Elín Sóley Hrafnkelsdóttir fulltrúi Staðlaráðs í IEC Young Professionals Programme 2026

„Staðlar sem eru skrifaðir í dag munu hafa áhrif langt inn í framtíðina“

Elín Sóley Hrafnkelsdóttir, raforkuverkfræðingur hjá Lotu, verður fulltrúi Staðlaráðs Íslands í IEC Young Professionals Programme 2026, alþjóðlegu verkefni Alþjóðaraftækniráðsins (IEC) sem ætlað er að efla þátttöku ungs fagfólks í staðlastarfi. Verkefnið gefur ungum sérfræðingum tækifæri til að kynnast því hvernig alþjóðlegir staðlar verða til, mynda tengsl við fagfólk frá öðrum löndum og öðlast innsýn í samstarfið sem liggur að baki þróun staðla sem móta tæknilega innviði samfélagsins.

Þátttaka Elínar er liður í því að efla tengsl ungs íslensks fagfólks við alþjóðlegt staðlastarf og vekja áhuga nýrrar kynslóðar sérfræðinga á þeim fjölmörgu tækifærum sem þar felast. Elín hefur þegar kynnst mikilvægi staðla í starfi sínu sem raforkuverkfræðingur, en nú fær hún tækifæri til að sjá hina hliðina á staðlastarfinu, hvernig staðlar verða til og hvernig ólík sjónarmið, hagsmunir og tæknileg þekking koma saman í alþjóðlegu samstarfi.

Við tókum Elínu tali um þátttökuna í IEC Young Professionals Programme, leið hennar í raforkuverkfræði, reynsluna af stöðlum og mikilvægi þess að ungt fagfólk eigi sér rödd þegar teknar eru ákvarðanir sem geta haft áhrif á tækni og samfélag langt inn í framtíðina.

Spennandi tækifæri til að kynnast alþjóðlegu staðlastarfi

Þú hefur verið valin fulltrúi Staðlaráðs Íslands í IEC Young Professionals Programme í ár. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að sækja um þátttöku?

„Eftir að hafa unnið aðeins með staðla og átt nokkur nördasamtöl um þá við Gunnar Sigvaldason, samstarfsfélaga minn hjá Lotu, nefndi hann að það væri Young Professionals ráðstefna í Þýskalandi í ár fyrir ungt fólk sem hefði áhuga á staðlastarfi. Hann spurði mig hvort mig langaði að sækja um.“

Elín segir að fyrstu kynni hennar af stöðlum í daglegu starfi hafi vakið áhuga hennar á því að kynnast betur alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði.

„Eftir að hafa séð hvernig ég get notað staðla í mínu daglega starfi fannst mér spennandi að fá að sjá hina hliðina, hvernig staðlar verða til, hversu mikið pólitík, fræði og praktík spila saman þar og hvernig starfið virkar. Svo skemmir ekki fyrir að fá að fara erlendis í vinnuferð og hitta annað ungt fólk í þessum geira sem vinnur á sambærilegum sviðum.“

Hvað ertu mest spennt fyrir að læra og upplifa í þessu alþjóðlega samstarfi?

„Ég er forvitin að sjá hvernig staðlar verða til. Hvaða hagsmunir koma inn í ferlið, hvað gerist þegar fólk er ekki sammála og hvernig er tekist á við ólíka hagsmuni, til dæmis mismunandi aðila atvinnulífsins eða landa sem búa við ólík kerfi.“

Frá háskólakörfubolta í Bandaríkjunum til raforkukerfa Íslands

Segðu okkur aðeins frá sjálfri þér. Hvernig lá leið þín í raforkuverkfræðina og hvað ertu að fást við í dag?

„Leiðin mín í raforkuverkfræði var kannski ekki alveg hefðbundin. Ég fór til Bandaríkjanna og stundaði nám í rafmagnsverkfræði við University of Tulsa samhliða því að spila körfubolta með háskólaliðinu. Það var krefjandi að sameina verkfræðinám og íþróttir á því stigi, en sú reynsla kenndi mér mjög mikið og víkkaði sjóndeildarhringinn.“

Elín lauk BS-prófi árið 2022 og hóf í kjölfarið störf í stjórnbúnaðarhópi hjá Verkís, þar sem hún öðlaðist reynslu af PLC-forritun, SCADA-teikningum og prófunum. Áhuginn á raforkukerfum fór vaxandi og haustið 2023 hóf hún meistaranám í raforkuverkfræði við Háskólann í Reykjavík.

