Fjölþjóðleg og alþjóðleg staðlasamtök
Viðamikið stöðlunarstarf er unnið víða um heim; á alþjóðavettvangi, í einstökum heimshlutum og í einstökum löndum.
Á alþjóðavettvangi fer samning staðla einkum fram á vegum Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO, Alþjóða raftækniráðsins IEC og Alþjóða fjarskiptasambandsins ITU.
Samevrópskri stöðlunarvinnu er stýrt af staðlasamtökunum CEN sem fer með stöðlun á almennum sviðum, CENELEC, sem sér um raftæknistöðlun, og ETSI sem sér um stöðlun á sviði fjarskiptatækni.
Staðlaráð Íslands fer samkvæmt lögum með umsjón staðlamála hér á landi og á aðild að CEN, CENELEC og ISO og aukaaðild að IEC og ETSI, auk þess að taka þátt í norræna stöðlunarsamstarfinu INSTA (Internordisk standardisering).
Staðlar frá CEN, CENELEC og ETSI fá auðkenninguna EN. Aðilar að samtökunum eru skuldbundnir til að gera alla EN-staðla að landsstöðlum og fella úr gildi landsstaðla sem fjalla um sama efni. Þegar staðlar frá CEN, CENELEC og ETSI eru staðfestir sem íslenskir staðlar bætist auðkenningin ÍST fyrir framan. Tuttugu og níu Evrópulönd eiga nú aðild að evrópsku staðlasamtökunum og því gilda EN-staðlarnir á stóru og fjölmennu svæði.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












