Beint á leiðarkerfi vefsins

Fleiri fréttir

24.4.2012

Íslensk þýðing staðals um samfélagslega ábyrgð

Erindi þetta er sérstaklega ætlað þeim sem sýnt hafa áhuga á þýðingu og notkun alþjóðlegs staðals um samfélagslega ábyrgð, og eru þeir jafnframt hvattir til að kynna málið sem víðast.

Staðlaráð Íslands boðar til stofnfundar tækninefndar um íslenska þýðingu staðals um samfélagslega ábyrgð, ISO 26000:2010 Guidance on social responsibility.

Fundurinn verður haldinn hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2, fimmtudaginn 3. maí 2012 kl. 14:00 – 15:30.

Alþjóðlegi staðallinn ISO 26000 Guidance on social responsibility kom út í lok október árið 2010. Fljótlega vaknaði áhugi á að láta þýða staðalinn á íslensku og staðfesta hann sem íslenskan staðal. Á fyrri hluta ársins 2011 var af hálfu Staðlaráðs lögð nokkur vinna í að kynna staðalinn og í framhaldi af því var ráðist í að senda ýmsum fyrirtækjum og samtökum  beiðni um styrk til að afla fjár til þýðingar staðalsins. Síðla árs 2011 lágu síðan fyrir loforð um styrki sem þóttu nægja til þess að ákveðið var að ráðast í verkefnið.

29.3.2012

Vorfundur fagstaðlaráðs í upplýsingatækni 11. apríl

Vorfundur fagstaðlaráðs í upplýsingatækni (FUT)
miðvikudaginn 11. apríl kl. 8:15-10:30


Grand hótel Reykjavík – salur Háteigur A – Sigtúni 38

Dagskrá:

08:30 – 08:40 Fundur settur

08:40 – 09:30 Erindi og umræður:

  • Persónuverndarlög – Ný tilskipun
    Hörður Helgi Helgason, hæstaréttarlögmaður, Landslög
  • Rafrænar þinglýsingar
    Margrét Hauksdóttir, aðstoðarforstjóri Þjóðskrár Íslands

09:30 – 10:30 Vorfundarstörf:

1. Skýrsla FUT fyrir liðið starfsár
2. Starfs- og fjárhagsáætlun yfirstandandi árs
3. Breytingar á starfsreglum Engar breytingatillögur liggja fyrir
4. Kosning framkvæmdaráðs
5. Önnur mál

Vinsamlega staðfestið þátttöku á vorfundinum hér: Skráning

Einnig er hægt að tilkynna þátttöku með tölvupósti: steinunn@stadlar.is


4.1.2012

Stofnfundur tækninefndar um rafræna greiðslumiðlun 12. janúar


Boðað er til stofnfundar tækninefndar Fagstaðlaráðs í upplýsingatækni (FUT) um rafræna greiðslumiðlun fimmtudaginn 12. janúar kl. 13:30 – 15:00. Fundurinn fer fram hjá Staðlaráði Íslands að Skúlatúni 2 í Reykjavík.

 

Vinsamlega tilkynnið um áhuga á þátttöku í starfi nefndarinnar og mætingu á stofnfundinn til undirritaðrar sem fyrst. Þeir sem hyggja á þátttöku í nefndinni og eru ekki þegar aðilar að Staðlaráði Íslands munu fá sendar upplýsingar um aðild og umsóknareyðublað.

 

Á stofnfundinum verður:

  • Gerð grein fyrir reglum um störf tækninefnda Staðlaráðs og fyrirkomulagi á starfi tækninefnda FUT
  • Farið yfir tillögu að starfi nefndarinnar og ræddar hugmyndir að markmiðum, verkefnum og tímaramma
  • Leitað staðfestingar á þátttöku í tækninefndinni
  • Valinn formaður og tæknilegur ritari tækninefndarinnar.
  • Tímasettur fyrsti vinnufundur nefndarinnar

3.1.2012

Stofnfundur tækninefndar um stöðlun fiskikera 17. janúar

Fagstaðlaráð í fiskimálum, sem starfar undir hatti Staðlaráðs Íslands, boðar til stofnfundar tækninefndar um stöðlun fiskikera.


Fundurinn verður haldinn hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2, þriðjudaginn 17. janúar 2012 kl. 13:30 – 15:30
.

Fiskiker eru nokkuð mikið notuð hér á landi og er notkun þeirra einnig að aukast erlendis. Tveir innlendir aðilar eru umfangsmiklir í framleiðslu keranna og er hluti framleiðslunnar til útflutnings. Jafnframt er hér á landi framleiddur ásláttarbúnaður til nota við fiskiker frá öðrum framleiðendanda keranna.


Nokkur munur er á kerum innlendu framleiðendanna sem getur skapað viss vandamál varðandi notkun þeirra. Ekki er til staðall yfir fiskiker og hafa hagsmunaaðilar lýst yfir áhuga á að koma af stað starfi er leiði til staðals yfir fiskiker og ásláttarbúnað þeirra.

16.11.2011

Stofnfundur tækninefndar FUT um vinnustaðaskírteini 21. nóvember kl. 13:30

Erindi þetta er sérstaklega ætlað þeim sem talið er að hafi hagsmuna að gæta af þróun og notkun vinnustaðaskírteina. Þeir eru jafnframt hvattir til að kynna málið sem víðast.

 

Boðað er til stofnfundar tækninefndar FUT um vinnustaðaskírteini mándaginn 21. nóvember kl. 13:30 – 15:00. Fundurinn fer fram hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2 í Reykjavík.

 

Vinsamlega tilkynnið um áhuga á þátttöku í starfi nefndarinnar og mætingu á stofnfundinn með því að skrá ykkur á eftirfarandi síðu:  

Skráningarsíða >>  

Þeir sem hyggja á þátttöku í nefndinni og eru ekki þegar aðilar að Staðlaráði munu fá sendar upplýsingar um aðild og umsóknareyðublað.

Á stofnfundinum verður:

  • Gerð grein fyrir reglum um störf tækninefnda Staðlaráðs og fyrirkomulagi á starfi tækninefnda FUT.
  • Farið yfir tillögu að starfi nefndarinnar og ræddar hugmyndir að markmiðum, verkefnum og tímaramma.
  • Leitað staðfestingar á þátttöku í tækninefndinni.
  • Tímasettur fyrsti vinnufundur nefndarinnar.
  • Valinn formaður og tæknilegur ritari tækninefndarinnar.

Tækninefndir fagstaðlaráðs í upplýsingatækni, FUT, starfa í umboði framkvæmdaráðs FUT, samkvæmt reglum Staðlaráðs og fagstaðlaráðsins, en þær má finna á vefnum www.stadlar.is

Meginhlutverk tækninefndar um vinnustaðaskírteini verður að þróa og móta staðal um vinnustaðaskírteini, samkvæmt samkomulagi SA og ASÍ um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum frá 14. júní, 2010, með síðari breytingum.

Jafnframt verður tekið mið af því starfi sem á sér stað hjá evrópskum og alþjóðlegum staðlasamtökum eftir því sem við á. Starfstími nefndarinnar er ótímabundinn, en hún setur sér nánari markmið, verkefna- og tímaáætlun í samræmi við það umboð sem henni er gefið.

Tækninefndin er öllum þeim opin sem hafa hagsmuna að gæta á starfssviði nefndarinnar og eru reiðubúnir til að leggja fram þá vinnu, aðstöðu og/eða fjármagn sem þarf til að standa undir starfi nefndarinnar. Helstu hagsmunaðilum er sent þetta fundarboð, en til þeirra teljast hugbúnaðarfyrirtæki, prentsmiðjur,  verslunar- og veitingafyrirtæki,  þjónustuaðilar,  samtök í atvinnulífi og opinberir aðilar.

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Valdimarsdóttir í síma 520 7150 eða með tölvupósti, steinunn@stadlar.is

15.11.2011

Ný útgáfa ÍST 30 - Skýrari og auðveldari í notkun

Um þessar mundir er að koma út 6. útgáfa staðalsins ÍST 30 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkf-ramkvæmdir. Því er rétt að gera lítillega grein fyrir meginbreytingum frá fyrri útgáfu. Hér verður þó ekki gerð tilraun til að útlista einstaka breytingar eða efnisgreinar, enda hefur það þegar verið gert með kynningu endur-skoðunarinnar í umsagnarferli.

Samskiptareglur kaupenda og seljenda
ÍST 30 er væntanlega sá íslenski staðall sem einna mest er notaður. Hann var fyrst gefinn út 1969 og hefur verið endurskoðaður fjórum sinnum síðan, þ.e. 1979, 1988, 1997 og 2003. Þrátt fyrir þessa endurskoðun hefur meginhluti staðalsins staðið frá upphafi, sem sýnir að vel hefur verið vandað til hans og að notendur hafa verið tiltölulega ánægðir með innihald hans. ÍST 30 fjallar fyrst og fremst um samskiptareglur milli þeirra sem kaupa verk og þeirra sem selja verk og það er hinn markaði tilgangur með staðlinum. Vegna mikillar almennrar notkunar þarf staðallinn að vera skýr og framsetning eins einföld og unnt er. Staðallinn mun aldrei leysa öll mál sem upp koma milli verktaka og verkkaupa, en honum er samt ætlað það stóra hlutverk að kveða á um samskiptareglur milli aðila.

15.11.2011

Ávinningur af rafrænum reikningum - Góður kostur

TS 135 Tækniforskrift fyrir einfaldan rafrænan reikning - NES umgjörð 4 var gefin út haustið 2009. Innleiðing á rafrænum reikningumGeorg birgisson byggð á tækniforskriftinni hefur gengið vel. Af helstu aðilum sem taka við slíkum reikningum má nefna Fjársýslu ríkisins, Reykjavíkurborg, fjölda sveitarfélaga, auk nokkurra fyrirtækja á almennum markaði. Fjöldi birgja þessara aðila er þegar farinn að senda þeim staðlaða reikninga og fjölgar hratt í þeim hópi.

Kostir rafrænna reikninga
Kostir rafrænna reikninga fyrir útgefendur og móttakendur eru þónokkrir.
Útgefendur reikninga geta með innleiðingu á rafrænum reikningi samkvæmt TS 135 boðið öllum viðskiptamönnum sínum upp á rafræna reikninga á stöðluðu formi. Þeir geta einnig nýtt sér samtengingu á skeyta- og prentþjónustum sem bjóðast á markaði. Þeir geta gefið út alla sína reikninga á stöðluðu rafrænu formi en látið síðan þjónustuaðila um að koma rafrænt til skila þeim reikningum sem hafa rafræna móttakendur, en prenta og pósta aðra. Þannig er útgáfuferli reikninganna einfaldað til mikilla muna.

15.11.2011

Styrkflokkun á timbri - Norrænn timburstaðall á íslensku

Samnorrænn staðall sem fjallar um styrkflokkun á timbri fyrir mannvirki er kominn út á íslensku. Leitast var við að hafa staðalinn þannig að allir sem þekkja til efnistækni í timbri ættu auðvelt með að beita honum við flokkun.

Staðallinn heitir fullu nafni ÍST INSTA 142:2009 Norrænar reglur fyrir útlitsstyrkflokkun á timbri í burðarvirki.  Um er að ræða endurskoðaða útgáfu á stað-linum ÍST INSTA 142:1997.

Styrkflokkun og útlitsflokkun
Margar reglur eru til um flokkun á timbri, en slíkri flokkun má í stórum dráttum skipta upp í annars vegar útlitsflokkun og hins vegar styrkflokkun.

15.11.2011

Alþjóðlegir staðlar skapa traust um allan heim - Alþjóðlegi staðladagurinn 14. október

Alþjóðlegi staðladagurinn var 14. október. Af því tilefni sendu forystu-menn þriggja alþjóðlegra staðla-samtaka frá sér eftirfarandi ávarp.

Í nútímanum þurfum við að reiða okkur mjög á að hlutir virki eins og við ætlumst til
Þegar við tökum upp síma, þá göngum við út frá því að við getum hringt í hvaða annan síma sem vera skal á jörðu. Við gerum ráð fyrir að geta tengst við internetið og fengið þar fréttir og upplýsingar – strax. Þegar við verðum veik, treystum við á lækningatækin sem notuð eru til þess að hjúkra okkur. Þegar við keyrum bílinn okkar, þá treystum við því að vélin, stýrisbúnaðurinn og bremsukerfið og kerfið fyrir barnalæsingarnar séu áreiðanleg. Við göngum út frá því að við séum vernduð gagnvart rafmagnsbilunum og skaðlegum áhrifum mengunar.

15.11.2011

Reynsla okkar af vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi - ÍST EN ISO 14001

Pálmar SigurðssonHópbílar og Hagvagnar fengu vottun samkvæmt ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðlinum árið 2004. Fyrirtækin tvö eru undir sama þaki. Annars vegar Hagvagnar, sem eru verktakar hjá Strætó bs, og hins vegar Hópbílar, sem eru meira í ferðaþjónustu og almennum akstri. Þar sem fyrirtækin samnýta aðstöðu, lá beinast við að innleiða vottað umhverfis-stjórnunarkerfi  fyrir þau bæði.

Hvetur til umbóta
ISO 14001 er krefjandi staðall og bindur fyrirtækin við ýmis regluverk. Ég vil raunar kalla þetta innleiðingu á rekstrarkerfi þar sem verklagsreglur kerfisins snerta ekki eingöngu mikilvæga umhverfisþætti heldur flestalla þætti rekstursins, svo sem þjálfun og fræðslu, viðhald og eftirfylgni, svo eitthvað sé nefnt.
Innleiðing á rekstrarkerfum gerir stjórnendur meðvitaðri um reksturinn og hvetur til stöðugra umbóta. Í dag eru Hópbílar og Hagvagnar að vinna í því að innleiða heilsu- og öryggisstaðalinn OHSAS 18001, sem fellur vel að umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001. ISO 14001 er í raun umhverfis- og öryggisstaðall þar sem hann lágmarkar umhverfisþætti sem eru hættulegir, og með OHSAS 18001 er gengið enn lengra í öryggismálefnum.

15.11.2011

Betra aðgengi að stöðlum - Norrænt verkefni

Landsstaðlastofnanir Íslands, Danmerkur og Noregs standa sameigin-lega að verkefni um staðla og aðgengi að stöðlum. Á Íslandi erArngrímur Blöndahl verkefnið unnið í samvinnu Staðlaráðs og Samtaka iðnaðarins undir heitinu „Betra aðgengi að stöðlum“.

15.11.2011

Allir komnir - Þjóðarviðaukar við evrópska þolhönnunarstaðla

Undir lok síðasta árs tóku gildi ís-lenskir þjóðarviðaukar við evrópska þol-hönnunarstaðla, Eurocodes. Á sama tíma tók gildi breyting á íslenskri byggingar-reglugerð, sem kveður á um að öll þolhönnun mannvirkja á Íslandi skuli uppfylla kröfur evrópskra þolhönnunar-staðla Íslenskir Þjóðarviðaukar við evrópska þolhönnunarstaðlaásamt íslenskum þjóðarviðaukum.


Þjóðarviðaukar fyrir brúarstaðla
Íslensku þjóðarviðaukarnir eru samtals 58 að tölu. Viðaukarnir voru allir gefnir út í fyrstu atrennu, að undanskildum þeim sem eiga við brúarstaðlana, sem svo eru nefndir. Þeir viðaukar munu taka gildi nú í nóvember. Brúarstaðlarnir eru þessir:

  • ST EN 1991-2 Eurocode 1: Actions on structures - Part 2: Traffic loads on bridges
  • ÍST EN 1992-2 Eurocode 2 – Hönnun steinsteypuvirkja – Steyptar brýr – Hönnun og útfærslureglur
  • ÍST EN 1993-2 Eurocode 3 - Hönnun stálvirkja - Hluti 2: Stálbrýr
  • ÍST EN 1994-2 Eurocode 4 – Hönnun samsettra virkja úr stáli og steinsteypu – Hluti 2: Almennar reglur og reglur fyrir brýr
  • ÍST EN 1995-2 Eurocode 5: Hönnun timburvirkja - Hluti 2: Brýr

Með tilkomu þjóðarviðaukanna voru felldir úr gildi íslensku forstaðlarnir um þolhönnun (FS ENV), sem og danska staðlasettið ásamt íslenskum sérákvæðum. Frá og með 23. desember sl. var óheimilt að nota þá staðla.

15.11.2011

Sívinsæl bók - ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn

Út er komin í íslenskri þýðingu 3. útgáfa hinnar sívinsælu bókar, ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn. Með bókinni geta fyrirtæki notiðISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn leiðsagnar manna sem áttu stærstan þátt í gerð ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna og gerst þekkja hvernig taka á upp gæða-stjórnunarkerfi byggt á ISO 9001:2008. 
Bókin er nákvæm leiðsögn um kröfurnar í ISO 9001 og ómetanlegt stuðningsefni við kjarnastaðlana fjóra í ISO 9000 röðinni; ISO 9000, 9001, 9004 og 19011. 

