Staðlavaktin
Vöktun á staðlasafni viðskiptavina Staðlaráðs
Unnið er að því að setja upp vöktunarþjónustu sem viðskiptavinum Staðlaráðs stæði til boða.
Vöktunarþjónustan mun auðvelda viðskiptavini að tryggja að eingöngu sé stuðst við gildandi staðla (ÍST) ásamt viðeigandi leiðréttingum (corregendum) og viðbótum (amendment).
Þjónustan mun í stuttu máli ganga þannig fyrir sig:
Þegar ný útgáfa af staðli í vöktuðu staðlasafni hefur verið staðfest sem íslenskur staðall fær viðskiptavinurinn tölvupóst þar sem honum er boðið að panta nýju útgáfuna. Hann svarar með „já“ eða „nei“.
Með Staðlavaktinni mun viðskiptavinurinn hafa handhægt yfirlit yfir staðlasafn sitt á www.stadlar.is og aðgang að því með notandanafni og lykilorði. Lögð er áhersla á að auðvelt verði að stofna og meðhöndla safnið.
Þeir sem hefðu áhuga á að fá fréttir af þessari þjónustu þegar hún verður tilbúin geta sent okkur nafn og tölvupóstfang. Láta mig vita þegar Staðlavaktin verður klár ...
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












