ÍST EN 13670:2009 (íslensk þýðing)

Staða:

Gildistaka - 5.12.2014

Íslenskt heiti:

Framkvæmdir við steypt mannvirki

Enskt heiti:

Execution of concrete structures

Tækninefnd:

ÍST/BSTR

ICS flokkur:

91.080

Auglýst:

8.12.2014

Umfang (scope):

(1) Þessi Evrópustaðall lýsir almennum skilyrðum fyrir framkvæmdum við steypt byggingarvirki. Hann á bæði við um byggingarvirki sem steypt eru á staðnum, og þau sem eru byggð með forsteyptum einingum. (2) Þessi staðall gerir ráð fyrir framkvæmdarskilmálum þar sem öll einstök atriði, sem skipta máli fyrir viðkomandi byggingarvirki, eru tilgreind. (3) Þessi staðall gildir bæði um varanleg steypt byggingarvirki og virki til bráðabirgða. (4) Tekið skal tillit til viðbótarkrafna eða annarra krafna. Ef þörf krefur, skulu þær tilgreindar í framkvæmdarskilmálum þegar notuð er: a) léttsteypa; b) annað efni (t.d. trefjar) eða efnisþættir; c) sérstök tækni/nýstárleg hönnun. (5) Þessi staðall á ekki við um steinsteyptar einingar sem einungis eru notaðar sem búnaður eða hjálpartæki við framkvæmdina. (6) Þessi staðall nær ekki yfir tæknilýsingu, framleiðslu og samræmi steypu. (7) Þessi staðall gildir ekki um framleiðslu forsteyptra eininga samkvæmt vörustöðlum. (8) Þessi staðall nær ekki til krafna um öryggi og hollustuhætti sem tengjast framkvæmdinni, eða krafna um öryggi þriðja aðila. (9) Þessi staðall nær ekki til samningsákvæða eða ábyrgðar á tilgreindum verkþáttum. ATHUGASEMD Í staðli þessum er gert ráð fyrir að setja megi viðbótarkröfur fyrir einstök verkefni í framkvæmdarskilmála, á landsvísu í þjóðarviðauka eða almennt í Evrópustaðla, t.d. staðla fyrir sérhæfð jarðtæknileg verk.
Verð 27.441 kr.
Skráðu þig inn til þess að skoða sýnishorn
Skráðu þig inn til þess að vakta þennan staðal
Skráðu þig inn til þess að kaupa þennan staðal
Menu
Top