Nýr norrænn samningur styrkir samstarf í stöðlun

Í dag undirrituðu staðlasamtök Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar uppfærðan INSTA-samning, sem er sameiginlegur rammi fyrir þróun staðla á Norðurlöndum.

Markmið hins nýja samnings er að efla norrænt samstarf á sviði stöðlunar og skapa betri skilyrði fyrir þróun sameiginlegra lausna á sviðum þar sem löndin standa frammi fyrir sambærilegum þörfum og áskorunum. Með aukinni samvinnu geta Norðurlöndin sameinað krafta sína og haft sterkari áhrif í evrópsku og alþjóðlegu stöðlunarstarfi.

Ein helsta nýjung samningsins er aukin áhersla á sameiginlegt efni og þekkingu fremur en eingöngu útgáfu skjala. Þetta skapar tækifæri til að gera niðurstöður stöðlunar sveigjanlegri, stafrænt aðgengilegri og betur nýtanlegar í ólíku samhengi, í takt við áframhaldandi stafræna umbreytingu staðla og staðlastarfs.

Samningurinn kveður einnig á um skýrari stjórnarhætti og samræmdari vinnubrögð. Þar má nefna stofnun sameiginlegrar tækninefndar og skýrari ferla fyrir þróun, samþykkt og stjórnun norrænna staðla og annarra sameiginlegra afurða.

Með uppfærðum INSTA-samningi stíga norrænu staðlastofnanirnar mikilvægt skref í átt að öflugra samstarfi og auknum ávinningi af stöðlun, bæði innan Norðurlanda og í evrópsku og alþjóðlegu samhengi.

Menu
Top