Þýdd grein eftir Catherine Chevauché, formanns ISO/TC 323
Í rólegu sjávarþorpi við strendur Bretlandseyja hafa kynslóðir unnið sér inn lífsviðurværi úr hafinu. En í dag bera netin fleira en fisk. Flækt í möskvunum eru brot úr plastúrgangi: flöskutappar, umbúðaplast og veiðarfæri. Þessi óboðni gestur er ekki lengur fjarri. Hann er alls staðar – í matnum sem við borðum, vatninu sem við drekkum og jafnvel loftinu sem við öndum að okkur.
Á næstu vikum, þegar alþjóðlegir samningamenn koma saman í Genf í seinni hluta fimmtu lotu milliríkjanefndarinnar (INC-5.2), munu augu heimsins beinast að þeim. Eftir margra ára þrýsting vinna ríkisstjórnir nú að því að ljúka sögulegum alþjóðasamningi um að binda endi á plastmengun. Hér gefst einstakt tækifæri – en stefnumótun ein og sér mun ekki bjarga hafinu okkar.
Ef við ætlum okkur raunverulega að taka á plastvandanum verðum við einnig að búa okkur sjálf undir að framkvæma breytingar. Þar koma alþjóðlegir staðlar til sögunnar.
Í áratugi hefur ISO unnið að lausnum sem byggja á vísindalegum grunni og samstöðu – lausnum sem styðja við sjálfbæra þróun. Staðlar komast sjaldan í fréttir, en þeir knýja hljóðlega áfram allt frá endingargóðum fjölnotabollum til flokkunartækni á endurvinnslustöðinni í þínu nærumhverfi.
Í dag er þetta starf brýnna en nokkru sinni fyrr. Allt frá ISO 15270 um endurvinnslu plasts til staðla um umhverfismerkingar veitir ISO áþreifanlegar aðferðir til að draga úr úrgangi og efla hringrásarhagkerfi. ISO/TC 323 um hringrásarhagkerfi, sem ég stýri, vinnur náið með tækninefndum um plast, umbúðir og úrgangsstjórnun til að tryggja að staðlarnir endurspegli þá flóknu og samtvinnuðu áskorun sem við stöndum frammi fyrir.
Með því að bjóða upp á hagnýta ramma til að stýra meðferð á plasti frá vöruhönnun og merkingum til endurvinnslu og vistvænna fullyrðinga hjálpa staðlar ISO til við að fyrirbyggja og minnka úrgang frá uppruna, efla söfnunar- og endurnotkunarkerfi og hraða umbreytingunni yfir í hringrásarhagkerfi.
Það sem mestu skiptir er að þessi verkfæri eru þegar komin í notkun. Þau leiðbeina atvinnugreinum við að innleiða hringrásarhugsun í viðskiptamódel sín, bæta rekjanleika og fylgjast með árangri með sameiginlegum mælikvörðum. Við erum ekki lengur að ræða um hvað gæti mögulega virkað – þetta eru lausnir sem hafa sannað sig og geta nýst þjóðum og fyrirtækjum strax í dag.
Framkvæmdin ræður úrslitum um árangur hins alþjóðlega plastsamnings. Það verður undir ríkjunum komið að umbreyta metnaði í lög, innviði og viðskiptahætti – og það hratt.
Einmitt hér gegna staðlar lykilhlutverki. Þeir umbreyta hástemmdum markmiðum í framkvæmanleg skref: mælingar, sannreyna og alþjóðlega samræmingu. Til dæmis, ef samningurinn kallar á minni plastframleiðslu, færri losunartilfelli eða meira endurunnið innihald, þá geta staðlar skilgreint hvernig slíkt er mælt, skráð og vottað – og þannig tryggt samræmi milli landa og atvinnugreina.
Þetta samræmi er lykilatriði. Án þess stöndum við frammi fyrir óreiðu – að hvert ríki túlki samninginn á sinn hátt, með tilheyrandi óhagkvæmni og glufum í kerfinu. Staðlar bjóða upp á sameiginlegt tungumál sem tengir stefnumótun við framkvæmd og metnað við ábyrgð.