15.11.2011

Örugg leið til að spara orku - Nýr staðall um orkustjórnun

„Orka er ekki lengur tæknilegt málefni heldur málefni sem varðar stjórnun og snertir grundvallaratriði, og rétti tíminn til þess að fást við það er núna.“

Þessi orð lét framkvæmdastjóri alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO falla á ráðstefnu nýlega, þar sem útgáfa staðalsins ISO 50001 var formlega kynnt. Staðallinn verður að íslenskum staðli í byrjun næsta árs og mun þá væntanlega heita fullu nafni ÍST EN ISO 50001 Orkustjórnunarkerfi – Kröfur ásamt leiðbeiningum um notkun.

15.11.2011

Gróðurhús, bakarí og prentsmiðjur - Verkefni um orkustjórnun

Norræni nýsköpunarsjóðurinn og Staðlaráð Íslands eru að hrinda af stað verkefni um orkustjórnun í litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Einnig koma að verkefninu staðlastofnanir í Noregi og Danmörku. Gróðurhús, bakarí og pren-t-smiðjur eru hvött sérstaklega til þess að taka þátt í verkefninu.

Ætlunin er að þróa hagnýt verkfæri í samvinnu við einstök fyrirtæki til að ná fram orkusparnaði með orkustjórnun. Fyrirtækin taka þátt í vinnuhópi þar sem þau fá ráðgjöf og fræðslu sér að kostnaðarlausu. Afrakstur verkefnisins verður gerður opinber þannig að reynslan af því geti nýst öðrum fyrirtækjum.

20.10.2011

Óskum eftir sérfræðingi

rafrænn_tæknimennStaðlaráð óskar eftir sérfræðingi til að vinna efni í tækniforskrift um reikningaferli. Innihald  tækniforskriftar skal taka mið af BII Profile 05 – Billing.

14.9.2011

ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn (3. útgáfa)

ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - LeiðsögnÚt er komin í íslenskri þýðingu 3. útgáfa hinnar vinsælu bókar, ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn. 

Með bókinni geta fyrirtæki notið leiðsagnar manna sem áttu stærstan þátt í gerð ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna og gerst þekkja hvernig taka á upp gæðastjórnunarkerfi byggt á ISO 9001:2008.
 
Bókin er ómetanlegt stuðningsefni við kjarnastaðlana fjóra í ISO 9000 röðinni; ISO 9000, 9001, 9004 og 19011. 

23.3.2011

Evrópskir þolhönnunarstaðlar - Eurocodes og íslenskir þjóðarviðaukar

Þann 23. desember sl. tóku gildi íslenskir þjóðarviðaukar við evrópska þolhönnunarstaðla, Eurocodes. Samtímis tók gildi breyting á Arngrímur Blöndahl, verkefnastjóri hjá Staðlaráði Íslands

íslenskri byggingarreglugerð, sem kveður á um að öll þolhönnun mannvirkja á Íslandi skuli uppfylla kröfur evrópskra þolhönnunarstaðla ásamt íslenskum þjóðarviðaukum.

23.3.2011

Þjóðarviðaukar við evrópska þolhönnunarstaðla - Grundun

Vinnuhópinn sem vann að gerð íslenskra þjóðarviðauka við Eurocode 7 Geotechnical design skipuðu auk undirritaðs, Jórunn Pálmi Ragnar Pálmason, verkfræðingur hjá Verkís verkfræðistofu

Halldórsdóttir frá Mannviti verkfræðistofu, Jón Skúlason frá Almennu verkfræðistofunni og Jón Skúli Indriðason frá Eflu verkfræðistofu.


Aðstoð staðkunnugra
Um viðbætur og áherslur sem vinnuhópurinn lagði til gildir í meginatriðum að breytingar miðast við að benda á séreinkenni íslenskra jarðefna og jarðlaga að því er tekur til grundunar, jafnframt að nefna rannsóknaaðferðir og gildi viðkomandi niðurstaðna sem hafa beri til hliðsjónar við mat á þeim jarðefnum og jarðlögum. Í þessu sambandi má t.d. nefna líklega efniseiginleika eldfjallaösku og burðargetu nútímahrauns.

23.3.2011

ISO 9004 - Góður, betri, bestur

Alþjóðlegi staðallinn ISO 9004 er kominn út í íslenskri þýðingu. Fullu nafni heitir staðallinn ÍST EN ISO 9004 Stjórnun sem miðar aðGunnar H. Guðmundsson viðvarandi árangri fyrirtækis – Gæðastjórnunarnálgun.


Stjórnun til viðvarandi árangurs
Hlutverk ISO 9004 var frá upphafi að útskýra ISO 9001 og að tengja staðalinn við stjórnun. ISO 9004 var ætlað að fjalla nánar um hvernig ætti að framfylgja ISO 9001. Í mínum augum var fyrri útgáfa staðalsins misheppnuð, og ég benti mönnum á að nota frekar bókina ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki til að kynnast og skilja ISO 9001.

23.3.2011

ISO 26000 - Staðall um samfélagslega ábyrgð

Þann 1. nóvember 2010 kom út nýr alþjóðlegur staðall um samfélagslega ábyrgð, ISO 26000, hjá Alþjóðlegu staðlasamtökunum, ISO.Guðrún Rögnvaldardóttir Staðalsins hefur verið beðið með meiri eftirvæntingu en venja er um nýja staðla.


Samfélagslega ábyrg frammistaða fyrirtækja og stofnana hefur m.a. áhrif á

  • samkeppnisforskot og orðspor,
  • möguleika á að laða til sín og halda í starfsfólk eða meðlimi, viðskiptavini, skjólstæðinga og notendur,
  • starfsumhverfi og framleiðni,
  • afstöðu fjárfesta, eigenda, styrktaraðila og fjármálageirans,
  • samskipti og sambönd við önnur fyrirtæki, stjórnvöld, fjölmiðla, birgja, samstarfs- og samkeppnisaðila, viðskiptavini og samfélagið sem starfað er í.

23.3.2011

Þjóðarviðaukar við evrópska þolhönnunarstaðla - Efnisstaðlar

Vinnuhópinn sem vann að gerð íslenskra þjóðarviðauka við neðangreinda efnisstaðla skipuðu auk undirritaðs, Baldvin Einarsson frá Snæbjörn KristjánssonEflu verk-fræðistofu og Eggert Valmundsson frá Verkís.

Byggt á reynslu og rannsóknum
Gerðir voru þjóðarviðaukar við steypustaðla, stálstaðla, timburstaðal, staðal um múrsteinshleðslur og álstaðla. Þjóðarviðaukar við staðla sem fjölluðu um brýr og brunavarnir voru ekki viðfangsefni efnisnefndar og verður því fjallað um þá af öðrum.

23.3.2011

Dregið úr sóun - Eitt hleðslutæki fyrir alla gemsa

Í júní árið 2009 skrifaði framkvæmda-stjórn ESB undir viljayfirlýsingu ásamt mörgum helstu farsímaframleiðendum heimsins. Í yfirlýsingunni féllust framliðendurnir á að samræma hleðslutæki fyrir svonefnda snjallsíma, sem seldir væru innan Evrópska efnahags-svæðisins. Ætlunin var að draga úr sóun með því að þeir sem endurnýjuðu farsíma sína þyrftu ekki jafnframt að kaupa sér ný hleðslu-tæki heldur gætu notað þau gömlu áfram.

23.3.2011

Rafbílar - Þýðingarmikill áfangi

Hvað skyldi vera langt þangað til Íslendingar aka almennt um á rafbílum? Hvenær verða bensínstöðvar að áfyllingarstöðvum fyrir rafbíla?Rafmagnáfylling Sennilega verður það innan fárra ára.
Í

slendingar munu væntanlega fylgja í fótspor mestu bílaþjóðar heimsins, Bandaríkjamanna, en þar eins og víðar eru uppi hugmyndir um að draga úr útblæstri CO2 með rafbílum. Obama forseti lýsti því yfir nýlega að hann vildi sjá eina milljón rafbíla á bandarískum vegum fyrir árið 2015.

23.3.2011

Þjóðarviðaukar við evrópska þolhönnunarstaðla - Álagsstaðlar

Vinnuhópinn, „álagsnefndina“, sem vann að gerð íslenskra þjóðarviðauka við neðangreinda álagsstaðla skipuðu auk undirritaðs, BjarnFlosi Sigurðsson, verkfræðingu hjá Verkís verkfræðistofui Bessason frá HÍ og Guðbrandur Steinþórsson frá HR.


Álagsnefndin vann að gerð þjóðarviðauka við staðla sem fjölluðu um álagsforsendur, ÍST EN 1990 EUROCODE 0, álag á mannvirki, ÍST EN 1991 EUROCODE 1 og staðalinn um þolhönnun mannvirkja gagnvart jarðskjálftaálagi ÍST EN 1998 EUROCODE 8. Nefndin fjallaði þó ekki um brunaálag (hluta 1-2 í EUROCODE 1) þar sem það var í höndum annars vinnuhóps.

23.3.2011

Samlokufundur - Kynning á tillögum vinnuhóps um endurskoðun ÍST 30

Á Samlokufundi Verkfræðingafélagsins í febrúar voru kynntar tillögur vinnuhóps sem unnið hefur að endurskoðun staðalsins ÍST 30:2003 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir.

Frummælendur á fundinum voru Rögnvaldur Gunnarsson, verkfræðingur og formaður vinnuhópsins, og Arngrímur Blöndahl verkefnisstjóri bygginga- og gæðamála hjá Staðlaráði Íslands.

Gera má ráð fyrir að frumvarp að nýrri útgáfu ÍST 30 verði auglýst til umsagnar í vor og að nýr staðall taki gildi á haustmánuðum.

Samlokufundurinn var haldinn í Verkfræðingahúsi og var vel sóttur.

Rögnvaldur Gunnarsson útlistaði tillögur vinnuhópsins fyrir fundargestum.

18.1.2011

Staðlapósturinn - rafrænt fréttabréf Staðlaráðs

GERAST ÁSKRIFANDI >> 


Staðlapósturinn 12. október 2011

Meðal efnis:

  • Alþjóðlegi Staðladagurinn 14. október - Ávarp
  • Verkefni um betra aðgengi að stöðlum

Staðlapósturinn 14. september 2011

Meðal efnis:

  • ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - bók
  • Staðall á íslensku um flokkun timburs

Staðlapósturinn 10. mars 2011

Meðal efnis:

  • Rafbílar - Mikilvægur áfangi
  • Námskeið um hagnýtingu rafrænna reikninga

Staðlapósturinn 17. janúar 2011

Meðal efnis:

  • Útkoma íslenskra þjóðarviðauka við evrópska þolhönnunarstaðla
  • Námskeið Staðaráðs á vorönn
  • ÍST EN ISO 9004 Stjórnun sem miðar að viðvarandi árangri fyrirtækis - Gæðastjórnunarnálgun

13.1.2011

ÞJÓÐARVIÐAUKAR VIÐ ÞOLHÖNNUNARSTAÐLA KOMNIR ÚT

Þjóðarviðaukar með sérákvæðum við evrópska þolhönnunarstaðla, Eurocodes, tóku gildi 23. desember 2010.

Jafnframt voru Þjóðarskjöl fyrir evrópska þolhönnunarstaðla, EUROCODESfelldir úr gildi þolhönnunarforstaðlar, FS ENV Eurocodes, ásamt tilheyrandi þjóðarskjölum. Einnig danskir þolhönnunarstaðlar ásamt eftirfarandi séríslenskum stöðlum sem giltu með þeim:

• ÍST 12 Álagsforsendur

• ÍST 14 Steinsteypuvirki

• ÍST 15 Grundun

Gefin hefur verið út bók sem inniheldur íslenska þjóðarviðauka við alla evrópsku þolhönnunarstaðlana. Þjóðarviðaukarnir eru eingöngu á ensku, eins og þolhönnunarstaðlarnir sem þeir eiga við.


SÝNISHORN >> pdf

PANTA BÓK MEÐ ÞJÓÐARVIÐAUKUM >>

14.10.2010

Gróska - Stöðlun í þjónustugreinum

Mikil gróska er í stöðlun innan þjónustugreina. Til vitnis um það má nefna staðla um útfararþjónustu, flutning búslóða, þjálfun Guðrún Rögnvaldardóttirleiðsögu-manna, póstþjónustu, ræstinga-þjónustu og margt fleira.

 

Örugg og fagleg þjónusta
Þjónustutilskipun Evrópusambandsins frá 2006 miðar að því að útrýma tæknilegum viðskiptahindrunum í viðskiptum með þjónustu milli landa og að auðvelda aðilum að setja á laggirnar þjónustustarfsemi í hvaða landi innri markaðarins sem er. Tilskipunin hnykkir á réttindum viðtakenda þjónustu, sem geta verið neytendur eða fyrirtæki. Jafnframt miðar þjónustutilskipunin að því að auka gæði þjónustu og upplýsingaflæði og gagnsæi við veitingu þjónustunnar.

14.10.2010

Alþjóðlegi staðladagurinn 14. október 2010 - Staðlar auðvelda aðgengi allra

Í heiminum búa að minnsta kosti 650 milljónir manna við einhvers konar fötlun. Fjórðungur allra borgara í þróuðum löndum er eldri en 60 ára. Árið 2050 munu þróunarlöndin hafa náð sama marki.


Nýtast öllum
Aðgengi er sífellt meira knýjandi eftir því sem meðalaldur fólks vex og fólk með fötlun krefst í auknum mæli sama aðgengis og aðrir, í félagslífi, stjórnmálum og efnahagslífi. Fyrir fatlaða, eins og ófatlaða, er aðgegni að upplýsingum og samskiptatækjum jafnmikilvægt og að geta notað lyftur, komist inn í byggingar, ferðast, eða kveikt á tæki og notað á öruggan máta.

 

Aðgengi er ekki aðeins mikilvægt fyrir eldra fólk og fatlaða. Allir geta, hvenær sem er á lífsleiðinni, þurft að glíma tímbabundið við skert aðgengi. Þá geta einföld hversdagsleg verk orðið mjög flókin. Alþjóðlegir staðlar leiðbeina framleiðendum um hvernig hanna á vöru og þjónustu sem er aðgengileg fyrir alla. Vel hönnuð skábraut fyrir hjólastól, sem er í samræmi við alþjóðlegan staðal, getur reynst gagnleg fyrir nýbakaða móður með barnavagn. Tæki með stórum rofa getur gert einhverjum auðveldara fyrir sem er meiddur á hönd. Skynjari sem hindrar að dyr lokist getur komið í veg fyrir slys á þeim sem er hreyfihamlaður vegna bakmeiðsla. Litli upphleypti punkturinn á hnappi 5 á símanum gerir auðveldara að finna númerin – kemur sér vel fyrstu dagana eftir augnaðgerð.


Alþjóðlegir staðlar auðvelda aðgengi allra að vörum, byggingum og þjónustu. Staðlarnir innihalda atriði sem varða öryggi, vinnuvistfræði og samræmdar prófunaraðferðir. Staðlar eru einnig vett-vangur fyrir útbreiðslu tækninýjunga, bæði í þróuðum ríkjum og í þróunarríkjum. Þeir flýta fyrir stækkun markaða og auka heimsviðskipti.


IEC, ISO og ITU samræma starfsemi sína og bjóða upp á stöðlunarkerfi sem auðveldar hönnuðum, framleiðendum og þeim sem sjá um stefnumörkum, að gera heiminn öruggari og aðgengilegri fyrir alla, bæði nú og til framtíðar.


Jacques RÉGIS, Forseti IEC.
Dr. Alan MORRISON, forseti ISO.
Dr. Hamadoun TOURÉ, framkvæmdastjóri ITU.

14.10.2010

Leikvallastaðlar - Ábyrgð fylgir rekstri leiksvæða

 Örn AlexanderssonÁrið 2002 kom út reglugerð nr. 942 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Markmið reglu-gerðarinnar er að stuðla að öryggi barna og annarra með því að tryggja að leikvallatæki og leiksvæði séu hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan og viðurkenndan hátt.

14.10.2010

Haustönn - Námskeið á næstunni

Staðlaráð heldur námskeið um notkun staðla, almenn námskeið sem og sérnámskeið fyrir fyrirtæki, félög og stofnanir. Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á námskeið sem hafa skýr námsmarkmið og skila þátttakendum aukinni færni.

 

Hagnýting rafrænna reikninga - 7. október
Námskeið fyrir fjármálastjóra og fram-kvæmda-stjóra sem vilja nýta hagræði af rafrænum reikningum.

MARKMIÐ námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á nýtingu staðlaðra rafrænna reikninga. Hvernig nota má rafræna reikninga til aukins hagræðis, draga úr kostnaði, auka skilvirkni við sendingu og móttöku og úrvinnslu reikninga í bókhaldi.