„Við námslok vorið 2025 hóf ég störf í orkuteyminu hjá Lotu. Í dag starfa ég þar sem raforkuverkfræðingur við fjölbreytt verkefni sem tengjast raforkukerfum og rafbúnaði.“

Hvað heillar þig mest við raforkugeirann og þær breytingar sem nú eiga sér stað?

„Eitt það skemmtilegasta við raforkugeirann finnst mér vera hvað hann er annars vegar gamalgróinn en hins vegar í ótrúlega mikilli þróun. Grunnkerfin eru enn þau sömu, með vatnsaflsvirkjunum, flutningskerfi, dreifikerfi og varaafli. En á sama tíma er þróunin í heiminum og umræðan á Íslandi á mikilli ferð, með vindorku, orkugeymslum, kvikum launaflsbúnaði og alls konar snjöllum stýringum í raforkukerfinu.“

Hún telur að mikil tækifæri felist ekki aðeins í uppbyggingu nýrra innviða heldur einnig í því að nýta betur það raforkukerfi sem þegar er til staðar.

„Eitt sem mér finnst spennandi við stöðuna í dag er að lausnin er ekki endilega að byggja meira og stærra, heldur að nýta kerfið sem við höfum í dag betur. Það getur til dæmis verið gert með nýjum búnaði, betri stýringum og auknu og hraðara upplýsingaflæði.“

Staðlar reyndust allt annað en þurrir doðrantar

Hvernig kynntist þú stöðlum og hvað kom þér mest á óvart þegar þú fórst að nota þá í vinnunni?

„Mín fyrstu alvöru kynni af stöðlum voru þegar ég var að skrifa verklýsingar. Þá áttu verkferlar að fylgja ýmsum stöðlum sem ég hafði aldrei heyrt um. Mér fannst hálfkjánalegt að skrifa staðla inn í verklýsingar sem ég gaf frá mér án þess að vita almennilega hvað þeir innihéldu, þannig að ég fór að kynna mér þetta nánar.“

Gunnar Sigvaldason, samstarfsfélagi hennar hjá Lotu, hafði reynslu af samstarfi við Staðlaráð Íslands og gat því leiðbeint henni þegar hún fór að kynna sér staðlana betur.

„Það sem kom mér mest á óvart var hvað staðlarnir voru strax hjálpsamir. Ég hafði ímyndað mér þúsund blaðsíðna doðranta með fullt af þurrum og flóknum tæknitexta sem ég myndi ekkert skilja í. En þegar ég fór að gramsa í nokkrum stöðlum sá ég að þar var farið yfir mjög praktísk atriði á tiltölulega skýran hátt og ég gat notað þær skýringar beint í vinnunni minni.“

Reynslan breytti viðhorfi hennar til staðla.

„Það breytti svolítið sýn minni á staðla, frá því að vera eitthvað sem maður verður að vísa í yfir í verkfæri sem ég get notað.“

Ung kynslóð þarf að hafa áhrif á staðla framtíðarinnar

Eitt af markmiðum IEC Young Professionals Programme er að efla þátttöku ungs fagfólks í alþjóðlegu staðlastarfi. Af hverju telur þú mikilvægt að unga kynslóðin hafi rödd þegar staðlar framtíðarinnar eru mótaðir?

„Staðlar sem eru skrifaðir í dag munu hafa áhrif langt inn í framtíðina. Ungt fólk í dag mun þurfa að nota og taka tillit til þessara staðla meginþorra starfsævi sinnar.“

Elín bendir einnig á að þær kynslóðir sem nú eru að koma inn á vinnumarkaðinn hafi alist upp við allt aðrar tæknilegar forsendur en margar fyrri kynslóðir.

