuafl og draga úr kostnaði vegna starfsmannaveltu, ráðninga og þjálfunar.
Staðallinn er fáanlegur á ensku í vefverslun Staðlaráðs en unnið er að íslenskri þýðingu á honum sem væntanleg er á næstu vikum.
----------------------------------------
MENSTRUAL HEALTH AND MENOPAUSE CAN AFFECT PEOPLE'S WELL-BEING AND EXPERIENCE AT WORK. WORKING CONDITIONS AND MANAGEMENT CAN MAKE A DIFFERENCE
WHAT IS THE SITUATION IN YOUR WORKPLACE?
🌡️ Is it possible to respond to heat and other physical discomforts?
Do employees have the opportunity to adapt when temperature, ventilation or working conditions affect their well-being?
🚻 Are the facilities suitable?
Are there toilets and other facilities so that staff can attend to bleeding needs safely and comfortably?
👷 Is the workwear suitable for everyone?
Can work clothes or personal protective equipment create discomfort or unnecessary obstacles?
⏰ Is there enough flexibility at work?
Can breaks, working hours or tasks be temporarily adjusted when needed?
💬 Can staff request support?
Can needs due to menstruation or menopause be discussed with confidence and respect?
👥 Are managers ready for the conversation?
Do they have the knowledge and support to respond with understanding and professionalism?
🤝 Is the culture open and inclusive?
Can staff discuss these issues without fear of prejudice or shame?
These are among the aspects covered by ISO 45010 , including working conditions, temperature and ventilation, clothing and personal protective equipment, breaks, working hours, management practices, confidentiality, and workplace culture.
SMALL CHANGES CAN MAKE A BIG DIFFERENCE
ISO 45010 helps employers look at what in the work environment can create barriers and what improvements can support employees.
A targeted approach can be used to promote:
♥Well-being
Better support for the health and well-being of employees.
⚖Flexibility
Working conditions that can be adapted to different needs.
💬Open Conversation
A culture where needs can be discussed with respect and confidentiality.
👥Participation and job satisfaction
A supportive work environment can strengthen participation and job satisfaction.
↻Retaining staff
Better support can help businesses retain a diverse workforce and reduce the cost of employee turnover, hiring, and training.
The standard is available in English in the Icelandic Standards online store