7.9.2010

Stofnun tækninefndar um rafræna flutningakeðju 15. september

Boðað er til stofnfundar tækninefndar FUT um rafræna flutningakeðju miðvikudaginn 15. september kl. 14:00 – 15:30. Fundurinn fer fram hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2, Reykjavík

 

Hlutverk tækninefndarinnar
Meginhlutverk tækninefndar um rafræna flutningakeðju verður að þróa og móta tækniforskriftir og staðla fyrir rafræna miðlun upplýsinga á milli viðskiptaaðila og þjónustuaðila flutningskeðjunnar. Upplýsingarnar geta meðal annars varðað tollafgreiðslu vörunnar, innflutning hennar, afhendingu í og úr vöruhúsi, birgðabreytingar, afstemmingu birgða, staðsetningu vörunnar, ástand hennar og umhverfisaðstæður.

Jafnframt verður tekið mið af því starfi sem á sér stað hjá evrópskum og alþjóðlegum staðlasamtökum. Starfstími nefndarinnar er ótímabundinn, en hún setur sér nánari markmið, verkefna- og tímaáætlun í samræmi við það umboð sem henni er gefið.

14.6.2010

Stefna FUT og Icepro 2010 - 2012

Á vorfundi FUT nú í apríl samþykkti fagstaðlaráð í upplýsingatækni stefnuna Rafræn viðskipti - Stefna fyrir íslenskt atvinnulíf og hið opinbera 2010 - 2012 sem varðar innleiðingu rafrænna viðskiptaskjala og er sameiginleg með Icepro, samstarf um rafræn viðskipti.

13.6.2010

Vorfundur FUT haldinn 29. apríl

Vorfundur FUT var haldinn 29. apríl á Grand hótel. Fundurinn hófst með kynningum á störfum tveggja tækninefnda FUT og síðan tóku við hefðbundin vorfundarstörf. 

Kynningar á vorfundi:

17.5.2010

Íslenskt öskufall og alþjóðlegur staðall

Öskufallið frá gosinu í Eyjafjallajökli hefur raskað flugumferð í heiminum þannig að þess finnast engin fordæmi.
Eldgos eru síður en svo óþekkt fyrirbrigði og því eru margir undrandi á hve flugið stendur berskjaldað gegn öskufallinu. Sú er að minnsta kosti skoðun Kevin W. Knight, en hann leiddi vinnu við gerð alþjóðlegs staðals um áhættustjórnun, sem kom út undir lok síðasta árs. Staðallinn heitir ISO 31000 Risk management -- Principles and guidelines, og er nú notaður til þess að bæta úr andvaraleysinu og meta hættuna sem flugrekstri í heiminum stafar af eldgosum og fleiri þáttum sem ef til vill hafa verið vanmetnir hingað til.

ISO 31000 fjallar almennt um áhættustjórnun, líkt og nafnið gefur til kynna, og nýtist þess vegna í hvers konar rekstri, en ekki aðeins í flugrekstri. Staðallinn er fáanlegur hjá Staðlaráði Íslands, eins og aðrir alþjóðlegir staðlar.

6.5.2010

Frumvöp að íslenskum þjóðarviðaukum

Frumvöp að íslenskum þjóðarviðaukum fyrir evrópska þolhönnunarstaðla hafa verið Frumvörp að þjóðarviðaukumauglýst til umsagnar. Umsagnarfrestur er til 1. ágúst.

Hægt er að kaup frumvörpin hér og nú í einu setti á 14.500 kr. Þeir sem það gera fá alla íslensku þjóðarviðaukana senda í einu hefti um leið og þeir hafa verið samþykktir sem íslenskir staðlar, á frekari greiðslu.

Settið með frumvörpunum má panta hér >>

 

Nánari upplýsingar veitir Arngrímur Blöndahl í síma 5207150, arngrimur@stadlar.is

9.4.2010

Fundur 13. apríl: Staðall um hljóðvist í íbúðar- og atvinnuhúsnæði

HljóðstaðallÞriðjudaginn 13. apríl kl. 12.00 – 13.00 verða kynnt drög að nýjum staðli um hljóðvist í íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Fundurinn verður haldinn í húsi verkfræðinga að Engjateigi 9.

  • Jón Sigurjónsson, formaður Byggingarstaðlaráðs, kynnir vinnu hljóðvistarhóps Byggingarstaðlaráðs.
  • Steindór Guðmundsson hjá Verkís fjallar almennt um væntanlegan staðal staðal og breytingar sem munu verða þegar staðallinn leysir af hólmi ÍST 45 Hljóðvist – Flokkun íbúðarhúsnæðis.
  • Bergþóra Kristinsdóttir hjá Eflu kynnir dæmigerða kafla úr staðlinum.
  • Sigurður Karlsson hjá Vinnueftirlitinu fjallar um hljóðísogsflokka fyrir atvinnuhúsnæði.
  • Almennar umræður.

Nánari upplýsingar gefur Arngrímur Blöndahl í síma 5207150 eða netfangi arngrimur@stadlar.is

22.3.2010

Samlokufundur í Verkfræðingahúsi 24. mars kl. 12:00 - Íslenskir þjóðarviðaukar við evrópska þolhönnunarstaðla

Miðvikudaginn 24. mars kl. 12.00 – 13.30 verður haldinn hádegisfundur þar sem kynnt verða drög að íslenskum þjóðarviðaukum  við evrópska þolhönnunarstaðla. Fundurinn verður haldinn í húsi verkfræðinga að Engjateigi 9. BSTR byggingastaðlaráð

  

  

Dagskrá fundarins: 

1. Inngangur/ Jón Sigurjónsson formaður Byggingarstaðlaráðs

2. Kynning á vinnu einstakra hópa

  • Álagshópur /  Bjarni Bessason, prófessor við HÍ
  • Efnishópur /  Snæbjörn Kristjánsson hjá Ferli
  • Grundun /  Jón Skúli Indriðason hjá Eflu
  • Brunamál /  Benedikt Jónsson hjá Brunamálastofnun
  • Brúarmál /  Einar Hafliðason hjá Vegagerðinni


3. Almennar umræður

Frekari upplýsingar gefur Arngrímur Blöndahl í síma 5207150 eða netfangi arngrimur@stadlar.is

11.3.2010

Tækninefnd FUT stofnar nýja BII vinnuhópa

Tækninefnd um grunngerð rafrænna viðskipta hefur stofnað þrjá nýja vinnuhópa til að vinna að útgáfu næstu CEN BII tækniforskrifta. Hóparnir sem stofnaðir hafa verið munu vinna að uppfærslu rafræns reiknings í BII 04 - Basic Invoice og útgáfu BII 05 - Billing (kreditreikningur) og BII 03 - Basic Order (rafræn pöntun).

8.3.2010

TS 135 Einfaldur rafrænn reikningur – NES umgjörð 4

Rafrænn reikningurTækniforskriftin þjónar sem leiðarvísir fyrir forritara hugbúnaðarkerfa og aðra þá sem koma að innleiðingu rafrænna reikninga í fyrirtækjum og stofnunum.

 

Fjallað er um TS 135 í Staðlamálum, fréttabréfi Staðlaráðs >>

 

Aðrir tenglar sem tengjast TS 135 >>

 

PANTA TS 135 >>

2.3.2010

STAÐALVÍSIR - Handbók um ÍST 200 Raflagnir bygginga

Í bókinni er að finna skýringar og dæmi sem auðvelda notkun staðalsins ÍST 200 Raflagnir bygginga.Panta handbók um ÍST 200

Bókin er ætluð hönnuðum, rafiðnaðarmönnum og nemendum í rafiðnaði á öllum skólastigum.

Nánari upplýsingar og pantanir >>

2.3.2010

Námskeið 4. mars: Tæknileg innleiðing rafrænna reikninga

NÝTT! Rafrænn reikningur - Tæknileg innleiðing Námskeið fyrir TÆKNIMENN sem annast útfærslu og innleiðingu á rafrænum reikningum.

 

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur öðlist skilning
á uppbyggingu staðla fyrir rafræna reikninga og geti innleitt slíka reikninga samkvæmt tækniforskriftini TS 135.

 

Nánari upplýsingar og skráning >>

25.2.2010

STAÐALVÍSIR - Handbók um staðalinn ÍST 200

Rafstaðlaráð – RST hefur gefið út handbók um staðalinn ÍST 200 Raflagnir bygginga. Handbókin erMagnús Kristbergsson hugsuð sem viðbótarlesning þar sem notendur staðalsins geta fengið ítarlegar útskýringar og fjölmörg dæmi um notkun hans. Til að auðvelda notkun handbókarinnar eru notuð sömu kaflanúmer og sömu kaflaheiti eins og í staðlinum.

25.2.2010

Vottuð umhverfisstjórnunarkerfi - Útbreiðsla ISO 14001 vex stöðugt

Útbreiðsla ISO 14001 vex stöðugtNú eru liðin 14 ár síðan alþjóðlegi  ISO 14001 staðallinn um Helga Jóhanna Bjarnadóttirumhverfis-stjórnun var gefin út. Staðallinn er stjórnunarstaðall sem lýsir því hvernig koma má á  virkri umhverfisstjórnun í hvaða rekstri sem er. Útbreiðsla ISO 14001 staðalsins hefur verið mjög mikil um heim allan og fer stöðugt vaxandi. Í upphafi voru það iðnfyrirtæki og alþjóðlegar fyrirtækjasamsteypur sem kölluðu eftir staðli um umhverfisstjórnun. Fljótlega jukust vin-sældir staðalsins og útbreiðsla hans náði til bæði stórra og smárra fyrirtækja í framleiðslu  og þjónustu. Í dag er þetta sá grunnur að umhverfisstjórnun sem er lang-útbreiddastur og þekktastur í heiminum.

25.2.2010

CE-merking véla - Ný reglugerð um vélar og tæknilegan búnað

Um áramótin tók gildi ný reglugerð um vélar og tæknilegan búnað. Reglugerðin er sett til innleiðingar Helgi Haraldsson á nýrri vélatilskipun Evrópusambandsins og leysir af hólmi eldri reglur frá árinu 2001. Reglugerðin snýr sérstaklega að hönnuðum og þeim sem framleiða eða smíða vélar og tæki og lýsir þeim kröfum sem búnaðurinn skal uppfylla.
Nokkrar breytingar verða við þetta og þær helstar að inn kemur ákvæði varðandi áhættumat og jafnframt er nú skýrara en áður að CE-merkja skuli búnað sem heyrir undir gildissvið reglugerðarinnar þegar hann er smíðaður eða framleiddur og að EB-samræmisyfirlýsing skuli liggja fyrir.

25.2.2010

Gæðastaðlar bæta skólastarf - ISO 9001

Framhaldsskólar eiga að bjóða nemendum bestu þjónustu sem fáanleg er á hverjum tíma. Í löguMargrét Friðriksdóttirm er kveðið á um að sérhver framhaldsskóli á landinu eigi að innleiða aðferðir til að meta skólastarfið, þar á meðal kennslu- og stjórnunarhætti, samskipti innan skólans og tengsl við aðila utan hans. Á fimm ára fresti skal utanaðkomandi aðili gera úttekt á sjálfsmatsaðferðum skólans.

24.2.2010

STAÐALVÍSIR - Handbók um ÍST 200 Raflagnir bygginga

Í bókinni er að finna skýringar og dæmi sem auðvelda notkun staðalsins ÍST 200 Raflagnir bygginga.Panta handbók um ÍST 200

Bókin er ætluð hönnuðum, rafiðnaðarmönnum og nemendum í rafiðnaði á öllum skólastigum.

9.2.2010

Námskeið um gæðaúttektir 18. febrúar

ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Innri úttektir samkvæmt ISO stækkunargler19011

Námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir samkvæmt staðli eða þurfa að þekkja hvernig innri úttektir ganga fyrir sig. 

Nánari upplýsingar og skráning >>

 

 

9.2.2010

Þýddir alþjóðlegir staðlar með 25% afslætti - ISO 9001 með 30% afslætti

Kynningarafsláttur á alþjóðlegum stöðlumAuk þess að bjóða íslenska þýðingu ISO 9001:2008 með 30% kynningarafslætti hefur Staðlaráð ákveðið að bjóða valda þýdda alþjóðlega staðla með 25% afslætti. Þannig vill Staðlaráð koma til móts við viðskiptavini vegna mjög óhagstæðrar gengisþróunar undanfarna mánuði.

Eftirtaldir staðlar fást með 25% afslætti. ÍST EN ISO 9001 fæst með 30% afslætti:

7.1.2010

Tæknileg innleiðing rafrænna reikninga

Rafrænn reikningur - Tæknileg innleiðing

 

Námskeið fyrir TÆKNIMENN sem annast útfærslu og innleiðingu á rafrænum reikningum.

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur öðlist skilning á uppbyggingu staðla fyrir rafræna reikninga og geti innleitt slíka reikninga samkvæmt tækniskýrslunni TS 135.

 

Dagskrá og nánari upplýsingar >>

7.1.2010

Hagnýting rafrænna reikninga

 Rafrænn reikningur

Fyrir stjórendur sem vilja nýta hagræði af rafrænum reikningum.

 

 

MARKMIРnámskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á nýtingu staðlaðra rafrænna reikninga. Hvernig nota má rafræna reikninga til aukins hagræðis, draga úr kostnaði, auka skilvirkni við sendingu og móttöku og úrvinnslu reikninga í bókhaldi.

 

Dagskrá og nánari upplýsingar >>

23.11.2009

Er ISO best falda stjórnunarleyndarmálið? - ISO stjórnunarstaðlar fyrir alla

Ráðstefna fimmtudag 26. nóvember á  kl. 9-12 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur

 

Jafnt fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í gæðastjórnun og þá sem hafa nú þegar vottuð gæðakerfi.

 

Ráðstefnan er haldin í boði Stjórnvísi, Orkuveitunnar og Staðlaráðs.

 

Nánari upplýsingar og skráning >>

2.11.2009

NÁMSKEIÐ 12. nóvember: ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði uppbygging og notkun

ISO 9001:2008

 

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.

 

Nánari upplýsingar >> 

2.11.2009

Stofnfundur um grunngerð vefþjónustu banka og sparisjóða

FAGSTAÐLARÁÐÍ UPPLÝSINGATÆKNI (FUT) boðar til stofnfundar tækninefndar föstudaginn 13. nóvember kl. 13:00 - 14:30 hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2, Reykjavík.

 

Megin hlutverk tækninefndar um sambankaskema verður að þróa og móta tækniforskriftir og staðla fyrir opið og staðlað umhverfi vefþjónustu banka og sparisjóða á Íslandi.

 

Vinsamlega tilkynnið um áhuga á þátttöku í starfi nefndarinnar og mætingu á stofnfundinn til Guðbjargar Björnsdóttur fyrir hádegi 11. nóvember. Þeir sem hyggja á þátttöku í nefndinni og ekki
eru þegar aðilar að Staðlaráði Íslands munu fá sendar upplýsingar um aðild og umsóknareyðublað.

 

Nánari upplýsingar er að finna í eftirfarandi skjali:
pdfhnappurStofnfundur - Fundarboð ( pdf, 59 kb )


 

12.10.2009

Tækniforskrift fyrir einfaldan rafrænan reikning - TS 135

Þann 14. október gefur Staðlaráð út tækniforskriftina TS-135  Einfaldur rafrænn reikningur – NES umgjörð 4. Sama dag verður opnaður nýr vefhluti um rafræn viðskipti á vef upplýsinga-samfélagsins ut.is. Þessi atburður er mikilvægur áfangi í mótun grunngerðar fyrir rafræn viðskipti á Íslandi sem byggir á miðlun upplýsinga um Internetið.

Rúnar Már Sverrisson

Ragnar T. JónassonLaufey Erla Jóhannesdóttir

12.10.2009

Helstu verkefni Byggingarstaðlaráðs BSTR

Arngrímur Blöndahl

Á vegum Byggingarstaðlaráðs (BSTR) er um þessar mundir unnið að átta séríslenskum staðlaverkefnum. Hvert verkefni er unnið af hópi sérfræðinga og ráðgjafa sem hittast að jafnaði á tveggja vikna fresti. Ætla má að liðlega 40 sérfræðingar og ráðgjafar sinni þessari vinnu.

12.10.2009

Alþjóðlegi staðladagurinn -Orka, umhverfi og staðlar

Guðrún Rögnvaldardóttir

Alþjóðlegi staðladagurinn er 14. október ár hvert. Að þessu sinni er hann helgaður loftslagsbreytingum og vakin er athygli á hvernig staðlar geta komið að gagni í baráttunni gegn þeim.
Staðlar koma m.a. að gagni

  • við að mæla og fylgjast með losun gróðurhúsalofttegunda,
  • við hönnun og smíði orkusparandi bygginga, búnaðar og tækja,
  • við stjórnun orkunotkunar og orkunýtni.