Og vegna þess að ISO sameinar sérfræðinga frá yfir 170 löndum – þar á meðal fulltrúa stjórnvalda, borgaralegs samfélags, háskólasamfélags og atvinnulífs – endurspegla staðlarnir raunverulega alþjóðlega samstöðu. Það gerir þá einstaklega vel til þess fallna að styðja við framkvæmd samningsins á hátt sem er réttlátur, aðgengilegur og árangursríkur.
Fyrir atvinnulífið snúast staðlar ekki einungis um að uppfylla reglur – þeir eru hreyfiafl nýsköpunar og samkeppnishæfni.
Þeir veita fyrirtækjum öryggi um að vörur þeirra, ferlar og árangursfullyrðingar standist alþjóðlegar væntingar. Þeir draga úr tvíverknaði, ryðja hindrunum úr vegi á mörkuðum og gera fyrirtækjum kleift að fjárfesta í lausnum sem eru bæði skalanlegar og samhæfðar. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, sem oft búa ekki yfir nægum auðlindum til að þróa sérsniðnar aðferðir.
Staðlar fyrir hringrásarhagkerfi hjálpa til dæmis fyrirtækjum og stofnunum að skapa aukið virði úr auðlindum með hringrásarhönnun, sjálfbærri öflun hráefna, svæðisbundnu samlífi og fleiru. Þeir styðja við varðveislu auðlinda – með aðferðum á borð við að draga úr notkun, endurnýta og gera við – og greiða fyrir endurheimt verðmæta með stefnum um líftíma vöru. Með þessu móti styðja þeir umbreytingu frá línulegu yfir í hringrásarlíkön, og opna leið að nýjum virðiskeðjum og atvinnutækifærum.
Og þar sem staðlar ISO byggja á nýjustu vísindum og bestu starfsvenjum, hjálpa þeir fyrirtækjum að vera skrefi á undan – á sama tíma og þeir spara tíma, kostnað og vernda orðspor.
Þegar samningamenn koma saman í Palais des Nations í Genf, hvet ég þá til að líta út fyrir orðalag samningsins og beina sjónum að því burðarvirki sem þarf til að umbreyta alþjóðlegum metnaði í raunverulegan daglegan veruleika. Samningar segja hvað á að gera. Staðlar sýna hvernig það er hægt.
ISO er reiðubúið – ekki aðeins með lausnir sem nú þegar eru til, heldur með traustan, opinn vettvang fyrir þróun nýrra staðla sem byggja á vísindalegri samstöðu og raunverulegri þörf samfélaga. Sem formaður ISO/TC 323 hef ég fengið að upplifa umbreytandi kraft samstarfs yfir landamæri og geira. Vinna okkar byggir á þeirri hugsjón að hringrásarhagkerfi sé ekki staðbundið eða sérstakt – það er kerfislægt viðfangsefni og verður að nálgast það sem slíkt.
Við getum brúað bilið milli pólitísks vilja og hagnýtra aðgerða. Við getum tryggt að samningurinn verði ekki aðeins til á blaði, heldur leiði til djúpstæðra breytinga á því hvernig samfélög um heim allan stýra plasti – yfir landamæri, milli atvinnugreina og á milli kynslóða.
Því í grunninn snýst þetta ekki eingöngu um plastúrgang. Þetta snýst um að endurhugsa samband okkar við efni, við framleiðslu – og við jörðina sjálfa. Þetta snýst um að hanna hagkerfi sem byggja upp, en tæra ekki. Þetta snýst um að tryggja að barn, tíu árum héðan í frá í, sjái kuðunga á strönd – en ekki einnota plastflösku.
Hinn alþjóðlegi plastsamningur verður tímamót. En hvort hann verði raunverulegur vendipunktur – það veltur allt á því sem gerist næst.
Við skulum sjá til þess að hann sé fylgt úr hlaði með nauðsynlegum verkfærum, trausti og tilfærslugetu til að skila árangri.
Og við skulum byggja þessa framtíð saman – staðal fyrir staðal.