ÍST HB 200:2026 komin út – uppfærð útgáfa Raflagnastaðalsins

Þótt margt sé háð óvissu í þessum heimi má yfirleitt reiða sig á eitt: Rafstaðlaráð heldur Raflagnastaðlinum við og gefur reglulega út uppfærða útgáfu hans í handbókinni ÍST HB 200. Nú er ÍST HB 200:2026 komin út með nýjum og uppfærðum kröfum.

Engin útgáfa kom út árið 2025. Breytingar á staðlinum það ár voru það fáar að ákveðið var að bíða með nýja útgáfu og taka þær þess í stað með í útgáfu ársins 2026.

Helstu breytingar í útgáfu 2026

Breytingar hafa verið gerðar á eftirfarandi hlutum staðalsins:

  • 53 – Rofabúnaður og stjórnbúnaður: minniháttar leiðrétting.
  • 701 – Baðherbergi: nýjar kröfur.
  • 706 – Hreyfihamlandi umhverfi: nýjar kröfur.
  • 708 – Hjólhýsa- og tjaldstæði: nýjar kröfur.
  • 710 – Lækningarými: nýjar kröfur.

Í nýju útgáfunni er því að finna breytingar sem snerta fjölbreytt notkunarsvið raflagna, allt frá baðherbergjum og tjaldsvæðum til lækningarýma.

ÍST HB 200:2026 kynnt á Síðsumarsfundi Rafmenntar

ÍST HB 200:2026 var formlega kynntur á Síðsumarsfundi Rafmenntar 12. ágúst síðastliðinn. Þar var farið yfir helstu breytingar í útgáfunni og rætt um notkun ÍST HB 200 og mikilvægi þess að Raflagnastaðallinn þróist áfram í takt við þarfir þeirra sem nota hann í daglegu starfi.

Útgáfa nýrrar handbókar snýst þó ekki aðeins um að uppfæra einstök ákvæði. Samhliða vinnur Staðlaráð Íslands að því að afla upplýsinga og meta hvernig þróa megi aðgengi að stöðlum og styðja betur við staðlanotkun til framtíðar.

Staðlasamtök víða um heim eru að taka í notkun ný stafræn verkfæri sem geta breytt því hvernig notendur nálgast, leita í og vinna með staðla. Sú þróun er hröð og enn að mörgu leyti á mótunarstigi. Fyrir lítil staðlasamtök eins og Staðlaráð Íslands skiptir því máli að fylgjast vel með þróuninni en jafnframt velja lausnir sem henta íslenskum aðstæðum, umfangi markaðarins og – síðast en ekki síst – þörfum notenda.

Rafverktakar kallaðir að borðinu

Næsta skref er að heyra betur í þeim sem nota Raflagnastaðalinn í sínu daglega starfi.

Rafstaðlaráð mun því, í samstarfi við SART, standa fyrir sérstökum fundi með rafverktökum. Öllum rafverktökum sem hafa aðgang að ÍST HB 200 í áskrift verður boðið að taka þátt. Fundurinn verður bæði staðfundur og aðgengilegur í gegnum Teams.

Markmiðið er að fá fram reynslu rafverktaka af notkun ÍST HB 200, ræða hvað nýtist vel og hvar tækifæri eru til úrbóta. Sú þekking er mikilvæg þegar horft er til næstu skrefa í þróun aðgengis að Raflagnastaðlinum og þjónustu við notendur hans.

Nánari upplýsingar um fundinn og skráningu verða kynntar síðar.

Menu
Top