Staðlaráð Íslands óskar eftir laganema í sumarstarf

Staðlaráð Íslands óskar eftir að ráða laganema í sumarstarf. Viðkomandi þarf að vera með grunnþekkingu í Evrópurétti, sjálfstæður, vandvirkur og skipulagður. Verkefnið er kortlagning tilvísana til staðla í lögum og reglugerðum.

Staðlaráð Íslands er lítill vinnustaður, staðsettur í efri byggðum Kópavogs með góðum tengingum við almenningssamgöngur, nægum bílastæðum og skemmtilegu samstarfsfólki.

Áhugasamir sendi ferilskrá og kynningarbréf á framkvæmdastjóra, Helgu Sigrúnu Harðardóttur á netfangið helga@ist.is fyrir 12. maí n.k.

Menu
Top