ÍST EN ISO 14001:2015 (íslensk þýðing)

Staða:

Gildistaka - 15.11.2015

Íslenskt heiti:

Umhverfisstjórnunarkerfi - Kröfur með leiðbeiningum

Enskt heiti:

Environmental management systems - Requirements with guidance for use

Tengdur staðall:

ISO 14001:2015

Tækninefnd:

CEN/SS S26

ICS flokkur:

13.020

Auglýst:

18.11.2015

Umfang (scope):

Í þessum alþjóðastaðli eru tilgreindar kröfur sem gerðar eru til umhverfisstjórnunarkerfis sem skipulagsheild getur notað til að bæta umhverfisframmistöðu sína. Þessi alþjóðastaðall er ætlaður fyrir skipulagsheildir sem vilja hafa kerfisbundna stjórn á umhverfisábyrgð sinni og leggja þannig sitt af mörkum til grunnstoða um umhverfislega sjálfbærni. Þessi alþjóðastaðall hjálpar skipulagsheild að ná tilætlaðri útkomu með umhverfisstjórnunarkerfi sínu, en slíkt hefur gildi fyrir bæði umhverfið, skipulagsheildina sjálfa sem og hagsmunaaðila. Í samræmi við umhverfisstefnu skipulagsheildarinnar felur tilætluð útkoma umhverfisstjórnunarkerfis í sér: – bætta umhverfisframmistöðu, – uppfyllingu á hlítingu við skyldur, – að ná umhverfismarkmiðum. Allar skipulagsheildir, óháð stærð, gerð og eðli geta beitt þessum alþjóðastaðli, og hann gildir um umhverfisþætti þeirrar starfsemi og þjónustu sem skipulagsheildin hefur ákvarðað að mögulegt sé að stýra eða hafa áhrif á með tilliti til vistferilssjónarmiða. Þessi alþjóðastaðall tilgreinir ekki tiltekin viðmið um umhverfisframmistöðu. Þennan alþjóðastaðal má nota, í heild sinni eða að hluta, til þess að bæta umhverfisstjórnun með kerfisbundnum hætti. Hins vegar eru fullyrðingar um samræmi við þennan alþjóðastaðal óásættanlegar nema allar kröfur hans séu felldar inn í umhverfisstjórnunarkerfi skipulagsheildar og þær uppfylltar án undantekninga.
Verð 33.480 kr.
Skráðu þig inn til þess að skoða sýnishorn
Skráðu þig inn til þess að vakta þennan staðal
Skráðu þig inn til þess að kaupa þennan staðal
* Mynd sem fylgir ÍST EN ISO 14001:2004 (íslensk þýðing)

ÍST EN ISO 14001:2004 (íslensk þýðing)

Í þessum alþjóðastaðli eru tilgreindar kröfur til umhverfisstjórnunarkerfis sem gera fyrirtæki kleift að þróa og innleiða stefnu og markmið í umhverfismálum með hliðsjón af lagalegum kröfum og öðrum kröfum sem fyrirtækið undirgengst, og upplýsingum um umtalsverð umhverfisáhrif. Hann gildir um þá umhverfisþætti sem fyrirtækið getur stýrt og haft áhrif á. Í staðlinum sjálfum eru ekki settir fram sérstakir mælikvarðar á frammistöðu í umhverfismálum. Þessum alþjóðlega staðli má beita í hverju því fyrirtæki sem vill a) koma upp, innleiða, viðhalda og bæta umhverfisstjórnunarkerfi, b) fá fullvissu um að starfsemi þess samræmist yfirlýstri umhverfisstefnu þess, c) sýna fram á samræmi við þennan alþjóðastaðal með því að 1) ákvarða og lýsa sjálft yfir samræmi, eða 2) leita eftir staðfestingu á samræmi hjá aðilum sem hafa hagsmuna að gæta varðandi fyrirtækið, s.s. viðskiptavinum, eða 3) leita eftir staðfestingu á eigin yfirlýsingu um samræmi hjá aðila utan fyrirtækisins, eða 4) leita eftir vottu
Verð: 12.239 kr.
* Mynd sem fylgir ÍST EN ISO 14001:2015/A1:2024

ÍST EN ISO 14001:2015/A1:2024

Umhverfisstjórnunarkerfi - Kröfur með leiðbeiningum
Verð: 5.915 kr.
* Mynd sem fylgir prEN ISO 14001

prEN ISO 14001

ISO 14001 specifies the requirements for an environmental management system that an organization can use to enhance its environmental performance. ISO 14001 is intended for use by an organization seeking to manage its environmental responsibilities in a systematic manner that contributes to the environmental pillar of sustainability. ISO 14001 helps an organization achieve the intended outcomes of its environmental management system, which provide value for the environment, the organization itself and interested parties. Consistent with the organization's environmental policy, the intended outcomes of an environmental management system include: · enhancement of environmental performance; · fulfilment of compliance obligations; · achievement of environmental objectives. ISO 14001 is applicable to any organization, regardless of size, type and nature, and applies to the environmental aspects of its activities, products and services that the organization determines it can either control o
Verð: 10.280 kr.
Menu
Top