Ísland leiðir gerð alþjóðastaðla um réttindi barna

Ísland gegnir forystuhlutverki við gerð fyrstu alþjóðastaðla um réttindi barna. Staðlarnir verða gefnir út af alþjóðlegu staðlasamtökunum ISOÞeir munu gera ríkjum, sveitarfélögum, fyrirtækjum, stofnunum og hagsmunasamtökum kleift að færa réttindi barna úr yfirlýsingum og lagaramma yfir í raunverulegar, rekjanlegar og mælanlegar aðgerðir.

Mennta- og barnamálaráðuneytið átti frumkvæði og leiddi vinnu við gerð alþjóðastaðals um Barnahús sem rekin eru víða um heim að íslenskri fyrirmynd. Frumkvæði mennta- og barnamálaráðuneytisins hefur leitt til þess að Ísland mun á komandi misserum taka forystu í stöðlun um réttindi barna í nýrri tækninefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO, ISO/TC 356 – Children‘s rights management. Mannréttindi verða nú í fyrsta sinn skrifuð inn í viðurkennd alþjóðleg verkfæri og verða þannig markvisst viðfang stjórnunar. Formaður hinnar nýju tækninefndar er Páll Magnússon, sendiráðunautur í fastanefnd Íslands í Genf sem jafnframt gegndi lykilhlutverki í gerð alþjóðastaðals um Barnahús. 

Þrátt fyrir víðtæka fullgildingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur framkvæmd hans víða verið ósamræmd og skort hefur á kerfisbundnum, mælanlegum og stöðluðum aðferðum til innleiðingar. Markmið íslenskra stjórnvalda er að skapa alþjóðlegan vettvang innan ISO til að styðja við samræmda framkvæmd réttinda barna.

Ísland er stolt af því að fara með formennsku í nýrri tækninefnd ISO um stjórnun réttinda barna (Children’s Rights Management) í gegnum IST. Með því að leiða saman stjórnvöld, sérfræðinga og borgaralegt samfélag styrkir þetta frumkvæði innleiðingu á heimsvísu.

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, segir af þessu tilefni:„Markmiðið er að réttindi barna endurspeglist í raunverulegri framkvæmd og ákvörðunum. Ísland er stolt af formennsku sinni í tækninefndinni í gegnum Staðlaráð Íslands.Með því að leiða saman stjórnvöld, sérfræðinga og borgaralegt samfélag styrkir þetta frumkvæði innleiðingu á réttindum barna á heimsvísu.

Mikill alþjóðlegur áhugi frá upphafi

Áhugi á þátttöku í nefndinni er verulegur og þegar hafa 45 af 175 aðildarlöndum ISO, eða um 25% allra meðlima, þegar lýst yfir vilja til að taka þátt í gerð nýrra staðla á sviði barnaréttar

Þá hafa margar alþjóðastofnanir og samtök lýst vilja til þátttöku í nefndinniÞessi breiði alþjóðlegi stuðningur endurspeglar vaxandi viðurkenningu á því að réttindi barna eru ekki aðeins lagalegt eða siðferðilegt viðfangsefni, heldur einnig stjórnsýslu- og stjórnkerfismál sem krefst skýrra ferla, ábyrgðar og mælanlegra aðgerða.

Ísland í leiðandi hlutverki og getur snert líf milljóna barna um allan heim

Með stofnun ISO/TC 356 er brotið blað í gerð alþjóðlegra staðla en einnig á sviði barnaréttar. Fyrir Ísland felur þetta í sér viðurkenningu á íslensku frumkvæði og veitir Íslandi tækifæri til að vera leiðandi og hafa stefnumótandi áhrif. Jafnframt eflir þetta stöðu Íslands í alþjóðlegu mannréttindastarfi.

Mikilvægast af öllu er þó að með gerð alþjóðlegra staðla, sem nýtast ríkjum, stofnunum og fyrirtækjum verða til tól sem styðja við innleiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og styðja þar með við réttindi barna og barnavernd.

 

Menu
Top