Jólakveðja - Opnunartímar um jól og áramót

Breyting á innskráningu

Kæru viðskiptavinir, Vegna breytinga hjá Ísland.is þarf Staðlaráð Íslands að skipta yfir í nýtt innskráningarkerfi í vefverslun sinni. Innskráningin sjálf breytist ekki að ráði og byggir áfram á notkun rafrænna skilríkja notenda en þau fyrirtæki sem hafa gefið starfsmönnum umboð vegna reikningsviðskipta eða áskriftarsamninga þurfa að endurnýja þau umboð í nýju kerfi. Eldra kerfi verður tekið úr sambandi 1. september og því mikilvægt að ráðast í nauðsynlegar breytingar strax til að tryggja hnökralausa aðlögun og koma í veg fyrir töf á viðskiptum. Leiðbeiningar um aðgerðir má finna hér.

Staðlaráð Íslands - Íslenskir staðlar - óskar aðildarfélögum sínum, viðskipta-
vinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
 
Opnunartímar um jól og áramót:
Lokað eftir hádegi á Þorláksmessu og allan gamlársdag. Opið milli jóla og nýárs.
Menu
Top