Ný útgáfa af ISO 9001, útbreiddasta gæðastjórnunarstaðli heims, kom formlega út 16. september. ISO 9001:2026 tekur við af ISO 9001:2015 og er sjötta útgáfa staðalsins. Meira en ein milljón fyrirtækja og stofnana um allan heim byggir gæðastjórnun sína á staðlinum og hefur hann um áratugaskeið verið ein mikilvægasta sameiginlega umgjörðin um gæði, stöðugar umbætur og traust í viðskiptum.
Endurskoðunin felur ekki í sér róttæka breytingu á grunngerð ISO 9001. Þvert á móti er byggt áfram á þeirri nálgun sem notendur þekkja, svo sem áherslu á viðskiptavini, ferlanálgun, áhættumiðaða hugsun og stöðugar umbætur. Breytingarnar miða fyrst og fremst að því að skýra kröfurnar og færa þær nær því rekstrarumhverfi sem fyrirtæki og stofnanir starfa við í dag.
Ein sýnilegasta breytingin er aukin áhersla á hlutverk stjórnenda. Gæði eiga ekki aðeins að vera verkefni gæðastjóra eða sérstaks stjórnkerfis heldur hluti af stefnu, ákvarðanatöku og menningu skipulagsheildarinnar. Nýja útgáfan leggur því meiri áherslu á gæðamenningu, siðferðilega hegðun og að starfsfólk skilji hvernig það sjálft stuðlar að virkni gæðastjórnunarkerfisins.
Tengsl gæðastefnu við stefnumörkun skipulagsheildarinnar eru einnig gerð skýrari. Með því er undirstrikað að gæðastjórnun eigi að vera stjórntæki sem hjálpar fyrirtækjum að ná markmiðum sínum en ekki fyrst og fremst kerfi til að uppfylla formlegar kröfur.
Áhætta hefur verið mikilvægur hluti ISO 9001 frá útgáfunni árið 2015. Í nýju útgáfunni er gerður skýrari greinarmunur á áhættu annars vegar og tækifærum hins vegar. Markmiðið er að fyrirtæki horfi ekki aðeins til þess sem getur farið úrskeiðis heldur einnig til þess hvar breytingar, ný tækni eða breyttar aðstæður geta skapað tækifæri til umbóta og aukinna verðmæta.
Nýr viðauki, Annex A, veitir jafnframt frekari skýringar á lykilhugtökum og tilgangi einstakra krafna. Þá fylgir staðallinn nýjustu samræmdu uppbyggingu ISO fyrir stjórnkerfisstaðla, sem auðveldar samþættingu við önnur stjórnkerfi, til dæmis á sviði umhverfis-, vinnuverndar- og upplýsingaöryggismála.
Fyrirtæki og stofnanir sem þegar eru vottuð samkvæmt ISO 9001:2015 þurfa ekki að byggja gæðastjórnunarkerfi sín upp frá grunni. ISO leggur áherslu á að nýja útgáfan sé eðlilegt næsta skref í þróun staðalsins og að fyrirtæki byggi áfram á þeim kerfum og ferlum sem þegar virka vel.
Vottaðar skipulagsheildir hafa þrjú ár til að færa vottun sína yfir á ISO 9001:2026. ISO bendir á að yfirfærslan muni hjá mörgum fyrirtækjum geta farið fram samhliða reglulegu eftirliti eða endurvottun. Fyrirtækjum er þó ráðlagt að kynna sér breytingarnar tímanlega og ræða framkvæmdina við sína vottunarstofu.
Útgáfan er jafnframt gott tilefni fyrir fyrirtæki og stofnanir til að spyrja stærri spurninga um eigið gæðastjórnunarkerfi: Styður það raunverulega við stefnu og markmið? Hjálpar það stjórnendum að taka betri ákvarðanir? Stuðlar það að umbótum og skapar það verðmæti fyrir viðskiptavini?
Það er einmitt þar sem tækifærið í ISO 9001:2026 liggur. Markmiðið er ekki fleiri skjöl eða flóknara stjórnkerfi heldur öflugri stjórnun, skýrari ábyrgð og gæði sem verða hluti af daglegum rekstri.
Staðlaráð Íslands mun miðla frekari upplýsingum um nýju útgáfuna og innleiðingu hennar eftir því sem þær liggja fyrir.