12.10.2009

Alþjóðlegur staðall um samfélagslega ábyrgð - ISO 26000

Samfélagsleg ábyrgð

Væntanlegur er staðall um sam-félagslega ábyrgð. Fram til 14. febrúar á næsta ári geta aðildarlönd að Alþjóðlegu staðlasamtökunum, ISO, gert athuga-semdir við frumvarpið að nefndum staðli. Þar með talið Ísland. Verði frumvarpið samþykkt, þá verður staðallinn – líkt og aðrir staðlar - til frjálsra afnota. Fyrirtæki og stofnanir sem sjá sér hag í að nota staðalinn gera það sem sagt af fúsum og frjálsum vilja.

9.10.2009

Lyklar að hraða og hagræðingu - Ráðstefna á Grand Hótel 14. október kl. 13 - 17

 Rafrænn reikningur

Skýrslutæknifélag Íslands og FUT, fagstaðlaráð Staðlaráðs í upplýsingatækni, efna til ráðstefnu á alþjóðlega staðladaginn um rafræn viðskiptaskjöl og tengda þjónustu.   Fjallað verður um efnið frá ýmsum sjónarhornum og leitast við að svara eftirtöldum spurningum:

  • Hvernig er rafrænn reikningur útbúinn?
  • Hvaða þjónusta er í boði fyrir rafræn viðskiptaskjöl?
  • Hver er ávinningur og hagur notenda?
  • Hvað þurfa hugbúnaðarhús að hafa í huga?

Nánari upplýsingar og skráning >>

9.10.2009

NÁMSKEIÐ 22. október: Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 27001 - Lykilatriði, uppbygging og notkun

fólk, fjórskipt

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum.

Nánari upplýsingar og skráning >>

9.10.2009

NÁMSKEIÐ 12. nóvember: ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði uppbygging og notkun

ISO 9001:2008

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.

Nánari upplýsingar >> 

3.9.2009

Drög að tækniforskrift - Athugasemdir óskast fyrir 7. september

Gerð hafa verið gerð drög að tækniforskrift fyrir einfaldan rafrænan reikning. Tækniforskriftin lýsir því hvernig setja á upp rafrænan reikning þannig að hann falli að skilgreiningum NES, Northern European Subset, umgjörð 4.

Tækniforskriftin var unnin af tækninefnd Staðlaráðs Íslands um grunngerð rafrænna viðskipta. Stefnt er að því að gefa drögin út sem tækniforskrift síðar í þessum mánuði með þeim breytingum sem þörf kann að verða á.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Björnsdóttir hjá Staðlaráði.

 

Athugasemdir við tækniforskriftina þurfa að berast Guðbjörgu fyrir kl. 11:00 mánudaginn 7. september.

3.9.2009

Námskeið 24. september

ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Innri úttektir samkvæmt ISO stækkunargler19011

Námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir samkvæmt staðli eða þurfa að þekkja hvernig innri úttektir ganga fyrir sig. 

 

Nánari upplýsingar  >>

 

 

23.6.2009

Helstu verkefni Byggingarstaðlaráðs

ByggingarstaðlaráðÁ vegum Byggingarstaðlaráðs (BSTR) er um þessar mundir unnið að fimm séríslenskum staðlaverkefnum. Hvert verkefni er unnið af hópi sérfræðinga og ráðgjafa sem hittast að jafnaði á tveggja vikna fresti. Ætla má að liðlega 40 sérfræðingar og ráðgjafar sinni þessari vinnu. Vinnuhóparnir samanstanda af ráðgjafaverkfræðingum, verkfræðingum úr háskólasamfélaginu og fleirum sem hagsmuni hafa af  staðlastarfi. Umrædd verkefni eru þessi:

23.6.2009

ÍST 150 Raf- og fjarskiptalagnir fyrir íbúðarhúsnæði – Gerð, staðsetning og fjöldi tengistaða

ÍST 150

Ný útgáfa staðalsins tók gildi 15. Júní.  Tækninefndin var skipuð fulltrúum frá Neytendasamtökunum, SART, Rafiðnaðarsambandinu, Símanum, Eflu verkfræðistofu, Rafiðnaðarskólanum, Orkuveitu Reykjavíkur, Epal og Staðlaráði. Ný útgáfa staðalsins var löguð að að breyttum markaði og breytingum sem hafa orðið á reglugerðum.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Sigurðarson hjá Staðlaráði.

Panta ÍST 150 >>

23.6.2009

Staðlar seljast vel í kreppu - Úr ræðu formanns á aðalfundi Staðlaráðs

„Engin er búmaður nema hann kunni að barma sér“ segir íslenskt máltæki – en þrátt fyrir hrun bankanna og snarpan samdrátt í atvinnulífinu kemur rekstur Staðlaráðs vel út og það sem gleður okkur sérstaklega er að staðlar seljast vel í kreppu. Kannski ætti það ekki að koma okkur á óvart. Þegar kreppir að opnast augu manna fyrir gildi þess að nota undirstöðuform, kvarða, viðmið,  fyrirmyndir sem er það sem staðall er, samkvæmt orðabókum.

1.4.2009

Ný útgáfa - ISO 9001:2008 í íslenskri þýðingu

Gunnar H. Guðmundsson

Ég beið í eftirvæntingu eftir nýrri útgáfu af ISO 9001. Fréttirnar af breytingunum bentu til að tekið yrði á mikilvægum atriðum. Meiri áhersla yrði lögð á forystu og ábyrgð stjórnenda. Skýrari umfjöllun yrði sett fram um útvistaða starfsemi. Lagfæringar yrðu gerðar á nokkrum stöðum sem voru til óþæginda. Það átti ekki að breyta líkaninu sem rammar inn staðalinn.

1.4.2009

TS 151 - Tæknireglur um fjarskipta-lagnir í íbúðarhúsnæði

TS 151

Í byggingareglugerð er engar reglur að finna um fjarskiptalagnir. Þar af leiðandi hafa hönnuðir og seljendur fjarskiptalagna  ekki haft staðlaðar kröfur til að vinna eftir og húseigendur ekki haft tæknilegt viðmið í viðskiptum sínum.  Tæknisforskriftin TS 151:2009 kemur því til móts við brýna þörf.

1.4.2009

Jöfn laun - Jafnlaunavottun mun marka tímamót

Hildur Jónsdóttir 2

Á degi Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári, 24. október, sem hér er í minnum hafður fyrir kvennafrídaginn á sínum tíma, var brotið í blað í sögu baráttunnar fyrir launajafnrétti kynjanna hér á landi. Þá undirrituðu félags- og tryggingamála-ráðherra, forseti Alþýðusambands Íslands og aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sameiginlegt erindi til Staðlaráðs um gerð staðals um launajafnrétti og jafna möguleika kynjanna til starfa og starfsþróunar. Erindið grundvallast á bráðabirgða-ákvæði nýrra jafnréttislaga sem Alþingi samþykkti í febrúar 2008 og sameigin-legri jafnréttisbókun ASÍ og SA í tengsl-um við gerð kjarasamninga um sama leyti. Bráðabirgðaákvæðið setur verk-efninu bjartsýnan tímaramma, því þar er kveðið á um að verkinu skuli lokið fyrir árslok 2009.

1.4.2009

Viðskipti - Rafrænir reikningar

Ragnar T. Jónasson

Fagstaðlaráð í upplýsingatækni, FUT, setti sér í upphafi árs  2008 það metnaðarfulla markmið að skilgreina íslenska grunngerð rafrænna viðskipta. Stofnaður var vinnuhópur sem í eru fulltrúar atvinnulífs og ríkisins. Vinnuhópurinn hefur síðustu mánuði unnið að mótun innleiðingaráætlunar og komið á fót póstlista og opnum vettvangi á slóðinni http://thing.simnet.is.

23.3.2009

Tæknireglur um fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði

TS 151

Tæknireglur um fjarskiptalagnir eru samdar fyrir hönnuði, verktaka, kaupendur og seljendur íbúðarhúsnæðis og eiga við um nýbyggingar, endurnýjun fjarskiptalagna og -búnaðar í eldri húsum og viðhald. Reglurnar fjalla bæði um hönnun, efnisval, handverk og skil á verki. Verkkaupi getur nú gengið frá samningi við verktaka áður en verk er hafið, þar sem tekið er fram að verkið skuli vera unnið samkvæmt TS 151 Tæknireglur um fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði – Loftnetskerfi – Netkerfi – Símakerfi - Hússtjórnarkerfi.

23.3.2009

Námskeið 2. apríl

Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 27001 - Lykilatriði og notkunfólk, fjórskipt

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum.

Nánari upplýsingar og skráning >> 

16.3.2009

Vorfundur fagstaðlaráðs í upplýsingatækni 18. mars

Vorfundur fagstaðlaráðs í upplýsingatækni 18. mars Kl. 08:30 – 11:00

Grand hótel Reykjavík -  salur Háteigur A – Sigtúni 38

11.3.2009

ISO 9001:2008 á íslensku - 30% kynningarafsláttur

ISO 9001:2008 sky

Íslensk þýðing á nýrri útgáfu ÍST EN ISO 9001 er nú fáanleg hjá Staðlaráði. Líkt og í fyrri útgáfum er enski textinn birtur við hlið þess íslenska. Engar nýjar kröfur eru í 9001:2008. Aðeins er leitast við að skýra kröfurnar betur frá því sem var. ISO 9001:2008 kom út sem alþjóðlegur staðall 15. desember. Ári eftir útgáfu ISO 9001:2008 skulu allar nýjar vottanir og endurvottanir gerðar samkvæmt þeim staðli. Tveimur árum frá þeim tíma falla úr gildi vottanir samkvæmt ISO 9001:2000.

 

Panta ISO 9001:2008 með afslætti >>

 

Þýddir alþjóðlegir staðlar með 25% afslætti

Auk þess að bjóða íslenska þýðingu ISO 9001 með 30% kynningarafslætti hefur Staðlaráð ákveðið að bjóða valda þýdda alþjóðlega staðla með 25% afslætti. Þannig vill Staðlaráð koma til móts við viðskiptavini vegna mjög óhagstæðrar gengisþróunar undanfarna mánuði.

 

Eftirtaldir staðlar verða með 25% afslætti um sinn: ÍST EN ISO 9000, ÍST EN ISO 9004, ÍST ISO 27001, ÍST ISO 27002 (17799), ÍST EN ISO 14001, ÍST ISO 15489-1, ÍST ISO/TR 15489-2.

Pantanir á www.stadlar.is (sláið aðeins inn númer staðals í leitarreit, ekki forskeyti)

12.1.2009

Leikvallastaðlar

vega saltLeikvallastaðlar - fyrir byggngarfulltrúa sveitarfélaga, verktaka, stjórnendur grunnskóla og leikskóla og aðra sem koma að hönnun, uppsetningu eða viðhaldi og rekstri leiksvæða eða leiktækja. Í ritinu er að finna staðla úr ÍST EN 1166 röðinni Playground equipment að viðbættum ÍST EN 1177 Impact absorbing playground surfacing - Safety requirements and test methods.

Leikvallastaðlarnir á 19.706,-kr.


Panta>>

10.11.2008

NÁMSKEIÐ 20. nóvember

Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 27001 - Lykilatriði og notkunfólk, fjórskipt

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum.

Nánari upplýsingar og skráning >> 

10.11.2008

Staðall um launajafnrétti kynja

Hendur

Félags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við  Staðlaráð Íslands að  það hafi umsjón með gerð staðals sem notaður verði til að sannreyna hvort launa- og starfsmannastefna stofnana og fyrirtækja samræmist stefnu um launajafnrétti kynja og jafnrétti við ráðningar og uppsagnir. Atvinnurekendur sem uppfylla skilyrði staðalsins eiga síðan að geta fengið formlega vottun fyrir því að launa- og starfsmannastefna þeirra samræmist lögum um jafnrétti kynjanna.

21.10.2008

NÁMSKEIÐ um ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlana 6. nóvember

ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði uppbygging og notkuniso 9000...management

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 12 manns. Skráning stendur yfir >>

 

21.10.2008

ÍST 66:2008 Varmatap húsa - Útreikningar

Varmatap húsa

Þann 1. október tók gildi íslenskur staðall ÍST 66 Varmatap húsa – Útreikningar sem gildir með og vísar til danska staðalsins DS 418:2002 Beregning af bygningers varmetab og inniheldur íslensk sérákvæði við hann.

sjá nánar >>

 

21.10.2008

Nýr ISO 9001 tekur gildi 15. nóvember

ISO 9001:2008 himinn

Ný útgáfa gæðastjórnunarstaðalsins ISO 9001:2008 mun líta dagsins ljós 15. nóvember. Mikilvægustu punktarnir sem gengið er útfrá í áætlun um innleiðingu nýju útgáfunnar liggja þegar fyrir. Greint var frá þeim í Staðlamálum, fréttabréfi Staðlaráðs.

sjá nánar >>

 

13.10.2008

ISO 9001:2008 - Nýr ISO 9001

Ný útgáfa gæðastjórnunarstaðalsins ÍST EN ISO 9001 er væntanleg fyrir árslok. Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO og alþjóðleg samtök vottunarstofa, IAF, hafa komið sér saman um áætlun til þess að innleiðing nýju útgáfunnar gangi greiðlega fyrir sig.

13.10.2008

ÍST 66 - Útreikningur á varmatapi húsa

Hafsteinn Pálsson

Þann 1. október tók gildi íslenskur staðall ÍST 66 Varmatap húsa – Útreikningar sem gildir með og vísar til danska staðalsins DS 418:2002 Beregning af bygningers varmetab og inniheldur íslensk sérákvæði við hann. Unnið var að gerð staðalsins á vegum Byggingarstaðlaráðs (BSTR). 

13.10.2008

Byggingarvörur á markaði - CE-merking á byggingarvörum

Benedikt Jónsson

B yggingarvörur á markaði hérlendis eiga að vera merktar CE-merki í samræmi við reglur sem gilda hjá Evrópusambandinu. Þessi merking er ekki gæðamerking.  CE-merkið staðfestir aðeins að vara uppfylli þær lágmarks­kröfur sem þarf til að vera lögleg á markaði.

13.10.2008

Gæðastaðlar - Gæði landfræðilegra gagna

Anna Guðrún Albrecht

Eitt af aðalhlutverkum Landmælinga Íslands er að afla gagna um landið og miðla þeim til fagaðila og annarra notenda til að mynda í gegnum faglegt samstarf við háskóla, aðrar stofnanir, fyrirtæki og alþjóðleg samtök. Notkun staðla og samræmd vinnubrögð greiða fyrir vinnu í þessum verkefnum.

13.10.2008

Nýir leikvallastaðlar - Öryggi barna á leiksvæðum

Strákur í rólu

Í byrjun árs 2003 tók gildi reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Reglugerðin vísar í staðla, ÍST EN 1176 1.- 7. hluta Leikvalla­tæki og ÍST EN 1177 Yfirborðsefni á leik­svæðum, öryggiskröfur og aðferðir við prófun. Nýjar útgáfur þessara staðla tóku gildi 1. október 2008.

1.10.2008

NÁMSKEIÐ um gæðaúttektir 9. október

ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Innri úttektir samkvæmt ISO stækkunargler19011

Námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir samkvæmt staðli eða þurfa að þekkja hvernig innri úttektir ganga fyrir sig. 

 

Nánari upplýsingar og skráning >>

 

 

1.10.2008

Nýr ISO 9001 væntanlegur

ISO 9001:2008 himinn

Ný útgáfa gæðastjórnunarstaðalsins ÍST EN ISO 9001:2008 er væntanleg fyrir árslok. Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO og alþjóðleg samtök vottunarstofa, IAF, hafa komið sér saman um áætlun til þess að innleiðing nýju útgáfunnar gangi greiðlega fyrir sig. Eftirfarandi eru mikilvægustu punktarnir sem gengið er útfrá í áætluninni:

1.10.2008

Við erum flutt

Skúlatún 2

Staðlaráð Íslands er flutt í 

                 Skúlatúni 2

Smellið á mynd til að sjá kort >>

 

8.4.2008

ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði, uppbygging og notkun

iso 9000...management

 

NÁMSKEIÐ 8. maí

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.

 

Hámarksfjöldi þátttakenda er 12 manns.

 

Nánari upplýsingar og skráning >>

8.4.2008

ISO/IEC 29500 verður að alþjóðlegum staðli

Samþykkt var að gera frumvarp að ISO/IEC 29500 Information technology -- Office Open XML file formats að alþjóðlegum staðli. Atkvæðagreiðslunni lauk á miðnætti 29. mars síðastliðinn. Frumvarpið var samþykkt með 75% atkvæða en 14% voru á móti. Til þess að frumvarp verði að staðli þarf það að fá 2/3 hluta atkvæða (66,66%). Það skilyrði er jafnframt sett að 1/4 hluti (25%) atkvæða sé ekki greiddur gegn frumvarpinu.

