Ársfundur ISO 2026

Ársfundur Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO verður haldinn í París dagana 28. september til 2. október 2026. Yfirskrift fundarins í ár er „Building trust in a changing world“, eða Að byggja upp traust í breyttum heimi, og verður sjónum meðal annars beint að gervigreind, loftslagsaðlögun, alþjóðaviðskiptum og viðnámsþrótti samfélaga og atvinnulífs.

Á fundinum koma saman þúsundir fulltrúa frá stöðlunarstofnunum, stjórnvöldum, atvinnulífi og félagasamtökum víðs vegar að úr heiminum. Markmiðið er að ræða hvernig alþjóðlegir staðlar geta stutt aukið samstarf, ábyrga nýsköpun og þróun sameiginlegra lausna á áskorunum sem verða sífellt flóknari og þvert á landamæri. Fundurinn er haldinn í samstarfi við frönsku staðlastofnunina AFNOR.

Dagskráin skiptist í þrjú meginþemu: fólk og jörðin, ný tækni og gervigreind og viðskipti og þróun. Meðal þeirra málefna sem tekin verða fyrir eru vatnsöryggi, náttúra og atvinnulíf, aðlögun að loftslagsbreytingum, konur í leiðtogastörfum, netöryggi, þróun gervigreindar, viðnámsþróttur alþjóðaviðskipta og stafrænir vörupassar.

Sérstök umræða verður einnig um nýja útgáfu ISO 9001, alþjóðlega staðalsins um gæðastjórnun. Þar verður meðal annars fjallað um hvernig gæðastjórnun getur hjálpað fyrirtækjum og stofnunum að byggja upp traust og nýta það sem hluta af stefnumótandi samkeppnisforskoti.

Khaled Soufi, forseti ISO, segir að traust sé grundvallarforsenda þess að fólk, fyrirtæki og stjórnvöld geti unnið saman, en að á tímum hraðra samfélagslegra, tæknilegra og pólitískra breytinga sé ekki lengur hægt að ganga að því vísu. Alþjóðlegir staðlar geti þar gegnt mikilvægu hlutverki með því að skapa sameiginleg viðmið um meðal annars gæði, öryggi, heilindi og ábyrgð.

Sergio Mujica, framkvæmdastjóri ISO, leggur jafnframt áherslu á að ársfundurinn snúist ekki eingöngu um að greina áskoranir heldur um að færa umræðuna yfir í raunhæfar lausnir sem hægt sé að þróa, innleiða og nýta víða. Mikilvægt sé að alþjóðlegir staðlar haldist viðeigandi, aðgengilegir og færir um að skapa raunverulegt virði fyrir einstaklinga, fyrirtæki og samfélög.

Ársfundurinn verður bæði haldinn í París og sendur út á netinu. Boðið verður upp á túlkun og textun á sex tungumálum og er hægt að skrá sig fyrir beinu streymi á vef ISO.

Ársfundur ISO er einn stærsti árlegi vettvangur alþjóðlega staðlasamfélagsins og gefur góða mynd af þeim málaflokkum sem munu móta þróun staðla á næstu árum. Áherslurnar í ár endurspegla vel þá breytingu sem hefur orðið á hlutverki staðla: þeir snúast ekki lengur aðeins um tæknilegar kröfur og samhæfni heldur í síauknum mæli um hvernig hægt er að byggja upp traust, stuðla að ábyrgri nýsköpun og styrkja viðnámsþrótt samfélaga og hagkerfa í ört breytilegum heimi.

Menu
Top