Rauða kaffistofan: Er vinnustaðurinn þinn hannaður fyrir alla… eða bara suma?

ISO 45010 er nýr alþjóðlegur staðall um tíðaheilsu, breytingaskeið og tíðahvörf á vinnustað. Staðallinn inniheldur ítarlegar leiðbeiningar til atvinnurekenda til að skapa vinnustað þar sem gætt er að tíðaheilsu og vellíðan starfsfólks sem er á blæðingum eða er á breytingaskeiðinu.

Staðallinn verður kynntur á Kynjaþingi 2025. Kynjaþing fer fram á Hallveigarstöðum, heimili Kvenréttindafélags Ísland við Túngötu 14 í miðbæ Reykjavíkur þann 24. október n.k. kl. 14:00 til 15:00. Gestir þingsins eru boðnir velkomnir í te, gos, kökur og spjall.

Til skrafs og ráðagerða verða Halldóra Skúladóttir sérfræðingur, Helga Sigrún Harðardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs, Katrín Björg Ríkarðsdóttir sérfræðingur í kjara- og réttindamálum og Ulla Müller framkvæmdastjóri norrænu skrifstofu Mannfjöldsjóðs Sameinuðu þjóðanna. Allar þekkja þær staðalinn mjög vel og geta lýst því hvernig hann getur breytt lífsgæðum á vinnustaðnum.

Endósamtökin bjóða áhugasömum gestum einnig einstaka upplifun á kaffistofunni með því að fara í tíðahermi, svo þau sem ekki fara á túr geti upplifað túrverki sjálf.

Menu
Top