ISO mun þann 16. september gefa út nýja útgáfu af ISO 9001, alþjóðlega staðlinum um gæðastjórnunarkerfi. Um er að ræða sjöttu útgáfu staðalsins og tekur hún við af ISO 9001:2015, sem hefur verið í gildi í rúman áratug. ISO 9001 er útbreiddasti stjórnkerfisstaðall heims og hafa meira en ein milljón vottorða verið gefin út til fyrirtækja og stofnana í 189 löndum.
Endurskoðunin hefur nú lokið formlegu samþykktarferli innan ISO. Lokadrög staðalsins, ISO/FDIS 9001, voru samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi aðildarríkja og er staðallinn nú á útgáfustigi. Samkvæmt ISO verður nýja útgáfan formlega gefin út 16. september 2026.
ISO 9001:2026 byggir áfram á þeirri uppbyggingu og þeim grundvallarhugmyndum sem fyrirtæki og stofnanir þekkja úr núverandi staðli. Markmið endurskoðunarinnar er því ekki að umbylta gæðastjórnunarkerfum heldur að gera kröfurnar skýrari og tryggja að staðallinn endurspegli betur þær aðstæður sem fyrirtæki og stofnanir starfa við í dag.
Meðal helstu breytinga sem ISO hefur kynnt eru skýrara orðalag og aukin áhersla á forystu, ábyrgð og gæðamenningu innan skipulagsheilda. Þá verður skýrari nálgun á hvernig fyrirtæki eiga að greina og takast á við áhættu og tækifæri. Nýjum viðauka, Annex A, er jafnframt ætlað að skýra betur hugtök og tilgang einstakra krafna staðalsins. Auk þess verður ISO 9001 betur samræmdur öðrum stjórnkerfisstöðlum ISO, sem getur auðveldað fyrirtækjum að reka samþætt stjórnkerfi, til dæmis með ISO 14001 um umhverfisstjórnun eða ISO 45001 um stjórnun vinnuverndar.
ISO leggur sérstaka áherslu á að gæðastjórnun sé ekki eingöngu spurning um verklagsreglur og skjöl heldur leið til að bæta rekstur, efla traust viðskiptavina og hagaðila, styrkja ákvarðanatöku og skapa verðmæti til lengri tíma. Nýja útgáfan endurspeglar þannig aukna áherslu á tengsl gæðastjórnunar við stefnumótun, stjórnendahlutverk og menningu fyrirtækja.
Fyrirtæki og stofnanir sem þegar starfa samkvæmt ISO 9001:2015 þurfa ekki að bregðast við breytingunum á einni nóttu. ISO hefur staðfest að aðlögunartímabil verður veitt fyrir vottaðar skipulagsheildir til að færa gæðastjórnunarkerfi sín yfir í nýju útgáfuna. Nánari upplýsingar um framkvæmd aðlögunarinnar og gildi núverandi vottana verða veittar í tengslum við útgáfuna og ættu vottaðar skipulagsheildir jafnframt að hafa samband við sína vottunarstofu varðandi næstu skref.
Fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir er því góður tími fram undan til að kynna sér breytingarnar, meta hvort uppfæra þurfi verklag eða áhættumat og skoða hvort gæðastjórnunarkerfið endurspegli nægilega vel stefnu, menningu og raunverulegan rekstur fyrirtækisins. Endurskoðun staðalsins getur einnig verið tækifæri til að einfalda kerfi sem hafa með tímanum orðið of flókin eða skjalaþung og færa áhersluna aftur að því sem skiptir mestu máli: að tryggja stöðug gæði og skapa verðmæti fyrir viðskiptavini og aðra hagaðila.
Nánari upplýsingar um nýju útgáfuna má finna hjá ISO – ISO 9001:2026 og á opinberri síðu ISO 9001 staðalsins.
Staðlaráð Íslands mun áfram miðla upplýsingum um útgáfu ISO 9001:2026 og breytingar sem skipta íslensk fyrirtæki og stofnanir máli.