Nýr alþjóðlegur staðall færir heimsmarkmiðin úr yfirlýsingum yfir í stjórnun

ISO og Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP), hafa gefið út nýjan alþjóðlegan staðal, ISO/UNDP 53001:2026, sem gæti markað mikilvæg tímamót í því hvernig fyrirtæki, opinberar stofnanir og aðrar skipulagsheildir vinna með sjálfbæra þróun. Í stað þess að heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna séu fyrst og fremst notuð til að lýsa stefnu eða fyrirætlunum setur staðallinn fram formlegt stjórnkerfi þar sem sjálfbær þróun er tengd stjórnskipulagi, stefnumótun, ákvörðunum, starfsemi og mælanlegum árangri.

ISO/UNDP 53001 ber heitið Management systems for United Nations Sustainable Development Goals (SDGs) — Requirements og er fyrsti alþjóðlegi kröfustaðallinn sinnar tegundar um stjórnun framlags skipulagsheilda til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Hann var þróaður sameiginlega af Alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO og UNDP og gefinn út 28. september 2026 í tengslum við ársfund ISO í París.

Það sem gerir útgáfuna sérstaklega áhugaverða er að hér er verið að færa umræðuna um heimsmarkmiðin skrefinu lengra. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir hafa undanfarinn áratug tengt starfsemi sína við eitt eða fleiri af 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Merki markmiðanna hafa birst í ársskýrslum, sjálfbærniskýrslum, stefnum og kynningarefni víða um heim. Það hefur aukið sýnileika markmiðanna og skapað sameiginlegt tungumál um sjálfbæra þróun. En áskorunin hefur alltaf verið sú sama: hvernig er farið frá því að segja hvaða heimsmarkmið tengjast starfseminni yfir í að sýna með skipulegum hætti hvaða áhrif starfsemin hefur í raun?

ISO/UNDP 53001 er tilraun til að svara þeirri spurningu.

Frá merkingum yfir í stjórnun

Staðallinn setur fram kröfur um stjórnkerfi sem hjálpar skipulagsheildum að samþætta sjálfbæra þróun inn í tilgang sinn, stefnu, rekstur og ákvarðanatöku. Hann byggir á þeirri hugsun að ekki sé nægilegt að velja nokkur heimsmarkmið sem virðast passa vel við starfsemi fyrirtækis eða stofnunar. Skoða þurfi bæði jákvæð og neikvæð áhrif starfseminnar, forgangsraða þeim, setja markmið, skilgreina ábyrgð, safna gögnum, fylgjast með árangri og bæta frammistöðu með kerfisbundnum hætti.

Þetta kann að hljóma kunnuglega fyrir þá sem þekkja aðra stjórnkerfisstaðla ISO. Hugmyndafræðin byggir á hinni vel þekktu hringrás að skipuleggja, framkvæma, meta og bæta, svonefndri Plan-Do-Check-Act nálgun. Sjálfbær þróun verður þannig ekki sérstakt verkefni við hlið hefðbundins rekstrar heldur hluti af stjórnun fyrirtækisins eða stofnunarinnar sjálfrar.

Þessi breyting á sjónarhorni er mikilvæg. Sjálfbærni hefur lengi átt á hættu að verða nokkurs konar viðhengi við meginstarfsemi fyrirtækja. Hún hefur stundum verið vistuð í sérstakri sjálfbærnistefnu, árlegri skýrslu eða hjá einum starfsmanni eða einni deild. ISO/UNDP 53001 nálgast málið á annan hátt. Sjálfbær þróun á að hafa áhrif á það hvernig ákvarðanir eru teknar, hvernig áhætta og tækifæri eru metin, hvernig markmið eru sett og hvernig árangur er mældur.

Það er ef til vill stærsta breytingin sem staðallinn boðar: heimsmarkmiðin eiga ekki eingöngu að lýsa því sem skipulagsheild vill standa fyrir heldur geta þau orðið hluti af því hvernig henni er stjórnað.

Ekki þarf að gera allt í einu

Staðallinn gerir ekki ráð fyrir því að hvert fyrirtæki eða hver stofnun eigi að leggja jafna áherslu á öll 17 heimsmarkmiðin. Þvert á móti er gert ráð fyrir að skipulagsheildir greini hvar áhrif þeirra eru mest og hvaða markmið eru mikilvægust miðað við eðli starfseminnar, samhengi og væntingar hagaðila.

Á sama tíma er lögð áhersla á að heimsmarkmiðin séu ekki sautján sjálfstæðir kassar. Áhrif á eitt svið geta haft áhrif á annað. Aðgerð sem skilar augljósum ávinningi á einu sviði getur skapað kostnað eða neikvæð áhrif annars staðar. ISO lýsir því sérstaklega að staðallinn eigi að hjálpa skipulagsheildum að greina tengsl, samlegð og möguleg málamiðlun milli markmiðanna.