22.2.2008

UMDEILT FRUMVARP að staðli um skráarsnið - Enn skal reynt

Opinn stall

Frumvarpið ISO/IEC DIS 29500 Information technology -- Office Open XML file formats fékk ekki tilskilinn stuðning meðal aðila að Alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO og Alþjóðlega raftækniráðinu IEC í atkvæðagreiðslu síðastliðið haust. Markmiðið með fyrirhuguðum staðli var að auðvelda skipti algengra skjala milli mismunandi stýrikerfa og hugbúnaðar. Töluverður skoðanamunur er uppi meðal hagsmunaaðila, en þekktustu skjöl af þessu tagi eru eflaust þau sem tilheyra svonefndum Office-pakka frá Microsoft: Word, Excel og PowerPoint. Þótt hagsmunaaðilar hafi ekki náð saman í þetta sinn, verður þess enn freistað að ná samkomulagi.

Fundur verður um málið í Genf 25. - 29. febrúar.

22.2.2008

NÁMSKEIÐ um gæðaúttektir 28. febrúar: Innri úttektir samkvæmt ISO 19011

Innri gæðaúttektir. Námskeið Staðlaráðs

Námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir samkvæmt úttektarstaðlinum ISO 19011 eða þurfa að þekkja framgang gæðaúttekta.

 

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur skilji til hlítar tilgang og ferli innri úttekta á gæðakerfi samkvæmt ISO 19011, geti gert grein fyrir mikilvægustu atriðum slíkra úttekta og verði færir um að framkvæma innri úttekt í samvinnu við reyndan úttektarmann.

 

Hámarksfjöldi þátttakenda er 12 manns.

 

Nánari upplýsingar og skráning >>

31.1.2008

Staðlar létta þér lífið ...

... þegar þú spilar handboltaHandboltastelpa
 

Staðallinn ÍST EN 749:2007 Playing field equipment - Handball goals - Functional and safety requirements, test methods er meðal staðla sem snúast um tæki fyrir íþróttir.

31.1.2008

ISO 9001:2000 Vinnubók fyrir þjónustufyrirtæki

Gæðaverkfæri ISO 9001:2000 Vinnubók

Í vinnubókinni er sett fram aðferðafræði fyrir þjónustufyrirtæki sem taka ákvörðun um að innleiða gæðastjórnunarkerfi samkvæmt staðlinum ISO 9001 og e.t.v. sækja um vottun. Hjálpartækin í vinnubókinni (spurningar, gátlistar og leiðbeiningar um áætlanagerð) miðast við ákvarðanir og umræður sem þörf er á innan fyrirtækja til þess að innleiða árangursríka gæðastjórnun

31.1.2008

ISO 9001:2000 Vinnubók fyrir þjónustufyrirtæki - Verkfæri til að koma á gæðastjórnunarkerfi

Vinnubókin gerir ráð fyrir hópvinnu

Í síðasta tölublaði Staðlamála var minnst á vinnubók sem ætlað er að auðvelda þjónustufyrirtækjum að taka upp gæðastjórnunarkerfi samkvæmt gæða­stjórnunar­staðlinum ISO 9001. Nú er vinnubókin komin út og hægt er að panta hana á heimasíðu Staðlaráðs,  www.stadlar.is, og sjá sýnishorn af henni.

31.1.2008

Vistvænni byggingariðnaður - ISO 21930:2007

Byggingarúrgangur

Nýr alþjóðlegur staðall um vistvænni byggingariðnað hefur tekið gildi. Umræddur staðall, ISO 21930:2007 Sustainability in building construction – Environmental declaration of building products, miðar að því að draga úr áhrifum byggingarframkvæmda á umhverfið. Þeir sem geta haft gagn af staðlinum eru hönnuðir, framleiðendur byggingarvara, notendur bygginga og annarra mannvirkja, eigendur og aðrir sem tengjast byggingariðnaði. 

31.1.2008

Breyting á reglugerð um raforkuvirki nr. 264/1971 - Rafmagnsmál

Jóhann Ólafsson

Í desember á síðasta ári voru gerðar miklar breytingar á reglugerð um raforkuvirki nr. 264/1971 og munu þær hafa veruleg áhrif á rafmagnsöryggi hér á landi.

31.1.2008

NÁMSKEIÐ 7. og 8. febrúar: Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 17799 - Lykilatriði og notkun

 

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 17799 og ISO/IEC 27001 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum.

 

Nánari upplýsingar og skráning >> 

7.1.2008

Breyting á reglugerð um raforkuvirki nr. 264/1971

Neytendastofa

Neytendastofa hefur vakið athygli á nýrri breytingu á reglugerð um raforkuvirki nr. 264/1971. Helstu breytingar eru þær að að kafli 2 Heiti og hugtök og kafli 3 Reglur um gerð, tilhögun og starfrækslu raforkuvirkja eru felldir niður. Þess í stað skulu háspennt raforkuvirki, háspenntar loftlínur, ásamt lágspenntum raforkuvirkjum (neysluveitum) og lágspenntum loftlínum  uppfylla ákveðnar grunnkröfur sem tilgreindar eru í grein 1.10 í reglugerðinni, ásamt sérstökum öryggiskröfum sem tilgreindar eru í greinum 1.11, 1.12 og 1.13.

Fyrrgreind virki sem gerð eru samkvæmt íslenskum stöðlum og sérstökum öryggiskröfum, sem tilgreindar eru í greinum 1.11, 1.12 og 1.13 eru álitin uppfylla grunnkröfur, sbr. grein 1.10.

13.11.2007

Námskeið 22. nóvember

 

ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði, uppbygging og notkuniso 9000...management

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.

 

Hámarksfjöld þátttakenda er 12 MANNS

sjá nánar >>

23.10.2007

ISO 9001 tvítugur

Afmælistilboð Kjarnastaðlabók

Tuttugu ár eru síðan ISO 9001 gæðastjórnunarstaðallinn var fyrst gefinn út af Alþjóðlegu staðlasamtökunum, ISO. Fyrsta íslenska útgáfa staðalsins kom einnig út árið 1987. Íslensk fyrirtæki hafa almennt og lengst af sýnt gæðastjórnun fremur lítinn áhuga, en nú virðist ætla að verða nokkur breyting á því.  Í könnun Alþjóðlegu staðlasamtakanna kemur fram að á Íslandi voru í árslok 2005 samtals 43 vottuð gæðakerfi samkvæmt ISO 9001. Þau voru 30 árið 2001. Á heimsvísu er staðan þannig að vottuð gæðakerfi samkvæmt ISO 9001 eru í yfir 160 löndum og heildarfjöldi vottaðra gæðakerfa slagar hátt í 800 þúsund. Frá byrjun árs 2004 til loka árs 2005 fjölgaði vottuðum gæðakerfum í heiminum um 116476.

23.10.2007

Fyrsti fundur tækninefndarinnar ISO/TC 234 Fisheries and aquaculture

ISO logo

Fundinn, sem haldinn var í Bergen 9. - 10 október, sóttu af Íslands hálfu Halldór Zoëga, formaður Fagstaðlaráðs í fiskimálum og fulltrúi Fiskistofu, Guðbergur Rúnarsson, fulltrúi Landssambands fiskeldisstöðva og Samtaka fiskvinnslustöðva, og Guðrún Rögnvaldardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands. Formaður nefndarinnar er Svein Ludvigsen formaður, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Noregs.

23.10.2007

Námskeið 8. og 9. nóvember

Upplýsingaöryggi - ISO 17799 og ISO 27001

Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 17799 - Lykilatriði og notkun

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 17799 og ISO/IEC 27001 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum.

Nánari upplýsingar og skráning >>

15.10.2007

Staðlar létta þér lífið...

 ... þegar þú metur gæði póstþjónustunnar Póstþjónusta
  
Staðallinn ÍST EN 14508:2003 2007 Póstþjónusta - Þjónustugæði - Mæling á flutningstíma frá póstlagningu til móttöku fyrir stakar B-póstsendingar og A-póstsendingar er einn margra staðla sem snúast um gæði póstþjónustu.

15.10.2007

ÍST 120 - Íslenskur staðall um landupplýsingar

Anna Guðrún Albrecht

Þann 1. júní 2007 kom út fyrsti séríslenski staðallinn á sviði landupplýsinga, ÍST 120:2007 Skráning og flokkun landupplýsinga - Fitjuskrá. Markmiðið með útgáfu staðalsins er að koma á samræmdri flokkun gagna í íslenskum landupplýsingakerfum.

15.10.2007

Reynslusaga - Blóðbankinn og ISO 9001

Ína Björg

Blóðbankinn hefur verið með vottað gæðakerfi skv. ISO 9001 síðan árið 2000. Uppbygging gæðakerfisins hófst upp úr 1995 en þá urðu miklar breytingar í starfsemi Blóðbankans því verið var að innleiða nýtt tölvukerfi og nýjar aðferðir. Vinnuleiðbeiningar voru skrifaðar niður og var þar með kominn fyrsti grunnur að gæðahandbók. Í kjölfarið var ákveðið að byggja upp gæðakerfi til að styrkja innviði Blóðbankans og stuðst var við ISO 9001 staðalinn. Til að setja vinnuna við uppbyggingu gæðakerfisins í ákveðnari farveg var tekin sú ákvörðun að sækja um vottun á kerfinu.

15.10.2007

Staðlaráð tvítugt ... eða þannig - Brot úr sögu Staðlaráðs

Guðrún Rögnvaldardóttir

Um þessar mundir eru liðin 20 ár frá upphafi formlegs staðlastarfs á Íslandi. Það var á haustdögum 1987 sem Staðlaráð Íslands var sett á laggirnar sem ráðgjafarnefnd á vegum stjórnar Iðntæknistofnunar Íslands, en eitt af hlutverkum Iðntæknistofnunar skv. lögum var að vinna að stöðlun. Á fundi þann 8. september 1987 voru starfsreglur Staðlaráðs samþykktar og formaður þess kjörinn Þorbjörn Karlsson prófessor, fulltrúi Háskóla Íslands. Í Staðlaráði áttu í fyrstu sæti fulltrúar Iðntæknistofnunar, iðnaðarráðuneytisins, Háskóla Íslands, Landssambands iðnaðarmanna og Félags íslenskra iðnrekenda. Fljótlega bættust síðan Verkfræðingafélag Íslands og Tæknifræðingafélag Íslands í hópinn. 

15.10.2007

Afmælisbarnið - ISO 9001 tvítugur

Afmælistilboð Kjarnastaðlabók

Tuttugu ár eru síðan gæðastjórnunarstaðallinn ISO 9001 kom fyrst út. Íslenska útgáfa staðalsins gengur nú undir nafninu ÍST EN ISO 9001:2000 Gæðastjórnunarkerfi - Kröfur. Í tilefni tvítugsafmælisins ætlar Staðlaráð að gefa út á íslensku bókina ISO 9001:2000 - Vinnubók fyrir þjónustufyrirtæki. Bókinni er ætlað að auðvelda fyrirtækjum að ákveða hvort og hvernig innleiða megi gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001. Ef fólk vill frétta af útkomu bókarinnar um leið og af henni verður má fara inn á www.stadlar.is og gerast áskrifandi að Staðlapóstinum - rafrænu fréttabréfi Staðlaráðs. Í tilefni tvítugsafmælisins mun Staðlaráð einnig gefa helmingsafslátt af bók sem inniheldur kjarnastaðlana fjóra í 9000-seríunni. Afslátturinn gildir út árið 2007.

4.9.2007

Aðalfundur Staðlaráðs: Nýr formaður og breytingar á starfsreglum

Guðrún S. Eyjólfsdóttir

Á aðalfundi Staðlaráðs 31. maí var kosin ný stjórn til næstu tveggja ára. Formaður Staðlaráðs, Ingimar Sigurðsson, lét af því starfi eftir tvö ár sem formaður og samtals 10 ár í stjórn Staðlaráðs. Guðrún S. Eyjólfsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins var kjörin formað­ur, en einnig komu inn nýir fulltrúar frá umhverfisráðuneytinu og Félagi íslenskra stór­kaup­manna.

4.9.2007

Paving for eFuture: Cross border eBusiness Readiness

eteb

Fjölþjóðleg ráðstefna ETeB og Ský um stöðu rafrænna viðskipta

 

Fimmtudaginn 13. september á Icelandair Hótel Loftleiðum í Reykjavík

 

4.9.2007

Nýtt fagstaðlaráð: Fagstaðlaráð í fiskimálum (FIF)

Stofnun Fagstaðlaráðs í fiskimálum (FIF) var formlega samþykkt á aðalfundi Staðlaráðs hinn 31. maí síðastliðinn. Fagstaðlaráðið hélt sinn fyrsta fund 12. júní, og voru eftirtaldir kosnir í framkvæmdaráð: Halldór Zoëga, fulltrúi Fiskistofu, formaður; Arthur Bogason, fulltrúi Landssambands smábátaeigenda; Guðbergur Rúnarsson, fulltrúi Landssambands fiskeldisstöðva og Samtaka fiskvinnslustöðva; Kristján Þórarinsson, fulltrúi Landssambands íslenskra útvegsmanna og Margeir Gissurarson, fulltrúi Matís ohf . Verkefni fagstaðlaráðsins verður fyrst og fremst að fylgjast með og taka þátt í alþjóðlegu staðlastarfi um veiðar, vinnslu og eldi innan tækninefndarinnar ISO/TC 234. Ákveðið hefur verið að senda þrjá fulltrúa á fyrsta fund nefndarinnar, sem haldinn verður í Bergen 9. og 10. október.

26.8.2007

Boðað til fundar um stofnun tækninefndar í upplýsingatækni

Að frumkvæði Microsoft á Íslandi erboðað til undirbúningsfundar fyrir stofnun tækninefndar um íslenska þátttöku í JTC1 sem er samstarfsnefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO og Alþjóða raftækniráðsins IEC um stöðlun í upplýsingatækni.

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 29. ágúst frá kl. 15:00 til 16:30. Fundarstaður: Staðlaráð Íslands, Laugavegi 178.

5.6.2007

ÍST 120 Skráning og flokkun landupplýsinga – Fitjuskrá

ÍST 120

Markmiðið með útgáfu staðalsins er meðal annars að koma á samræmdri flokkun gagna í íslenskum landupplýsingakerfum ekki síst til að auka og bæta aðgengi að slíkum upplýsingum.

4.5.2007

Staðlar létta þér lífið...

... þegar þú leikur þér í hoppukastala Hoppukastali


Staðallinn ÍST EN 14960:2007 Inflatable play equipment - Safety requirements and test methods er einn fjölmargra íslenskra staðla sem hafa það að markmiði að auka öryggi leiktækja.

4.5.2007

Alþjóðleg nefnd um fiskvinnslu, veiðar og eldi - Spurt um áhuga íslenskra hagsmunaaðila

Fiskistaðlar

Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO hafa nýlega stofnað tækninefndina ISO/TC 234 Fisheries and aquaculture, sem á að semja staðla á sviði fiskveiða, fiskvinnslu og fiskeldis. Þetta var gert að frumkvæði Norðmanna sem hafa tekið að sér að stýra vinnunni. Íslendingar taka virkan þátt í nefndinni.

4.5.2007

Kynjastaðall - Staðall til að uppræta kynbundið launamisrétti

Kynjabarátta

Í lok síðasta árs tóku Ný-Sjálendingar forystu í staðlaheiminum. Þeir urðu fyrstir til að gefa út staðal sem miðar að því að tryggja starfsmönnum sanngjörn laun og sambærileg tækifæri í starfi - óháð kyni. Staðallinn heitir fullu nafni NZS 8007:2006 Gender-inclusive Job Evaluation.

4.5.2007

Reynsla Teris af stjórnkerfi upplýsingaöryggis - ÍST ISO/IEC 17799 og ÍST ISO/IEC 27001

Forveri Teris, Tölvumiðstöð sparisjóðanna, var stofnaður í mars 1989. Í upphafi þjónaði Ingigerður TerisTölvumiðstöðin eingöngu hlutverki tölvudeildar sparisjóðanna. Smám saman fjölgaði eigendum og viðskiptavinum og í dag gegnir Teris mikilvægu hlutverki sem upplýsingatæknisvið margra fyrirtækja auk allra sparisjóða landsins. Árið 2002 var mörkuð stefna þar sem ákveðið var að bjóða lausnir fyrirtækisins út fyrir eigendahópinn. Stjórnendum fyrirtækisins var ljóst mikilvægi þess að stjórna upplýsingaöryggi til að tryggja gögn og upplýsingar fyrirtækisins og viðskiptavina. Því var ákveðið að innleiða stjórnkerfi upplýsingaöryggis samkvæmt staðli sem nú heitir ÍST ISO/IEC 27001.

