Taktu þátt í örkönnun um þátttöku í staðlastarfi

Staðlaráð Íslands tekur, ásamt systurstofnunum sínum í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, þátt í þriggja ára norræna samstarfsverkefninu Nordic Region Sets the Standard. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og hefur það að markmiði að efla norrænt samstarf á sviði stöðlunar og styrkja þátttöku í staðlastarfi til framtíðar.

Sem hluti af verkefninu hefur verið sett af stað könnun meðal þeirra sem taka þátt í staðlastarfi á Norðurlöndunum. Markmiðið er að fá betri yfirsýn yfir þátttakendur í starfinu, meðal annars hversu lengi þeir hafa tekið þátt, hvaða fræðslu þeir hafa fengið og hvernig aldursdreifing hópsins er.

Staðlar verða til með samstarfi sérfræðinga úr ólíkum áttum, meðal annars frá atvinnulífi, stjórnsýslu, fræðasamfélagi og öðrum hagsmunaaðilum. Fjölbreytt þátttaka er ein af grunnforsendum þess að staðlar endurspegli raunverulegar þarfir samfélagsins og atvinnulífsins. Mikilvægt er því að staðlastarf sé aðgengilegt og áhugavert fyrir sérfræðinga á öllum stigum starfsævinnar og að ný kynslóð sérfræðinga sjái tækifærin sem felast í þátttöku í stöðlun.

Með því að svara könnuninni hjálpar þú Staðlaráði og öðrum norrænum staðlasamtökum að skilja betur hverjir taka þátt í staðlastarfi í dag og hvernig hægt er að bæta fræðslu, stuðning og þátttöku til framtíðar.

Könnunin er að fullu nafnlaus, er á ensku og tekur aðeins 1–2 mínútur að svara. Öll svör skipta máli, hvort sem þú hefur nýlega hafið þátttöku í staðlastarfi eða hefur tekið þátt um árabil.

Taktu þátt í könnuninni hér

Menu
Top