Þetta er mikilvæg nálgun. Sjálfbær þróun snýst í eðli sínu um jafnvægi efnahagslegra, félagslegra og umhverfislegra þátta. Fyrirtæki getur til dæmis minnkað kolefnisspor sitt en á sama tíma þurft að huga að áhrifum breytinganna á starfsfólk, samfélög eða virðiskeðjur. Ný fjárfesting getur skapað störf og verðmæti en jafnframt haft áhrif á náttúru eða auðlindanotkun. Góð sjálfbærnistjórnun felst því ekki aðeins í því að hámarka eitt mæligildi heldur að skilja kerfið í heild.

Samstarf ISO og Sameinuðu þjóðanna

Það er einnig athyglisvert hverjir standa að staðlinum. UNDP valdi ISO sem samstarfsaðila um þróun alþjóðlegs staðlaramma á þessu sviði. Með samstarfinu mætast annars vegar þekking UNDP á sjálfbærri þróun og heimsmarkmiðunum og hins vegar alþjóðlegt staðlakerfi ISO, sem tengir saman staðlastofnanir í ríkjum um allan heim.

Þetta samstarf hófst ekki með ISO/UNDP 53001. Árið 2024 gáfu ISO og UNDP út ISO/UNDP PAS 53002, leiðbeiningar um framlag skipulagsheilda til heimsmarkmiðanna. Þær voru hugsaðar sem hagnýt leið fyrir fyrirtæki og stofnanir til að samþætta heimsmarkmiðin betur við ákvarðanatöku og starfsemi. Nú hefur næsta skref verið tekið. ISO/UNDP 53001 inniheldur formlegar kröfur stjórnkerfis en ISO/UNDP 53002 veitir leiðbeiningar um framkvæmd þess. Endurskoðuð útgáfa 53002 er jafnframt í vinnslu.

Saman gætu þessi skjöl myndað nýja alþjóðlega umgjörð um það hvernig sjálfbær þróun er færð úr stefnum og fyrirheitum inn í daglega stjórnun.

Fellur að kerfum sem mörg fyrirtæki þekkja þegar

Annar mikilvægur eiginleiki ISO/UNDP 53001 er að hann er hannaður þannig að hægt sé að samþætta hann öðrum stjórnkerfum. ISO bendir sérstaklega á tengsl við meðal annars ISO 9001 um gæðastjórnun og ISO 14001 um umhverfisstjórnun. Fyrirtæki sem þegar starfa samkvæmt slíkum stjórnkerfum þurfa því ekki endilega að byggja upp nýtt og aðskilið kerfi frá grunni heldur geta nýtt ferla sem þegar eru fyrir hendi.

Þetta getur skipt miklu máli í framkvæmd. Ein helsta áskorun fyrirtækja síðustu ára hefur verið fjölgun mismunandi krafna, mælikvarða, skýrslukerfa og sjálfbærniverkefna. Ef hvert nýtt viðfangsefni leiðir til nýs stjórnkerfis getur flækjan orðið meiri en ávinningurinn. Alþjóðlegir stjórnkerfisstaðlar byggja hins vegar í auknum mæli á sambærilegri uppbyggingu og hugtakanotkun, sem gerir fyrirtækjum kleift að tengja saman ólík viðfangsefni í eitt stjórnkerfi.

Þannig getur gæðastjórnun, umhverfisstjórnun, loftslagsmál, félagsleg áhrif og sjálfbær þróun smám saman orðið hluti af sama stjórnunarlega veruleika í stað þess að vera aðskildar eyjar innan skipulagsheildarinnar.

Meira en skýrslugjöf

Það er jafnframt mikilvægt að greina á milli sjálfbærniskýrslugjafar og sjálfbærnistjórnunar.

Skýrslugjöf segir okkur fyrst og fremst hvað hefur gerst og hvernig skipulagsheild stendur gagnvart tilteknum mælikvörðum eða upplýsingakröfum. Stjórnunarkerfi fjallar hins vegar um hvernig skipulagsheild ætlar að stýra starfseminni þannig að árangurinn breytist.

ISO/UNDP 53001 snýr að því síðarnefnda.

Staðallinn getur vissulega styrkt gögn, rekjanleika og upplýsingagjöf, en meginmarkmið hans er að skapa ferli þar sem upplýsingar leiða til ákvarðana, ákvarðanir til aðgerða og niðurstöður þeirra aftur til endurmats og umbóta.

Þar liggur kannski dýpsta gildi staðalsins. Sjálfbærni verður ekki verkefni sem hefst þegar ársskýrslan er skrifuð. Hún færist framar í ferlið, að borðinu þar sem fjárfestingar eru ákveðnar, áhætta metin, innkaup skipulögð, vörur þróaðar og langtímastefna mótuð.

Áhugavert tækifæri fyrir íslenskar skipulagsheildir

ISO/UNDP 53001 á erindi við íslenskt atvinnulíf og opinbera stjórnsýslu.

