Aðalfundur Byggingastaðlaráðs var haldinn 7. maí og var vel sóttur. Formaður ráðsins Guðrún Þóra frá Vegagerðinni, fór yfir verkefni ráðsins og sköpuðust líflegar og gagnlegar umræður. Að fundi loknum var boðið upp á léttar veitingar og tvö áhugaverð erindi á opnum fræðslufundi.
Framkvæmdir NLSH
Í fyrsta erindinu fjallaði Ólafur Birgisson, framkvæmdastjóri hjá NLSH, um stöðu helstu framkvæmda. Hann greindi frá framvindu nýs meðferðarkjarna, þar sem uppsetningu útveggjaklæðningar og frágangi á þökum er lokið og innanhússfrágangur stendur nú yfir af fullum krafti. Verklok meðferðarkjarnans eru áætluð í lok árs 2029.
Ólafur fór einnig yfir stöðu annarra verkefna, þar á meðal nýs rannsóknahúss, viðbyggingar við Læknagarð (heilbrigðisvísindasvið HÍ) og viðbyggingar við Sjúkrahúsið á Akureyri. Myndir frá framkvæmdunum vöktu mikla athygli fundargesta.
Hringvegur um Ölfusá
Í seinna erindinu kynnti Einar Óskarsson frá Vegagerðinni stöðu og hönnun nýs Hringvegar um Ölfusá. Hann fór yfir framkvæmd á 330 metra langri stagbrú yfir Ölfusá og þeim verkþáttum sem fylgja, þar á meðal:
• gerð nýs Hringvegar á um 4 km kafla
• tengivegum, undirgöngum og mislægum vegamótum austan Selfoss
• umfangsmikilli lagnavinnu fyrir hitaveitu, kaldavatn, rafmagn og fjarskipti
Samningur um verkið var undirritaður í nóvember 2024. Einar sýndi einnig myndbönd frá framkvæmdunum sem gáfu góða innsýn í umfang og framvindu verkefnisins.
Að loknum erindum svöruðu Ólafur og Einar spurningum úr sal. Hægt er að horfa á upptöku af erindunum hér.