„Kynslóðin sem fékk takkasíma í grunnskóla, lærði að nota internetið og snjallsíma áður en hún fékk bílpróf og notaði gervigreind í háskóla er mögulega með annan hugsunarhátt en eldri kynslóðir. Hún hefur því annað sjónarhorn á tækniframfarir innan geirans sem vert er að taka tillit til.“

Þarna snertir Elín á einu af lykilatriðum alþjóðlegs staðlastarfs. Þeir staðlar sem eru í mótun í dag munu í mörgum tilvikum leggja grunninn að tæknilegum lausnum næstu áratuga. Þess vegna skiptir máli að þeir sem munu starfa með þessa tækni til framtíðar hafi tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

„Þú þarft ekki endilega að lesa staðal frá A til Ö“

Ef þú ættir að hvetja aðra unga verkfræðinga til að kynna sér staðlastarf, hvað myndir þú segja við þá?

„Fyrst myndi ég reyna að slá á þá algengu sýn að staðlar séu stórir doðrantar sem geymi bara þurrar upplýsingar sem maður skilur hvort sem er ekki og séu ekki praktískir í vinnunni.“

Hún bendir á að staðlar séu í raun mjög hagnýt verkfæri í verkfræðilegum verkefnum og að ný tækni geti auðveldað notkun þeirra enn frekar.

„Staðlar eru mjög praktískir í alls konar störfum innan verkfræðinnar og nýtast vel. Sérstaklega núna með nýrri tækni, til dæmis Staðlavitanum, þar sem þú getur látið gervigreind greina staðalinn fyrir þig og finna hvar efnið er sem þú þarft að nota. Þá þarf maður ekki endilega að lesa staðal frá A til Ö, heldur getur fundið þann hluta sem tengist verkefninu sem maður er að vinna að og kafað dýpra þar.“

Vonast til að taka þátt í þróun staðla hér heima

Ef þú horfir nokkur ár fram í tímann, hverju vonast þú til að þátttakan í IEC Young Professionals Programme skili þér, bæði faglega og persónulega?

„Ég vonast til þess að ég hafi kynnst þeim stöðlum sem eru mikilvægir fyrir mína starfsgrein nokkuð vel. Að ég geti nefnt þá, unnið með þá og vitað hvaða staðla ég get leitað í þegar spurningar vakna í verkefnum.“

Elín horfir jafnframt til þess að geta tekið virkari þátt í staðlastarfi hér á landi.

„Það væri líka gaman að taka þátt í þróun og notkun staðla hér heima, sérstaklega þar sem mikil tækniþróun er í raforkugeiranum og margar nýjar lausnir eru að koma fram. Þá skiptir máli að staðlar og verklag þróist með þeirri tækni og að íslenskt fagfólk taki þátt í þeirri umræðu.“

Hún vonast einnig til að þátttakan opni nýjar dyr og skapi tengsl sem geti nýst henni áfram í starfi.

„Persónulega vona ég líka að þetta víkki sjóndeildarhringinn. Að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, frá mismunandi löndum og úr mismunandi greinum getur gefið manni nýja sýn á eigin vinnu og ýtt manni aðeins út fyrir þægindarammann.“

Mikilvægt að íslenskt ungt fagfólk taki þátt

Með þátttöku Elínar Sóleyjar Hrafnkelsdóttur í IEC Young Professionals Programme 2026 fær ungur íslenskur raforkuverkfræðingur tækifæri til að kynnast alþjóðlegu staðlastarfi frá fyrstu hendi og byggja upp tengsl við næstu kynslóð sérfræðinga á sviði raftækni.

Fyrir Staðlaráð Íslands er mikilvægt að vekja áhuga ungs fagfólks á þátttöku í staðlastarfi. Ísland er lítið land, en í alþjóðlegu stöðlunarsamstarfi gefast íslenskum sérfræðingum tækifæri til að taka þátt í mótun staðla sem notaðir eru um allan heim. Slík þátttaka getur skilað bæði einstaklingum og íslensku atvinnulífi verðmætri þekkingu, nýjum tengslum og auknum möguleikum til að hafa áhrif.

Reynsla Elínar sýnir jafnframt að leiðin inn í staðlastarf þarf ekki að vera flókin. Stundum hefst hún einfaldlega á því að ungur verkfræðingur spyr hvað standi eiginlega í staðlinum sem vísað er til í verklýsingu. Sú forvitni getur síðan orðið upphafið að þátttöku í alþjóðlegu samstarfi þar sem staðlar framtíðarinnar verða til.

Menu
Top