4.5.2007

Staðráðin í að gera betur - Viðhorfskönnun meðal viðskiptavina Staðlaráðs

Staðlaráð fékk fyrirtækið Lausnir ehf. til þess að gera viðhorfskönnun meðal viðskiptavina sinna. Viðhorfskönnun StaðlaráðsNiðurstaðan var í meginatriðum mjög jákvæð en líka komu fram atriði sem gefa tilefni til þess að gera betur. Starfsfólk Staðlaráðs er staðráðið í því en hér á eftir fer samantekt skýrslunnar frá Lausnum.

14.3.2007

Boðað er til stofnfundar tækninefndar FUT um íslenskt hnappaborð

Lyklaborð

Stofnfundur tækninefndar um íslenskt hnappaborð verður þriðjudaginn 27. mars 2007 kl. 14:00 til 15:30 hjá Staðlaráði Íslands, Laugavegi 178. Meginhlutverk nefndarinnar verður endurskoðun á staðlinum „ÍST125:1995 - Lyklaborð“, með tilliti til útlits, uppröðunar á innihaldi og ákveðinna nauðsynlegra lagfæringa, meðal annars vegna þróunar Evrópustaðla á þessu sviði.

12.3.2007

SI-kverið. Lítil handbók um SI‑einingarnar og notkun þeirra

SI-kerfið. Leiðbeiningar

ÓMISSANDI uppsláttarrit við nám og kennslu og dagleg störf í tæknigreinum. - Kverið kemur líka að góðu gagni við baksturinn og matseldina ef breyta þarf til dæmis pundum í kíló eða Celsíus í Farenheit.

 

Verð aðeins 705 kr.

5.2.2007

Staðlar létta þér lífið...

  ... þegar þú leikur handbolta Handbolti
  
Staðallinn ÍST EN 749 Playing field equipment - Handball goals - Functional and safety requirements, test methods er einn fjölmargra íslenskra staðla fyrir íþróttir.

5.2.2007

Aðild að Staðlaráði - Góð hugmynd

Staðlaráð Íslands, er sjálfstæð samtök hagsmunaaðila, starfar samkvæmt lögum nr. 36/2003 og Guðrún Rögnvaldardóttirhefur það hlutverk að staðfesta alþjóðlega staðla og annast gerð íslenskra staðla. Staðlaráð Íslands á aðild að alþjóðasamstarfi staðlaráða fyrir Íslands hönd og fer með atkvæði landsins á þeim vettvangi. Staðlaráð starfrækir fagstaðlaráð á þrem fagsviðum: Byggingarstaðlaráð, Rafstaðlaráð og Fagstaðlaráð í upplýsingatækni. Aðilar að Staðlaráði eru nú um 70 talsins: fyrirtæki, stofnanir, samtök og ráðuneyti.

5.2.2007

Lýsing á vegum - CEN/TR 13201-1: Val á lýsingarflokkum

Með þessari stuttu grein viljum við vekja sérstaka athygli á tækniskýrslu CEN/TR 13201-1 um val á lýsingarflokkum fyrir vegi sem nú kemur út í íslenskri þýðingu. Aðalsteinn GuðjohnsenEgill Skúli

5.2.2007

Örugg fasteignaviðskipti - ÍST 51 Byggingarstig húsa

Í fréttum undanfarið hefur mikið verið fjallað um frágang húsbygginga og ýmislegt sem er áfátt í þeim efnum. Það gefur tilefni til að minna enn og aftur á staðalinn ÍST 51 Byggingarstig húsa. ALLIR sem kaupa eða selja nýtt eða ófullbúið eða endurnýjað húsnæði ættu að nota staðalinn og vísa til hans í samningum.

5.2.2007

Upplýsingaveita um CE-merkingar á byggingavörum - www.si.is/ce

Þó að á Íslandi hafi um alllangt skeið mátt finna ýmsan fróðleik og upplýsingar varðandi CE-Ferdinand Hansenmerkingar á byggingavörum og innri markaði ESB er óhætt að fullyrða að þar hafi oftast verið um almennan fróðleik að ræða. Þess vegna tóku Samtök iðnaðarins því fagnandi þegar danska Iðntæknistofnunin gaf þeim leyfi til að þýða frábæran upplýsingavef sem er hannaður sérstaklega fyrir byggingavöruframleiðendur og birgja vegna CE-merkinga á byggingavörum.

10.11.2006

Stofnfundur tækninefndar um rafræn skilríki fimmtudaginn 16. nóvember kl 13

digitalID

Erindi um stofnun tækninefndar FUT um rafræn skilríki hefur verið sent þeim sem talið er að hafi hagsmuna að gæta af þróun og notkun rafrænna skilríkja. Þeir voru jafnframt hvattir til að kynna málið sem víðast.  

18.10.2006

Staðlar létta þér lífið...

 ... þegar þú keyrir á mótorhjóli Mótorhjólastrákur

Staðallinn ÍST EN 1938 Augnhlífar - Hlífðargleraugu fyrir ökumenn bifhjóla og stiginna bifhjóla á sinn þátt í því.

18.10.2006

Byggingastaðlar - Staðlar um bendistál og bendinet

Aðild Íslands að Evrópsku stöðlunarsamtökunum (CEN) hefur í för með sér að staðfesta verður alla samevrópska staðla (EN) sem íslenska staðla (ÍST).  Í sumum tilvikum hafa með tilkomu nýrra staðla orðið verulegar breytingar á þeim reglum sem vinna þarf eftir. Evrópski staðallinn ÍST EN Hafsteinn Pálsson10080:2005 Steel for the reinforcement of concrete - Weldable reinforcing steel - General er dæmi um það. Gildistaka hans leiddi til þess að endurskoða þurfti gildandi staðla um bendistál. Hér á eftir er fjallað um nýja og endurskoðaða staðla sem unnið hefur verið að á vegum Byggingastaðlaráðs (BSTR) vegna þessarar endurskoðunar.

18.10.2006

Fiskistaðlar - Alþjóðleg stöðlun á sviði veiða, vinnslu og eldis

Innan Alþjóðastaðlasamtakanna ISO var nýlega samþykkt að hefja vinnu við stöðlun á sviði Guðrún Rögnvaldardóttirfiskveiða, fiskvinnslu og fiskeldis (Fisheries and Aquaculture). Tillaga þar að lútandi var lögð fram í sumar að frumkvæði Norðmanna og leitað eftir umsögnum aðila ISO, sem eru staðlastofnanir 100 landa. Á Íslandi er það Staðlaráð Íslands sem er aðili að ISO.

18.10.2006

Gæðastjórnun - Gæðastjórnunarkerfi á Íslandi

Nokkuð er umliðið síðan fyrstu íslensku fyritækin fóru að huga að innleiðingu vottaðra gæðakerfaSigurður Freysson samkvæmt ISO 9001 og síðar vottaðra umhverfisstjórnunarkerfa samkvæmt ISO 14001. Fyrstu fyrirtækin sem fengu vottun á gæðastjórnuarkerfi sitt voru Lýsi hf., ÍSAL og Sölumiðstöð hraðfrystihúsana. Það var árið 1992.

18.10.2006

Tímamót - Alþjóða raftækniráðið 100 ára

Árið 1906 var Alþjóða raftækniráðið, IEC, stofnað til að koma reglu á og samræma hugtök og Sigurður Sigurðarsonmælieiningar í rafmagnsfræði.

3.7.2006

Mannabreytingar - Nýr starfsmaður í sölu

Margrét MarísdóttirAnna María Lind Geirsdóttir hefur um fimm ára skeið þjónað viðskiptavinum Staðlaráðs. Hún hefurákveðið að láta það gott heita - í bili að minnsta kosti. Um leið og Staðlaráð þakkar Önnu Maríu fyrir frábær störf, bjóðum við nýjan starfsmann, Margréti Marísdóttur, hjartanlega velkominn. Hún mun standa vaktina í sölunni ásamt Önnu Þóru Bragadóttur sölustjóra.

3.7.2006

Skipulagsbreytingar hjá Staðlaráði - Skipulagsbreytingar hjá Staðlaráði

Guðrún RögnvaldardóttirÁ aðalfundi Staðlaráðs 24. maí síðastliðinn fjölgaði aðilum Staðlaráðs úr 15 í 87, þegar aðilar þriggja fagráða Staðlaráðs (Byggingarstaðlaráðs, Fagráðs í upplýsingatækni og Rafstaðlaráðs) gerðust aðilar að Staðlaráði. Ástæða þessa var skipulagsbreyting sem lögð voru drög að þegar árið 2003 með samþykkt nýrra laga um staðla og Staðlaráð Íslands. Fagráð höfðu verið starfandi á vegum Staðlaráðs frá stofnun þess, og sinnt staðlastarfi hvert á sínu fagsviði, án þess að hafa til þess það formlega umboð sem lagaheimild veitir. Þessu var talið brýnt að bæta úr og var það gert með lögum nr. 36/2003, en þar segir í 4. mgr. 4. gr.: „Staðlaráð Íslands getur starfrækt fagstaðlaráð á einstökum fagsviðum í samvinnu við hlutaðeigandi hagsmunaaðila. Hlutverk fagstaðlaráða er að samræma og hafa frumkvæði að stöðlunarvinnu á sínu sviði.”

3.7.2006

Íslenskur staðall um verkframkvæmdir á ensku - ÍST 30

Hafsteinn PálssonStaðlaráð hefur unnið að því að þýða á ensku staðalinn ÍST 30 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir. Enska heitið er Conditions of contract for building and works of civil engineering construction.

3.7.2006

Staðlar létta þér lífið...

... þegar þú spilar fótboltaFótboltamynd


Staðallinn ÍST EN 13061 Hlífðarfatnaður - Legghlífar fyrir knattspyrnuiðkendur - Kröfur og prófunaraðferðir er einn fjölmargra staðla sem tengjast íþróttum og öryggi íþróttaiðkenda.

3.7.2006

Íslenskur varaforseti CENELEC

Á aðalfundi evrópsku rafstaðlasamtakanna CENELEC sem fram fór í Þessaloníku í Grikklandi 8. júní síðastliðinn var Guðrún Rögnvaldardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands, kjörin í eitt af fjórum varaforsetaembættum samtakanna til næstu tveggja ára, 2007-2008. Hún tekur þar með sæti í sjö manna framkvæmdastjórn CENELEC.

Guðrún verður ekki aðeins fyrsti Íslendingurinn sem tekur sæti í stjórn CENELEC, heldur einnig fyrsta konan.

Samtökin eru 33 ára gömul, stofnuð 1973. Staðlaráð gerðist aðili að þeim árið 1988. Aðilar eru staðlastofnanir (í sumum tilvikum sérstakar rafstaðlastofnanir) 29 Evrópulanda, þ.e. allra aðildarlanda Evrópusambandsins og EFTA, auk Rúmeníu.

3.7.2006

Endurskoðun gæðastjórnunarstaðlanna - ISO 9000, ISO 9001 og ISO 9004

Sigurður Freysson


Ný útgáfa staðalsins ISO 9000 kom út í vor og heitir fullu nafni ÍST EN ISO 9000:2005 Gæðastjórnunarkerfi - Grunnatriði og íðorðasafn.  Breytingar frá fyrri útgáfu felast aðallega í uppfærslum og viðbótum og því að samræma staðalinn við  við ISO 14000 staðlaröðina

23.6.2006

ÍST 51 Byggingarstig húsa

Ekki semja um kaup eða sölu á fasteign fyrr en þú kynnir þér staðalinn ÍST 51 Byggingarstig húsa.

31.5.2006

ÍST 200 Raflagnir bygginga

ÍST 200 Raflagnir bygginga Fyrir fagmenn á rafmagnssviði.

SkæriÓmissandi verkfæri til að uppfylla reglugerð um raforkuvirki. Nánari upplýsingar og pantanir...

29.5.2006

Handbækur Rafstaðlaráðs

29.5.2006

Markastaðlarnir

Ýmislegt

Fyrir byggngarfulltrúa sveitarfélaga, verktaka, verkfræðistofur, stjórnendur grunnskóla og leikskóla ...

og aðra sem koma að útboðslýsingum, hönnun, uppsetningu og eftirliti með mörkum og búnaði fyrir boltaíþróttir.

Markastaðlarnir (sett) á 15.217 kr.

29.5.2006

Upplýsingarit með almennum upplýsingum um CE-merkið

CEFramleiðendur og innflytjendur bera sjálfir ábyrgð á að vörur sem þeir framleiða eða flytja inn séu CE-merktar, falli þær undir svokallaðar nýaðferðartilskipanir Evrópusambandsins. Eftir að varan hefur verið CE-merkt má markaðssetja hana hindrunarlaust á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Það er því eftir miklu að slægjast.  Í ritinu eru almennar upplýsingar um CE-merkið og hvað felst í því að CE-merkja vöru.


Panta

 

29.5.2006

Rafstaðlaráð - Upplýsingarit um stöðlun á raftæknisviði

Rafstaðlaráð

Rafstaðlaráð - Upplýsingarit um stöðlun á raftæknisviði


Ritinu er ætlað að vera staðalrit rafiðnaðargeirans. Þar er að finna almennar jafnt og sértækar upplýsingar sem lúta að stöðlun á raftæknisviði.

 

 

Rafstaðlarit á 1099,-kr.
Panta

1.2.2006

ÍST 200 Raflagnir bygginga - Nýr staðall á raflagnasviði

Jóhann Ólafsson

Nýr staðall á raflagnasviði, ÍST 200 Raflagnir bygginga, tók gildi 1. janúar en fagmenn á rafmagnssviði hafa lengi beðið eftir honum. Það var árið 2000 sem Löggildingarstofa, nú Neytendastofa, samdi við Gunnar Ámundason, verkfræðing um þýðingu á rafmagnsstöðlunum IEC 60364 /CENELEC HD 384, sem Alþjóða raftækniráðið IEC og Evrópsku rafstaðlasamtökin CENELEC gefa út. Staðlarnir eru hátt í fjögur hundruð blaðsíður og fjalla um raflagnir í byggingum og munu koma í stað lágspennuhluta reglugerðar um raforkuvirki. Þá samdi Löggildingarstofa einnig við Staðlaráð Íslands um yfirferð og útgáfu á fyrrgreindri þýðingu.

1.2.2006

Handbók rafiðnaðarmannsins - Stórviðburður hjá rafiðnaðarmönnum

Nú um áramótin gekk í gildi nýr staðall, ÍST 200:2006 Raflagnir bygginga. Staðalinn mun koma að mestu leyti í stað lágspennuhluta núverandi reglugerðar um raforkuvirki sem rafiðnaðarmenn hafa unnið eftir síðustu áratugi. Gert er ráð fyrir að ný reglugerð með umræddum breytingum taki gildi síðar á þessu ári. Því er útgáfa ÍST 200 án efa einn mesti viðburður innan rafiðnaðargeirans hin síðari ár.

1.2.2006

Upplýsingatækni og staðlar

Fyrirtæki og stofnanir þurfa í vaxandi mæli að samhæfa upplýsingakerfi sín öðrum kerfum, bæði innanhúss og við kerfi viðskipta- og samstarfsaðila. Viðurkennt er að af þessari samhæfingu getur hlotist margskonar hagræði og ávinningur. Ýmist er um að ræða kostnaðarlækkun eða aukin viðskipti. Til þess að samskipti kerfa geti orðið hagkvæm og hnökralaus verður að huga að samræmingu þeirra og beita stöðluðum lausnum.

1.2.2006

Staðall um steinsteypu - ÍST EN 206-1:2000 á íslensku

206-1 Steinsteypa – 1. hluti: Tæknilýsing, eiginleikar, framleiðsla og samræmi og fylgjast vel með vinnu við staðla og útgáfu staðla á sínu sviði.

26.10.2005

Alþjóðlegi Staðladagurinn 14. október - Staðlar fyrir öruggari heim

 (26.10.2005)

Alþjóðlegi staðladagurinn er 14. október. Að venju senda hæstráðendur þriggja alþjóðlegra staðlasamtaka, ISO, IEC og ITU, frá sér erindi í tilefni dagsins. Einkunnarorðin að þessu sinni eru „Staðlar fyrir öruggari heim”.

26.10.2005

Upplýsingaöryggi - Ný útgáfa ISO/IEC 17799 framfaraskref

Staðallinn ÍST ISO/IEC 17799 Upplýsingatækni – Starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsingaöryggis kom fyrst út hér á landi árið 2001. Hefur hann notið mikilla vinsælda og fjölmargir tekið staðalinn upp að hluta eða öllu leyti. Endurskoðuð útgáfa staðalsins kom út í júní.

26.10.2005

Upplýsingaöryggi - Ný útgáfa ISO/IEC 17799 framfaraskref

Staðallinn ÍST ISO/IEC 17799 Upplýsingatækni ? Starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsingaöryggis kom fyrst út hér á landi árið 2001. Hefur hann notið mikilla vinsælda og fjölmargir tekið staðalinn upp að hluta eða öllu leyti. Endurskoðuð útgáfa staðalsins kom út í júní.

