ÍST EN ISO/IEC 27005 um áhættustjórnun upplýsingaöryggis nú aðgengilegur á íslensku

Vinnuhópur á vegum tækninefndar um persónuvernd (TN-UPV) hefur lokið við þýðingu staðalsins ÍST EN ISO/IEC 27005, sem fjallar um upplýsingaöryggi, netöryggi og persónuvernd með sérstakri áherslu á áhættustjórnun.

Staðallinn er lykiltæki fyrir þau sem vinna að innleiðingu ÍST EN ISO 27001 stjórnunarkerfis upplýsingaöryggis. Í honum er lögð rík áhersla á að byggja vinnubrögð á markvissri áhættustjórnun, sem gerir skipulagsheildum kleift að beina athygli og úrræðum að þeim þáttum sem skipta mestu máli hverju sinni.

Með þessari nálgun má efla yfirsýn, styrkja ákvarðanatöku og auka skilvirkni í öryggismálum, á sama tíma og brugðist er við síbreytilegu áhættuumhverfi.

Þýðingin er gefin út í tvítyngdu sniði, þar sem íslenskur og enskur texti birtast hlið við hlið.

Í vinnuhópnum sem stóð að þýðingunni voru Andrea B. Elmarsdóttir (HÍ), Gunnar Bachmann (Brunavík), Hörður Helgi Helgason (Landslög), Marinó G. Njálsson (Harpan), Ólafur Rafnsson, formaður (Stika Solutions), Ragna Pálsdóttir (Íslandsbanki), Tómas Kristjánsson (Advania), Vigdís Eva Líndal (Orkuveitan) og Víðir Kristófersson. Skjal.is sá um grunnþýðingu.

Menu
Top