Þessi Evrópustaðall veitir almenna lýsingu á viðhaldsferlinu. Hann tilgreinir eiginleika allra ferla, hluta viðhaldsferlisins og setur fram viðhaldslíkan til að gefa leiðbeiningar um skilgreiningu vísa.Þessi Evrópustaðall á við um allar skipulagsheildir (fyrirtæki, stofnun, umboðsaðili o.s.frv.) sem hafa umsjón með viðhaldi á raunlægum eignum. Þess vegna hefur hann verið gerður án þess að hafa tiltekna skipulagsheild í huga og miðar ekki að því að henta einni tiltekinni. Þessa lýsingu væri hægt að aðlaga út frá tegund og stærð skipulagsheildar sem valin er til að sinna viðhaldinu, flækjustigi kerfa sem er viðhaldið og umfangi ytri samningsbundinnar þjónustu.Tilgangur sundurliðunar í ferli og framsetningu innbyrðis tengsla* þeirra er að auðvelda starfsfólki, sérstaklega stjórnendum,í viðhaldi á mismunandi stigum, að:- tilgreina með skýrum hætti hvaða aðgerða á að grípa til til að uppfylla heildarmarkmið sem stjórnendur setja hvað varðar viðhald,- útdeila ábyrgð sem tryggir framkvæmd