26.10.2005

- frÍST 66 Útreikningur á varmatapi húsa

Aðild Íslands að Evrópsku stöðlunarsamtökunum (CEN) hefur í för með sér að staðfesta verður alla samevrópska staðla (EN) sem íslenska staðla (ÍST). Í sumum tilvikum hefur orðið um verulegar breytingar að ræða á reiknireglum sem vinna þarf eftir með tilkomu nýrra staðla.

26.10.2005

Alþjóðlegi Staðladagurinn 14. október - Staðlar fyrir öruggari heim

Alþjóðlegi staðladagurinn er 14. október. Að venju senda hæstráðendur þriggja alþjóðlegra staðlasamtaka, ISO, IEC og ITU, frá sér erindi í tilefni dagsins. Einkunnarorðin að þessu sinni eru ?Staðlar fyrir öruggari heim?.

26.10.2005

Nýja aðferðin 20 ára - Einn markaður margir staðlar

Eitt grundvallarmarkmið stofnsáttmála Efnahagsbandalags Evrópu (Rómarsáttmálans) var að koma á sameiginlegum innri markaði. Í því skyni bar aðildarríkjunum meðal annars að fella niður alla tolla og magntakmarkanir í vöruviðskiptum sín á milli, en einnig var lagt bann við hvers konar stjórnvaldsráð stöfunum sem gætu skekkt eða tálmað samkeppni eða haft í för með sér annars konar viðskiptahindranir. Allt fram að setningu Einingarlaganna 1986 þurfti einróma samþykki allra aðildarríkja fyrir setningu nýrra laga og reglugerða. Samræming tæknilegra reglugerða reyndist því afar tímafrekt og flókið verkefni, en var jafnframt forsenda þess að hægt væri að koma á sameiginlegum innri markaði.

26.10.2005

Barnalegt - Staðlar um öryggi barnafata

Í júni tók gildi sem íslenskur staðall ÍST EN 14682 Öryggi barnafatnaðar - Bönd og reimar í barnafatnaði - Forskriftir. Frumkvæði að gerð staðalsins áttu ANEC, samtök sem láta sig varða hagsmuni neytenda í evrópsku staðlasamstarfi

9.6.2005

Staðlar á íslensku um skjalastjórnun - ÍST ISO 15489

Tveir alþjóðlegir staðlar tóku gildi sem íslenskir staðlar 1. maí síðastliðinn. Um er að ræða skjalastjórnunarstaðlana ÍST ISO 15489-1 Upplýsingar og skjalfesting - skjalastjórn - 1. hluti : Almenn atriði og ÍST ISO/TR 15489-2 Upplýsingar og skjalfesting - skjalastjórn - 2. hluti : Leiðbeiningar. Staðlarnir eru hvor um sig bæði á ensku og íslensku. Hægt er að panta staðlana nú þegar á heimasíðu Staðlaráðs, www.stadlar.is.

9.6.2005

ISO 22000 í íslenskum matvælaiðnaði - Væntanlegur staðall

Oft velta menn fyrir sér hver sé ávinningur gæðastýringar. Svarið er ekki einfalt en flestir eru sammála um að vinnubrögð verða skipulagðari, varan öruggari, vörugæði aukist, traust viðskiptavinarins aukist og að starfsfólk verði ánægðara. Þegar til lengri tíma er litið má leiða að því líkum að arðsemi aukist.

9.6.2005

Umhverfistjórnunarstaðalinn ISO 14001 - Ný útgáfa

Þann 1. júní 2004 tekur gildi ný útgáfa staðalsins ISO 14001. Eldri útgáfan hefur verið í gildi frá 1996. Markmiðið með nýju útgáfunni er ekki síst að samræma heiti og hugtök við málfarið sem notað er í ISO 9000 gæðastjórnunarstöðlunum. Þau fyrirtæki sem þegar hafa vottun í samræmi við ISO 14001 staðalinn þurfa að fara yfir umhverfistjórnunarkerfið og laga það að breyttum kröfum nýju útgáfunnar.

9.6.2005

ÍST 170 - Háspennuvirki fyrir riðspennu yfir 1 kV - Nýr staðall á háspennusviði

Búið er að staðfesta staðalinn ÍST 170 Háspennuvirki fyrir riðspennu yfir 1 kV. Staðallinn er þýðing á evrópsku samræmingarskjölunum HD 637, með þremur íslenskum sérákvæðum. Staðallinn inniheldur ákvæði um hönnun og setningu raforkuvirkja með riðspennu yfir 1 kV. Löggildingarstofa lét á sínum tíma þýða fyrrgreind samræmingarskjöl á íslensku.

9.6.2005

Sveinn hættir, Sigurður tekur við

Mannabreytingar hafa orðið hjá Staðlaráði. Sveinn V. Ólafsson hættir og við starfi hans tekur Sigurður Freysson, verkfræðingur.

22.2.2005

Klær allra landa, sameinist ! - Af klókindum

Við erum enn að slást við klær. Á hinum svonefnda innri markaði Evrópu, þar sem vara, þjónusta, fólk og peningar flæða um óhindrað, eru svo einfaldir hlutir sem rafmagnsklær að gera okkur lífið leitt. Enn þá. Hvers vegna er ekki búið að kippa þessu í liðnn fyrir löngu? Maður kaupir myndavél á Spáni og filmu á Þórshöfn, og allt smellur eins og flís við rass. Sama má segja um rafhlöður og greiðslukort. Ekkert mál. Jafnvel ökuskírteinin eru stöðluð um allt svæðið, að ógleymdum smokkunum. En rafmagnsklær ? nei það dót er allt sitt á hvað. Meiraðsegja millistykkin sem pússa hinar ólíku klær saman eiga til að bregðast, verða ráðþrota. Svo rík er rafmagnsklóaflóra Evrópu. En hvar er hin evrópska rafmagnskló ? hvar? Því hefur hún ekki enn litið dagsins ljós? Svarið er ekkert leyndarmál.

22.2.2005

Kjarnastaðlarnir hljóma betur saman - Handbók fyrir gæðastjórnun

Ný handbók fyrir gæðastjórnun er væntanlega frá Staðlaráði. Handbókin ISO 9000 kjarnastaðlarnir - hljóma betur saman geymir í handhægu broti kjarnastaðlana fjóra í ISO 9000 röðinni. Þeir sem eiga þessa bók ásamt handbókinni ISO 9000 fyrir lítil fyrirtæki ? Leiðsögn, hafa við höndina þau rit sem mestu skipta í gæðastjórnun. Staðlarnir í bókinni eru bæði á ensku og íslensku nema ISO 19011, sem er aðeins á ensku.

22.2.2005

Um þolhönnunarstaðla - Hvað hönnuðir athugi

Mikilvægt er að hönnuðir og aðrir sérfræðingar séu vel upplýstir um stöðu mála við endurskoðun evrópskra þolhönnunarstaðla sem taka munu gildi hér á landi á næstu misserum. Hér á eftir verður í stuttu máli farið yfir stöðu þeirrar vinnu, einnig vinnu sem þarf að fara fram hérlendis og fjallað almennt um íslenska þolhönnunarstaðla.

22.2.2005

Innri úttektir á gæðastjórnunarkerfum

Gæðastjórnunarkerfi gera fyrirtækjum kleift að stjórna starfsemi sinni með mikilli hagkvæmni. Til að tryggja að stjórnunarkerfið sé ávallt í takt við starfsemi fyrirtækisins er nauðsynlegt að meta hvort það uppfyllir kröfurnar sem gerðar eru til þess. Áhrifamesta leiðin til að meta gæðastjórnunarkerfi er að gera reglulegar úttektir á því. Staðalinn ÍST EN ISO ISO 9001:2000 Gæðastjórnunarkerfi. Kröfur gerir skýra kröfu um að úttektir séu gerðar á gæðastjórnunarkerfum með reglulegu millibili.

14.10.2004

ISO inn á nýtt svið - Samfélagsábyrgð fyrirtækja

Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO hafa tekist á hendur gerð leiðbeinandistaðals um samfélagsábyrgð fyrirtækja.Markmiðið er að búa til almennar leiðbeiningarum þetta efni á skýru og einföldu máli. Væntanlegur staðall snertir gamalkunnug málefni sem enginn getur með réttu horft framhjá. Með gerð hans er ISO hins vegar, að margra mati, að fara inn á nýtt svið, en samtökin hafa hingað til fyrst og fremst látið sig varða hinar verklegu og tæknilegu hliðar mannlífsins. Aðrir segja sem svo að siðferðileg álitaefni verði ekki skilin frá verklegum og tæknilegum þáttum, síst á tímum alþjóðavæðingar. Áhrif fyrirtækja eru ekki aðeins hagfræðileg heldur einnig landfræðileg,félagsleg og pólitísk. Því sé þetta eðlilegt skref í þróun alþjóðlegrar stöðlunar.

14.10.2004

Faggildingar krafist - Aðalskoðun leiksvæða og leikvallatækja

Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að eftir 1. janúar á næsta ári megi þeir einir framkvæma aðalskoðun leiksvæða sem hlotið hafa til þess faggildingu. Við framkvæmd slíkrar skoðunar koma leikvallastaðlar mjög við sögu, að sjálfsögðu. Leikvallastaðlarnir eru að sjálfsögðu nauðsynlegir fyrir þá sem ætla að verða sér út um faggildingu fyrir aðalskoðun leikvalla, en einnig ómissandi fyrir byggingarfulltrúa sveitarfélaga, verktaka, stjórnendur grunnskóla og leikskóla og aðra sem koma að hönnun, uppsetningu, prófunum eða viðhaldi og rekstri leiksvæða eða leiktækja. Í ritinu er að finna staðla úr ÍST EN 1176 röðinni Leikvallatæki að viðbættum ÍST EN 1177 ? Yfirborðsefni á leiksvæðum, öryggiskröfur og aðferðir við prófun.

14.10.2004

ISO 10002 - Að bregðast skipulega við kvörtunum

Í nýjum leiðbeinandi staðall frá ISO eru útlistaðar lausnir sem miða að því að sætta óánægða viðskiptavini. Lausnirnar snúast um að taka skipulega á kvörtunum viðskiptavina vegna óánægju þeirra með vöru eða þjónustu þannig að það verði bæði þeim og fyrirtækinu eða stofnuninni til hagsbóta.

14.10.2004

Útskýring - Örfá orð um vottun

Í daglegu tali er stundum sagt að hitt eða þetta sé vottað. Menn hafa ýmsar hugmyndir um hvað vottun sé og stundum eru þær hugmyndir byggðar á misskilningi eða lítilli þekkingu.Til er tvenns konar vottun. Þá fyrri geta viðskiptavinir fyrirtækisins séð um, en um síðari tegundina sér sjálfstæður og óháður aðili. Yfirlitið sem hér fer á eftir er örstutt útskýring á þeirri vottun sem venjulega er í höndum sjálfstæðs þriðja aðila.

14.10.2004

Í fyrsta skipti - Ísland í stjórn ISO

Á aðalfundi Alþjóðastaðlasamtakanna, ISO, í Genf um miðjan september var kosið um sex sæti af 18 í aðalstjórn ISO (ISO Council). Fimm stærstu aðildarlönd ISO eiga ávallt fast sæti í stjórninni, en kosið er um hin 13 sætin eftir ákveðnum reglum þar sem löndin eru flokkuð í þrjá hópa eftir efnahagslegu mikilvægi og þátttöku í staðlastarfi ISO. Tveir hópanna eiga fimm sæti hvor en þriðji hópurinn, með um 100 aðildarlöndum, á aðeins þrjú sæti. Í þessum hópi eru flest þróunarlöndin, en einnig minnstu Evrópulöndin. Að þessu sinni voru tvö sæti laus í þessum hópi. Ísland og Jórdanía voru sjálfkjörin, þar sem fleiri lönd buðu sig ekki fram. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur sæti í aðalstjórn ISO og mun Guðrún Rögnvaldardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, verða fulltrúi í aðalstjórninni næstu tvö árin, 2005 - 2006.

18.5.2004

Þjóðlegur staðall - ÍST 130 Upplýsingatækni - íslenskar kröfur

Hönnuðir íslenskra upplýsingakerfa verða að geta sett fram íslenskar hönnunarforsendur. Forsenda þess er að hafa íslenskar kröfur í upplýsingatækni á hreinu. Þær er að finna í staðlinum ÍST 130 Upplýsingatækni ? íslenskar kröfur.

18.5.2004

Athugasemdir óskast Frumvörp að stöðlum um skjalastjórn

Tvö ný frumvörp að stöðlum um skjalastjórn hafa verið auglýst til umsagnar í Staðlatíðindum á vef Staðlaráðs, www.stadlar.is. Frumvörpin eru íslensk þýðing á staðlinum ISO 15489-1 Upplýsingar og skjalfesting ? skjalastjórn. 1. hluti: Almenn atriði, og tækniskýrslunni ISO/TR 15489-2 Upplýsingar og skjalfesting ? skjalastjórn. 2. hluti: Leiðbeiningar.

18.5.2004

Þjónusta - Staðlar út yfir gröf og dauða

?Það verður ekki þverfótað fyrir stöðlum?, segja sumir og stynja þungan. Þeir tengja staðla gjarna við skrifræði og aðför að skapandi hugsun. ?Það á að steypa alla í sama mót?, segja þeir, og beina ásakandi fingri til Brussel. Þeir sem vita betur vita, að án staðla væri mun erfiðara að fóta sig og tíminn sem ætti að verja í að skapa, færi í að leysa sömu vandamálin aftur og aftur. Betra er að leysa þau í eitt skipti fyrir öll með stöðlum. Það væri til dæmis tímafrekt og leiðinlegt að mixa ljósaperu í fatningu í hvert sinn sem skipt væri um peru; tálga rafhlöðu í vasaljós; læra ný umferðarmerki þegar ekið væri í nýju landi; ráða í ólíkar meðferðarmerkingar fyrir fatnað. Og fáir hafa gaman af því ?sköpunarstarfi? að leita uppi straumbreyta og klær í útlöndum til að koma hárþurrkunni eða tölvunni í samband, en á því sviði vantar einmitt víðtækari staðla. Þeir sem vita betur vita líka að Evrópusambandið býr ekki til neina staðla. Það gera aðeins þeir sem hafa hagsmuni af því að nota staðlana. Staðlarnir eru svo til frjálsra afnota fyrir alla.

18.5.2004

ISO/IEC 90003 - Verkfæri fyrir gæðaumbætur

?ISO/IEC 90003 tiltekur bestu aðferðir sem hlotið hafa alþjóðlega viðurkenningu. Staðallinn kemur öllum hugbúnaðarfyrirtækjum að gagni. Litlu máli skiptir á hvaða stigi fyrirtækin eru þegar þau byrja. Aðalmálið er að þau ætli sér sannarlega að bæta gæðin.? Þetta segir Victoria Hailey, sem verkstýrði alþjóðlegum hópi sérfræðinga við gerð staðalsins ISO/IEC 90003:2004, Softwareengineering ? Guidelines for the application of ISO 9001:2000 to computer software. Staðallinn tekur til allra verkþátta við gerð tölvuhugbúnaðar, frá þróun til sölu, afhendingu, starfrækslu og viðhalds.

18.5.2004

Tilraunasamfélag - Stuðningur ríkisstjórnarinnar

Á ríkisstjórnarfundi 27. apríl síðastliðinn samþykkti ríkisstjórn Íslands, að tillögu iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis, að styðja áfram við verkefnið ?Ísland ? tilraunasamfélag fyrir rafræn viðskipti?. Með því er tryggt að verkefnið haldi áfram að þróast og að Íslendingar haldi því frumkvæði sem þeir hafa haft í verkefninu.

1.3.2004

Staðlar gegn streitu

Í tímaritinu ISO Management Systems er því haldið fram að vinnuálag sé að aukast. Stressið grasserar í öllum greinum atvinnulífsins. Líkt og dauðinn sjálfur nær það jafnt til þeirra sem stjórna fyrirtækjunum og hinna sem vinna á gólfinu. Stressinu fylgja stórkostleg heilsufarsvandamál. Má þar nefna spennu, kvíða, þunglyndi, háls- og bakverk, hjartaslag, sykursýki og magasár. Það er óþarfi að halda upptalningunni áfram. Málið er grafalvarlegt. Auk þess er almennt viðurkennt að stressandi vinnuumhverfi leiðir til aukinnar fjarveru starfsfólks og hærri starfsmannaveltu, en hvort tveggja veldur minni skilvirkni og lakari framleiðni.

