Vinnustofa Staðlaráðs Íslands opinberra hagaðila um breytingar á notkun staðla í innleiddri löggjöf ESB og dóm Evrópudómstólsins um aðgegni að samhæfðum stöðlum, án endurgjalds.
Staður og tími: Hótel Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll 28. ágúst kl. 8.30-13:00
Verkleg æfing undir leiðsögn Magnusar Hakvåg, sérfræðings sem verið hefur ráðgjafi norskra stjórnvalda um nýsköpun, stöðlun og hugverkarétt s.l. 20 ár en hann hefur unnið með OECD, WIPO, NATO, WTO, UNESCO, Woldbank, Airbus og Hersheys auk fjölda staðlasamtaka. Þá fer einnig fram ítarleg greining á þörfum og væntingum opinberra hagaðila um stöðlun og staðla.
Vinnustofunni lýkur með hádegisverði á SATT.
Skráning hér að neðan. Fjöldi frá hverjum lögaðila takmarkast við tvo.
Aðilar að Staðlaráði greiða ekkert fyrir þátttökuna. Aðrir greiða 15.000 kr.