Mörg íslensk fyrirtæki, sveitarfélög, opinberar stofnanir, háskólar og félagasamtök hafa þegar unnið með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna með einum eða öðrum hætti. Víða hefur verið unnin góð vinna við stefnumótun, loftslagsmál, samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni. Nýi staðallinn býður upp á tækifæri til að tengja þessa vinnu betur saman og spyrja aðeins erfiðari spurninga: Hvar höfum við raunverulega mest áhrif? Hvar eru neikvæðu áhrifin? Hvaða markmið skipta mestu máli fyrir okkar starfsemi? Hvernig vitum við hvort aðgerðir okkar skila árangri? Og hvernig tryggjum við að sjálfbærnimarkmið hafi raunverulega áhrif á ákvarðanir stjórnenda?

Þar gætu sérstaklega þær skipulagsheildir sem þegar vinna samkvæmt ISO 9001, ISO 14001 eða öðrum stjórnkerfisstöðlum verið í góðri stöðu. Þær þekkja þegar hugsunina sem liggur að baki markmiðssetningu, ábyrgð, mælingum, innri úttektum og stöðugum umbótum. Fyrir þær gæti ISO/UNDP 53001 orðið rökrétt viðbót við stjórnunarkerfi sem þegar er til staðar.

En staðallinn er ekki eingöngu hugsaður fyrir stór alþjóðleg fyrirtæki. ISO og UNDP taka sérstaklega fram að hann sé ætlaður fyrirtækjum, stjórnvöldum og opinberum aðilum, menntastofnunum, félagasamtökum og öðrum skipulagsheildum og að aðferðafræðin eigi að vera nægilega sveigjanleg til að taka mið af stærð, hlutverki og aðstæðum hvers og eins.

Í litlu samfélagi eins og Íslandi gæti einmitt falist styrkur í því. Við þurfum ekki endilega að bíða eftir því að ný stjórnunaraðferð verði orðin almenn venja á stærri mörkuðum áður en hún er tekin til skoðunar hér. Staðlar skapa sameiginlegt tungumál og þegar slíkt tungumál er tekið upp snemma getur það bæði aukið fagmennsku og auðveldað íslenskum fyrirtækjum að sýna erlendum viðskiptavinum, fjárfestum og samstarfsaðilum hvernig unnið er að sjálfbærri þróun með kerfisbundnum hætti.

Staðall sem er hugsaður lengra en til ársins 2030

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna voru samþykkt með árið 2030 sem lykilviðmið. Það væri því auðvelt að ætla að nýr staðall um heimsmarkmiðin hefði tiltölulega stuttan líftíma.

Svo er ekki.

ISO og UNDP hafa sérstaklega hannað ISO/UNDP 53001 með það fyrir augum að stjórnunarkerfið geti einnig stutt þau alþjóðlegu markmið sem taka við af núverandi heimsmarkmiðum eftir 2030. Staðallinn verður jafnframt endurskoðaður reglulega samkvæmt hefðbundnu endurskoðunarferli ISO.

Þetta segir nokkuð mikilvægt um þróun sjálfbærnimála. Heimsmarkmiðin eru ákveðinn rammi á ákveðnu tímabili, en þær áskoranir sem þau fjalla um hverfa ekki á miðnætti 31. desember 2030. Loftslagsbreytingar, hnignun líffræðilegrar fjölbreytni, ójöfnuður, auðlindanotkun, heilbrigði, menntun og samfélagsleg seigla verða áfram grundvallarviðfangsefni fyrirtækja og stjórnvalda.

Stjórnunarkerfið er því hugsað sem langtímaverkfæri fremur en tímabundið verkefni tengt einni dagskrá Sameinuðu þjóðanna.

Næsta skref er framkvæmdin

Nýir staðlar breyta auðvitað engu einir og sér. Verðmæti þeirra verður til þegar þeir eru teknir í notkun.
En ISO/UNDP 53001 kemur fram á áhugaverðum tíma. Fyrirtæki standa frammi fyrir síauknum væntingum um að sýna ekki aðeins fyrirætlanir heldur niðurstöður. Fjárfestar, stjórnvöld, viðskiptavinir, starfsfólk og almenningur kalla í auknum mæli eftir trúverðugum gögnum og skýrri ábyrgð. Á sama tíma eru mörg fyrirtæki að reyna að einfalda og samræma sjálfbærnivinnu sem hefur stundum þróast í marga samhliða ferla.

Þar gæti ISO/UNDP 53001 fundið mikilvægt hlutverk.

Fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir sem þegar hafa sett sér metnaðarfull markmið um sjálfbærni er því næsta rökrétta spurning ekki aðeins hvaða heimsmarkmið tengjast starfseminni heldur hvernig þau eru komin inn í stjórnkerfið sjálft.

Nýr ISO/UNDP 53001 gefur nú sameiginlega alþjóðlega aðferð til að svara þeirri spurningu.

Og fyrir sumar íslenskar skipulagsheildir gæti þetta verið mjög góður tímapunktur til að byrja.

Menu
Top