Aðalfundur BSTR og fræðslufundur í samstarfi við HMS

Fulltrúar aðila hafa nú verið boðaðir á aðalfund Byggingastaðlaráðs þann 7. maí kl 11.00 - 12.00 í kjölfar aðalfundarins verður haldinn opinn fræðslufundur kl 12.00 - 13.00. Fundirnir verða haldnir í húsnæði Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) Borgartúni 21.

 

Dagskrá fræðslufundar:

Vegagerðin – Hringvegur um Ölfusá , hönnun og framkvæmd
Sérfræðingur frá Vegagerðinni mun fjalla um hönnun og framkævmdina á nýrri 330 metra langri stagbrú á Ölfusá. Innifalið í verkinu er einnig vegagerð nýs Hringvegar á um 4 km kafla ásamt tengivegum, undirgöngum, mislægum vegamótum austan Selfoss auk lagnavinnu við stofnlagnir hitaveitu, kaldavatns, rafmagns og fjarskipta. Samningur um alverkið var undirritaður í nóvember 2024.


Nýr Landspítali – framkvæmdaverkefni NLSH
Ólafur Birgisson framkvæmdastjóri hjá NSLH mun fjalla um stærsta byggingarverkefni í heilbrigðisþjónustu Íslands. Þar á meðal er bygging á nýjum meðferðarkjarna (sjúkrahúsi), sjúkrahótel og rannsóknahús.

Að loknum erindum verður boðið upp á fyrirspurnir og umræðu.
Menu
Top