Kolefnisjöfnun til framtíðar - Upptaka

Á dögunum stóð Staðlaráð Íslands fyrir kynningarfundi á tækniforskrift um kolefnisjöfnun í samstarfi við Arion banka, Deloitte á Íslandi, Loftslagsskrá Íslands og Klappir. 

Yfirskrift fundarins var "Kolefnisjöfnun til framtíðar" þar sem kynnt var innihald tækniforskriftar ásamt því að fara yfir hver gagnsemi hennar verður fyrir fyrirtæki, stofnanir og loftslagsverkefni á Íslandi. 

Upptöku af fundinum má nálgast í spilaranum hér að neðan. 

Dagskráin var eftirfarandi: 

  • Opnunarávarp - Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs
  • Innihald tækniforskriftar - Guðmundur Sigbergsson, framkvæmdastjóri Loftslagsskrár Íslands
  • Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir fyrirtæki? - Gunnar S. Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni og loftslagsmála hjá Deloitte á Íslandi
  • Hvaða áhrif hefur þetta á sjálfbærniuppgjörið? - Þorsteinn Svanur Jónsson, stofnandi Klappa
  • Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir loftslagsverkefni? - Guðný Nielsen, stofnandi SoGreen og Ingibjörg Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Yggdrasill Carbon

Einnig flutti erindi á fundinum úttektaraðili að nafni Archit Srivastava frá fyrirtækinu Earthood, en því miður náðist ekki að taka upp hans kynningu. 

 

Tækniforskrift ÍST TS 92 - Kolefnisjöfnun má kaupa HÉR

Staðlaröðina ÍST EN ISO - 14064 má kaupa HÉR

 

Menu
Top