Það sem heldur heiminum saman

Alþjóðabankinn hefur bent á1 að um 90% alþjóðaviðskipta ráðist af öðrum þáttum en tollum. Þar skipta sameiginleg tæknileg viðmið, kröfur og aðferðir gríðarlegu máli. Bankinn hefur gengið svo langt að kalla þetta kerfi „falinn grunn velmegunar“.

Það er ekki lítið.

Samt hugsum við fæst um þetta í daglegu lífi. Kerfið er hljóðlaust. Það gerir lítið vart við sig og verður helst sýnilegt þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Þetta kerfi auðveldar líf okkar og gerir það öruggara og betra. Það er að verki þegar við setjum upp gleraugu, burstum tennurnar, festum snudduband á barn, tengjum raftæki við innstungu eða njótum þess að stafrænt kerfi virki eins og til er ætlast. Þetta kerfi liggur líka að baki öryggi mannvirkja, rafkerfa, veitukerfa, lækningatækja og ótal annarra hluta sem við lítum á sem sjálfsagða.

Það sér til þess að skrúfa sem framleidd er í einu landi passi í búnað sem framleiddur er í öðru. Að mæling í Reykjavík merki það sama og mæling í Rotterdam. Að prófun í einu ríki geti verið viðurkennd í öðru. Að framleiðandi þurfi ekki að finna upp nýja lausn fyrir hvern einasta markað. Í kerfinu felst því mjög mikið efnahagslegt virði.

Fyrir litlar þjóðir er þetta sérstaklega mikilvægt. Samkeppnishæfni þeirra byggist að verulegu leyti á því að geta tekið þátt í sameiginlegum mörkuðum á sömu forsendum og stærri ríki. Þær þurfa að geta treyst því að tæknilegar kröfur séu gagnsæjar, sambærilegar og mótaðar í ferli þar sem fleiri en stærstu markaðirnir hafa rödd.

En þetta snýst ekki aðeins um viðskipti

Þetta kerfi hefur líka gríðarlegt samfélagslegt virði og inniheldur ómetanlegt traust.

Trausts til þess að vara uppfylli ákveðnar kröfur. Að vinnustaður sé öruggur. Að heilbrigðisþjónusta byggi á viðurkenndum aðferðum. Að gögn séu meðhöndluð með ábyrgum hætti. Að fyrirtæki, stjórnvöld og neytendur skilji hvert annað þegar rætt er um gæði, öryggi, mælingar og frammistöðu.

Í þessari viku koma fulltrúar 177 ríkja saman í París á ársfundi ISO og sækja þar yfir 140 viðburði. Staðsetningin er táknræn. Í París var fyrsta allsherjarþing samtakanna haldið árið 1949, þegar heimurinn var að byggja sig upp eftir hörmungar síðari heimsstyrjaldarinnar.

Þá var þörfin mikil fyrir samstarf, sameiginlegar leikreglur og traust augljós.

Hún er það ekki síður í dag því heimurinn færist nú hratt og með miklum hávaða í átt að meiri pólitískri efnahagslegri sundrungu. Stórveldi líta í vaxandi mæli á tæknilegar reglur sem hluta af efnahagslegu valdi, öryggismálum og fullveldi sínu. Hættan við slík átök er sú að mismunandi valdablokkir byggi upp sín eigin kerfi, sínar eigin kröfur og sín eigin tæknilegu tungumál. Það boðar ekki gott fyrir neinn ef kröfur markaða eru háðar duttlungum og sameiginlegur skilningur verður undantekning. Við vitum hverjir koma til með að tapa á þeirri stöðu.

Fyrir Ísland skiptir máli að standa ekki aðeins fyrir utan og taka við niðurstöðunni. Við erum lítið land og höfum hvorki burði né ástæðu til að þróa sjálf tæknilegar reglur fyrir alla þá tækni, vörur og þjónustu sem samfélagið byggir á. En við getum tekið þátt í að móta sameiginlegar lausnir og tryggt að rödd okkar heyrist áður en leikreglurnar eru ákveðnar.

Smæð útilokar ekki áhrif

Íslensk þekking hefur náð langt út fyrir landsteinana, meðal annars í stoðtækni, matvæla- og sjávarútvegstækni og nýtingu endurnýjanlegrar orku. Á öllum þessum sviðum skiptir sameiginlegt tæknilegt tungumál miklu máli. Traust kaupenda og markaða erlendis byggist ekki aðeins á góðri hugmynd eða góðri vöru heldur á því að hægt sé að sýna fram á eiginleika hennar með aðferðum sem aðrir viðurkenna og skilja.

Og Ísland getur líka tekið forystu

Nú leiðir landið eina af nýjustu tækninefndum ISO, ISO/TC 356 um réttindi barna. Nefndin vinnur að alþjóðlegum viðmiðum sem styðja framkvæmd og vernd réttinda barna, meðal annars með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Staðlaráð Íslands fer með tvíburaskrifstofu nefndarinnar ásamt Svíum og Íslendingur gegnir formennsku hennar. Það sýnir vel hvað þetta kerfi getur gert. Lítið ríki getur því komið að borðinu með sérþekkingu, tekið forystu og haft áhrif á reglur sem síðar kunna að verða notaðar víða um heim.

Hver er þessi ósýnilegi en verðmæti grunnur?

Staðlar. Þeir eru sjaldnast áberandi. Þeir eru yfirleitt ekki í fréttum. En þeir eru eitt mikilvægasta sameiginlega verkfæri heimsins til að skapa samræmi, öryggi, viðskipti, gæði og traust.

Og kannski skiljum við mikilvægi þeirra best þegar við hættum að hugsa um þá sem skjöl – og sjáum þá þess í stað sem sameiginlegar leikreglur viðkvæms heims sem þarf stöðugt að semja um, verja og þróa.

Njótið öryggis ykkar, virkni kerfanna sem þið treystið á daglega og umfram allt, notið tannþráð. Ef hann er með litlu plasthandfangi er hann líklega framleiddur skv. ISO 28158 sem tryggir örugga hönnun hans, nothæfi og traustar prófanir.

1) Skýrslu Alþjóðabankans má finna hér

Menu
Top