Í þessum staðli eru skilgreindar meginreglur fyrir sjálfbæra skógrækt á Íslandi. Markmið staðalsins er að stuðla að sjálfbærr nýtingu skóga, verndun vistkerfa, jarðvegsvernd og endurnýjun skóga í samræmi við efnahagslega, félagslega og umhverfislega þætti. Staðallinn nær til allra tegunda skóga, bæði náttúrulegra og ræktaðra, og tekur til alls lífsferils skóga, þar á meðal: — skipulagningar og stjórnunar — framkvæmda— umhirðu og varðveislu — mats á áhrifum skógræktar — endurheimtar skóga og umhirðu raskaðra svæða — samspils skógræktar við samfélög og haghafa Staðallinn veitir leiðbeiningar sem taka mið af mismunandi aðstæðum, vistkerfum og efnahagslegum forsendum. Hann er ætlaður sem grunnur fyrir stefnumótun, framkvæmdir og mat á sjálfbærni skógræktarstarfs. Staðallinn nær ekki til sérstakra vottunarkerfa eða reglugerða, heldur er hann ætlaður til notkunar hjá aðilum sem vinna að skipulagi, stjórnvöldum og öðrum hagsmunaaðilum til að stuðla að ábyrgri skógræktarstarfsemi.