ÍST EN ISO 14001:2026 – Umhverfisstjórnun styrkist í takt við hnattrænar kröfur

Endurskoðun eins af lykilstöðlum umhverfisstjórnunar, ÍST EN ISO 14001, er nú í lokavinnslu og ný útgáfa, ÍST EN ISO 14001:2026, væntanleg í útgáfu á vormánuðum 2026. Þessi endurskoðun er stærsta uppfærsla á staðlinum í rúma áratug og endurspeglar vaxandi kröfur um að umhverfisstjórnun sé ekki aðeins að fylgja reglum heldur stuðli að raunverulegri hringrás og umhverfisvænni starfsemi í rekstri.

Mikilvægustu breytingarnar í stuttu máli

  • Sterkari áhersla á loftslagsáhættu og lífsferilssjónarmið — rekstrarumhverfi fyrirtækja verður greint út frá útblæstri, nýtingu auðlinda og áhrifum á náttúru.
  • Skýrari ábyrgð æðstu stjórnenda þar sem hlutverk þeirra í að tryggja umhverfisárangur er afmarkað betur.
  • Nýjar kröfur um stjórn á breytingum sem geta haft áhrif á umhverfismarkmið.
  • Bætt lífsferilsýn þar sem áhrif umhverfisstjórnunar skal skoðuð yfir alla virðiskeðjuna — frá auðlindanotkun til loka lífsferils vöru eða þjónustu.

Hvað þýðir þetta í reynd?

Nýja útgáfan færir umhverfisstjórnun frá einhliða kröfum yfir í heildstæða lífsferilshugsun þar sem áhrif eru metin frá hráefni til endaloka vöru eða þjónustu. Með því er áherslan ekki lengur aðeins á að uppfylla tilteknar kröfur, heldur að skilja og stýra heildaráhrifum starfseminnar á umhverfi, loftslag og auðlindanýtingu. ISO 14001:2026 styrkir þannig staðalinn sem stefnumótandi stjórntæki sem samþættir áhættumat, tækifæri og ábyrgð æðstu stjórnenda inn í daglega ákvarðanatöku.

Hægt er að kynna sér frekar þær breytingar sem munu verða á staðlinum HÉR!

Menu
Top