Ný útgáfa ISO 9001, alþjóðlega staðalsins um gæðastjórnun, kom út 16. september. Af því tilefni hélt ISO sérstaka kynningu þar sem farið er yfir helstu breytingar, ástæður endurskoðunarinnar og hvað ný útgáfa þýðir fyrir fyrirtæki og stofnanir sem nota staðalinn.
ISO 9001 er einn mest notaði stjórnkerfisstaðall heims og meira en ein milljón fyrirtækja og stofnana um allan heim byggir gæðastjórnun sína á honum. Nýja útgáfan, ISO 9001:2026, byggir áfram á þeim grunni sem notendur þekkja en tekur jafnframt mið af breyttu starfsumhverfi fyrirtækja, meðal annars hraðri stafrænni þróun, breyttum væntingum viðskiptavina og sífellt flóknari virðis- og aðfangakeðjum.
Í kynningunni er meðal annars fjallað um það sem er nýtt í ISO 9001:2026, aukna áherslu á gæðamenningu og forystu, skýrari aðgreiningu áhættu og tækifæra og hvernig staðallinn styður við seiglu, nýsköpun og árangur skipulagsheilda. Einnig er rætt um hvernig breytingarnar auðvelda samþættingu ISO 9001 við önnur ISO stjórnunarkerfi.
Sergio Mujica, framkvæmdastjóri ISO, og Sam Somerville, sem leiddi vinnuna við endurskoðun ISO 9001, fara yfir breytingarnar ásamt fulltrúum atvinnulífsins og ræða hvernig fyrirtæki og stofnanir geta undirbúið sig fyrir nýju útgáfuna.
Kynningin er um 30 mínútur og er góður upphafspunktur fyrir alla sem starfa að gæðastjórnun, innri úttektum, stjórnunarkerfum eða stefnumótun.
Horfðu á kynninguna og kynntu þér hvað ISO 9001:2026 þýðir fyrir þína starfsemi.