Nýr alþjóðlegur staðall ISO 14001:2026 markar tímamót í umhverfisstjórnun

Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO hafa nú gefið út nýja útgáfu af ISO 14001 staðlinum um umhverfisstjórnun, ISO 14001:2026. Staðallinn kemur í stað ÍST EN ISO 14001:2015 og markar fyrstu heildarendurskoðun hans í meira en áratug.

ISO 14001 er einn mest notaði alþjóðlegi staðallinn á sviði umhverfisstjórnunar og er notaður af fyrirtækjum og stofnunum um allan heim til að bæta umhverfisárangur sinn með skipulögðum og kerfisbundnum hætti.

Nýja útgáfan endurspeglar breyttar kröfur og aukna áherslu á sjálfbærni. Hún styrkir meðal annars kröfur um að fyrirtæki taki mið af loftslagsbreytingum, líffræðilegri fjölbreytni og nýtingu náttúruauðlinda í starfsemi sinni. Þá er aukin áhersla lögð á ábyrgð í virðiskeðju, lífsferilssýn vara og þjónustu, sem og skýrari stjórnun áhættu og tækifæra.

Ein helsta nýjung staðalsins er nýr kafli um breytingastjórnun sem krefst þess að skipulagsheildir greini og stýri áhrifum breytinga á umhverfisstjórnunarkerfi sínu.

Samkvæmt áætlunum munu fyrirtæki fá allt að þriggja ára aðlögunartímabil til að uppfæra kerfi sín og uppfylla kröfur nýju útgáfunnar, með lokafrest í kringum árið 2029.

Útgáfa ISO 14001:2026 er talin mikilvægt skref í að þróa áfram alþjóðleg viðmið um umhverfisstjórnun og styðja fyrirtæki í að bregðast við auknum kröfum um sjálfbærni og gagnsæi.

Menu
Top