1.3.2004

Hönnun rafkerfa og Sjálfvirk innbrotaviðvörunarkerfi

Tvær handbækur frá Rafstaðlaráði (RST) eru fáanlegar á vefslóðinni www.stadlar.is/rst, Hönnun rafkerfa og Sjálfvirk innbrotaviðvörunarkerfi. Handbækurnar nýtast öllu fagfólki, hvor á sínu sviði. Sú fyrrnefnda þeim sem hanna rafkerfi og vinna eftir rafteikningum og sú síðarnefnda þeim sem koma að hönnun, uppsetningu og viðhaldi sjálfvirkra innbrotaviðvörunarkerfa.

1.3.2004

Næstu námskeið - ISO 9000 og ISO 17799

Staðlaráð býður almenn námskeið og sérnámskeið fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki. Nánari upplýsingar og skráning á www.stadlar.is

1.3.2004

Gæðastjórnun í menntun og fræðslu

Starfshópur á vegum Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO hefur sett saman leiðbeiningar um gæðastjórnun fyrir menntastofnanir og fyrirtæki sem sinna fræðslu. Leiðbeiningunum er ætlað að auðvelda þeim að notfæra sér gæðastjórnunarstaðalinn ÍST EN ISO 9001 Gæðastjórnunarkerfi ? Kröfur.

1.3.2004

Upplýsingavefir á stadlar.is

Á stadlar.is er ekki aðeins hægt að panta staðla og handbækur og skrá sig á námskeið. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um efni tengd stöðlum. Orðið Upplýsingavefir er ekki lýsandi sem krækja á vefsíðu, en það er úr vöndu að ráða þegar maður hefur safnað saman margskonar upplýsingum á einn stað. Ef einhver fær hugmynd að nýju nafni á þessa krækju á vef Staðlaráðs, þá myndum við gjarnan vilja heyra. Undir krækjunni er að finna upplýsingar sem allar eru mjög gagnlegar þótt þær heyri ekki endilega saman.

17.10.2003

Klæðilegt í sól - Sólvarnarföt

Það er kunnara en frá þurfi að greina að húð okkar þolir illa langvarandi sólarljós. Þótt blessuð sólin elski allt getur sólarljósið valdið skemmdum á húðinni, bæði til skemmri og lengri tíma litið. Það sem mestri hættu veldur er hið svokallaða útfjólubláa ljós. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að það má klæða þennan fjanda af sér.

17.10.2003

Hljóðvist og jarðskjálftar - Tíðindi fyrir hönnuði mannvirkja

Tvö ný skjöl frá Byggingarstaðlaráði munu fá hönnuði mannvirkja til að sperra eyrun. Annað skjalið er íslenskur staðall sem heitir ÍST 45 Hljóðvist ? Flokkun íbúðarhúsnæðis. Hitt skjalið er þjóðarskjal við evrópska þolhönnunarforstaðalinn FS ENV 1998-1-1 Eurocode 8: Design provisions for earthquake resistance of structures - Part 1-1: General rules - Seismic actions and general requirements for structures. Bæði staðallinn og þjóðarskjalið tóku gildi 15 júlí í ár.

17.10.2003

Tímamót hjá Staðlaráði Íslands

Á þessu ári eru liðin 10 ár frá því að Staðlaráð Íslands var stofnað sem sjálfstæð samtök hagsmunaaðila. Að stofni til er það þó eldra, því að Staðlaráð Íslands hið fyrra var stofnað árið 1987 sem ráðgjafarnefnd á vegum stjórnar Iðntæknistofnunar Íslands.

17.10.2003

Nýju lagnastaðlarnir - ÍST 67 og 68

Tveir nýir íslenskir lagnastaðlar tóku gildi 15. október 2003. Staðlarnir eru ÍST 67 Vatnslagnir og ÍST 68 Frárennslislagnir. Eldri útgáfa hvors staðals féll jafnframt úr gildi ásamt staðlinum ÍST 65.

17.10.2003

Tilraunasamfélög og staðlar

Að frumkvæði Íslendinga hefur hugmynd um tilraunasamfélög fyrir rafræn viðskipti í Evrópu fengið brautargengi innan staðlasamtaka Evrópu og Evrópusambandsins. Hugmyndin, sem hefur verið útfærð í samstarfi við íslenska hagsmunaaðila, fellur vel að stefnu ESB um örvun rafrænna viðskipta með þátttöku lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þá hefur ríkisstjórn Íslands lýst stuðningi við tilraunasamfélagsverkefnið.

17.10.2003

Ný útgáfa af ÍST 30

Einhlítur skilningur á samningum sem gerðir eru á milli verkkaupa og verktaka er nauðsynlegur. Staðallinn ÍST 30 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir hefur á liðnum áratugum verið notaður til þess að tryggja þennan sameiginlega skilning samningsaðila. Þekking á ákvæðum staðalsins er því nauðsynleg fyrir alla sem standa að verklegum framkvæmdum.

17.10.2003

Þetta er allt að koma - Nýtt efni

Útgáfa eftirfarandi efnis er að líta dagsins ljós eða er í deiglunni:

10.6.2003

Íslensk fyrirtæki vakni - Aðalfundur Staðlaráðs

Aðalfundur Staðlaráðs var haldinn í maí. Víglundur Þorsteinsson var þar endurkjörinn formaður til tveggja ára. Í ræðu sem formaðurinn hélt á fundinum fagnaði hann nýjum lögum um Staðlaráð sem samþykkt voru á þessu ári. Nýju lögin eru ávöxtur stefnumótunar sem fram fór á liðnu ári og munu að mati formannsins renna styrkari stoðum undir faglegt starf Staðlaráðs. Víglundur gerði íslensk fyrirtæki og Evrópu einnig að umtalsefni.

10.6.2003

Leyndardómar forskeytanna - Gott að vita

Forskeyti staðla eru skammstafanir. ÍST er skammstöfun fyrir ?íslenskur staðall?, EN skammstöfun fyrir Europäische Norm uppá þýsku. BS fyrir British Standard, ISO fyrir International Standars Organisation, DS fyrir Dansk Standard og svo mætti áfram telja. Forskeytin gefa til kynna hvaða lönd eða staðlasamtök hafa tekið viðkomandi staðal upp og í hvaða röð það gerðist.

10.6.2003

ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Handbók um gæðastjórnun frá ISO

Handbókin um ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki hefur verið endurskoðuð og uppfærð. Þessi önnur útgáfa er ómissandi leiðsögn um ISO 9001:2000 gæðastjórnunarstaðalinn. Í bókinni eru leiðbeiningar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki um hvernig má skipuleggja og stýra gæðum vöru og þjónustu til að uppfylla betur kröfur markaðarins og væntingar viðskiptavina. Í íslenskri þýðingu heitir bókin ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn.

10.6.2003

Íslenskur staðall um lykt

Ekki er nokkur vandi að vita hvort maður er í fýlu. Þó er mat á lykt ákaflega huglægt. Fyrir dómstólum og við mat á umhverfisáhrifum væri til að mynda betra ef hægt væri að leggja hlutlægan mælikvarða á lykt.

10.6.2003

Áhrif Íslands í Evrópusamstarfi - Staðlar og stjórnsýsla

Staðlar og stjórnsýsla hafa átt samleið frá örófi alda. Þó hefur staðlastarf og notkun staðla aldrei verið mikilvægari en einmitt nú á tímum náinnar Evrópusamvinnu og alþjóðavæðingar. Staðlar einkenna nútímastjórnsýslu og löggjafarstarf og eru oft forsenda skilvirkra laga og reglna. Mikilvægi staðlasamstarfsins í Evrópu fyrir Ísland verður seint ofmetið.

13.2.2003

Nýr staðall um skjalastjórnun markar tímamót

Alþjóðlegur staðall um skjalastjórn, ISO 15489, tók gildi haustið 2001. Mikill áhugi er hjá fyrirtækjum og stofnunum hér á landi á því að staðallinn verði þýddur og gerður að íslenskum staðli. Verið er að leggja drög að þýðingu staðalsins hjá Staðlaráði Íslands og innan skamms verður hafist handa við fjáröflun til verkefnisins. Útgáfa ISO 15489 er merkur atburður fyrir skjalastjórn og jafnast að mikilvægi á við ISO 9000 fyrir gæðastjórnun.

13.2.2003

Hagstætt Ný reglugerð um leiktæki og leiksvæði

Staðlaráð vill vekja sérstaka athygli tæknifólks hjá sveitarfélögum og verkfræðistofum á stöðlum sem vitnað er til í nýrri "Reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim." Markmið reglugerðarinnar, sem er gefin út af Umhverfisráðuneyti, ?er að stuðla að öryggi barna og annarrra með því að tryggja að leikvallatæki og leiksvæði séu hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan og viðurkenndan hátt.? 30 % afsláttur til 28. febrúar

13.2.2003

ISO 19011 Einn staðall fyrir bæði gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi

Beðið hefur verið eftir því að út kæmi hjá ISO sameiginlegur staðall fyrir úttektir á bæði gæða- og umhverfisstjórnunarkerfum. ISO 19011 heitir staðallinn og er einn af fjórum svonefndum kjarnastöðlum ISO 9000 raðarinnar.

13.2.2003

Nýtt efni - Þetta er allt að koma

Hjá Staðlaráði er stöðugt unnið að útgáfuverkefnum í samvinnu við fagráð, fagstjórnir og aðra sem hafa áhuga á og hagsmuna að gæta í staðlamálum. Útgáfa eftirfarandi efnis er um það bil að líta dagsins ljós eða í deiglunni:

13.2.2003

Aðgengi fyrir alla Ráðstefna í mars

Evrópsku staðlasamtökin CEN, CENELEC og ETSI hafa tekið höndum saman um ráðstefnu undir heitinu Aðgengi fyrir alla. Ráðstefnan fer fram í Acropolis ráðstefnumiðstöðinni í Nice í Frakklandi dagana 27. og 28. mars. Tilefnið er sú ákvörðun Evrópuráðsins að árið 2003 skuli vera ár fatlaðra í Evrópu.

14.10.2002

- ÍST 150 Fjöldi og staðsetning tengla í íbúðarhúsnæði

Rafstaðlaráð lauk nýlega við gerð staðalsins ÍST 150:2002 Raf- og boðlagnir fyrir íbúðarhúsnæði: Gerð, staðsetning og fjöldi tengistaða, sem gefinn var út og staðfestur af Staðlaráði 1. október. Staðallinn tiltekur lágmarksfjölda og staðsetninu tengla fyrir raf- og boðskiptalagnir í íbúðarhúsnæði. Staðallinn segir einnig til um lagnaleiðir og lágmarksstærðir tengikassa og röra fyrir lagnakerfi.

14.10.2002

Alþjóðlegi staðladagurinn 14. október Hvaða gagn er að stöðlum

Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Þegar ég tilkynnti heima hjá mér 14. október í fyrra að þessi dagur væri alþjóðlegi staðladagurinn, þá sagði ein dóttir mín í svona frekar hortugum tón: ?Só? Og hvernig ætlarðu svosem að halda upp á daginn? Kannski með því að fara út í búð og kaupa batterí?? Ég varð hálf hvumsa við en áttaði mig svo á því að þannig hafði ég einmitt reynt að útskýra fyrir dætrunum hvað staðlar væru og hvaða gagn þeir gerðu ? að þegar vantaðiný batterí í Game Boy-tölvuleikinn þá væri hægt að kaupa þau í næstu búð, þótt svo tölvuleikurinn hefði verið keyptur í Belgíu en batteríin framleidd í Japan eða Singapúr, og að ástæðan fyrir því að þetta passaði saman væru alþjóðlegir staðlar.

20.9.2002

Heilsusamlegur staðall Réttu sólgleraugun fyrir veturinn

Þótt haust gangi í garð er ekki ástæða til annars en bjartsýni. Einhverntíma styttir upp og þrátt fyrir að sól lækki á lofti eru framundan sólríkir vetrardagar, sumir snjóhvítir með skjannabirtu. Þá koma sólgleraugu í góðar þarfir ? þó ekki öll sólgleraugu.

20.9.2002

HACCP og nýr íslenskur staðall Fyrir alla sem höndla með matvæli

Fyrir tilstuðlan Samtaka iðnaðarins ákvað Staðlaráð Íslands, að höfðu samráði við hagsmunaðila, að gefa út íslenska þýðingu á dönskum staðli sem er notaður í tengslum við vöruþróun og framleiðsluí matvælafyrirtækjum og svokallað HACCPkerfi. Staðalinn nýtist öllum gerðum matvælafyrirtækja, að meðtöldum dreifingaraðilum og flutningafyrirtækjum, þeim sem selja umbúðir, búnað, hráefni og annað sem tengist meðhöndlun matvæla. Staðallinn heitir ÍST DS 3027:1997 Öryggi matvæla samkvæmt HACCP (greining hættu og mikilvægra stýristaða) ? Kröfur til matvælaframleiðenda og undirverktaka þeirra.

20.9.2002

Nýtt efni - Þetta er allt að koma

Hjá Staðlaráði er stöðugt unnið að útgáfuverkefnum í samvinnu við fagráð, fagstjórnir og aðra sem hafa áhuga á og hagsmuna að gæta í staðlamálum.

20.9.2002

Tímarit um gæða- og umhverfisstjórnun

Nýtt tímarit Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO um gæða- og umhverfisstjórnun er ómissandi öllum sem hafa áhuga á gæðastjórnun samkvæmt ISO 9001 eða umhverfisstjórnun samkvæmt ISO 14001.

20.9.2002

Góðir gestir Svona gera smáþjóðir

Í maímánuði sl. voru góðir gestir í heimsókn hjá Staðlaráði Íslands. Þar var um að ræða þriggja manna sendinefnd frá eistnesku staðlastofnuninni, EVS ? framkvæmdastjórinn Sven Kasemaa, yfirmaður staðlasviðs Raul Juhanson og yfirmaður sölu- og upplýsingasviðs, Kristel Schwede.

20.9.2002

Nýr staðall - ÍST 69 Umreikningur á varmagjöf ofna

Mikilvægt er að samræmdar reglur gildi um umreikning á varmagjöf ofna frá prófuðum staðalstærðum yfir í raunstærðir. Þannig sitja allir aðilar á markaði við sama borð og auðvelt er að bera saman ofna frá mismunandi framleiðendum.

20.9.2002

Næstu námskeið Staðlaráðs - ISO 9000 og ISO 17799

Staðlaráð býður almenn námskeið og sérnámskeið fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki.

10.6.2002

Staðlar og tónlist heyra saman - Do Re Mi Fa ...

Tónlistin þekkir engin landamæri. Annað alþjóðlegt fyrirbæri eru staðlar. Það er vegna þessa skyldleika sem ISO 15707, nýr alþjóðlegur staðall, hefur litið dagsins ljós. Á tímum tölvuvæddra gagnagrunna og Netsins, gæti hann valdið straumhvörfum í viðskiptum með tónverk.

10.6.2002

Námskeið um ISO 17799 - Stjórnun upplýsingaöryggis

Ásíðustu vikum hefur Staðlaráð haldið úti námskeiði undir heitinu ?Örugg meðferð upplýsinga ? Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO 17799?. Þrjú námskeið hafa þegar verið haldin, þar af eitt sérnámskeið fyrir Landsvirkjun, og stefnt er að því að taka upp þráðinn að nýju í haust.

10.6.2002

Brot úr ársskýrslu - Aðalfundur Staðlaráðs

Aðalfundur Staðlaráðs Íslands var haldinn 23. maí síðastliðinn. Hér á eftir getur að líta brot úr ársskýrslu fyrir árið 2001.

10.6.2002

Panta íslenska staðla - Öruggara á netinu

Staðlaráð vinnur stöðugt að því aðgera viðskiptavinum sínum auðveldar fyrir að nálgast staðla, en þar kemur netið að sjálfsögðum mjög við sögu. Að panta staðla af heimasíðu Staðlaráðs, www. stadlar.is, er í senn einfalt og tryggir best að pantanir komist til skila.

10.6.2002

Raftæknitákn í gagnabrunni - Rafteikningar

Viðskiptavinum Staðlaráðs býðst að gerast áskrifendur að raftæknitáknum gegnum Netið og nota táknin í teikningar sínar.

10.6.2002

Fyrir byggingariðnað - Þolhönnunarstaðlar

Byggingarstaðlaráð (BSTR) hefur í samvinnu við fjölmarga hagsmunaaðila í byggingariðnaði unnið að gerð sérákvæða við nýju dönsku þolhönnunarstaðlana og gerð þjóðarskjala við evrópsku forstaðlana um þolhönnun, svokallaða ?Eurocodes?.Fólk í íslenskum byggingariðnaði þarf að huga að afrakstri þessa viðamikla starfs, nýjum stöðlum ásamt sérákvæðum og þjóðarskjölum sem taka gildi nú þann 1. júlí.

10.6.2002

Staðlar fyrir börn - Leikvallastaðlarnir

Leikvallastaðlarnir ÍST EN 1166 og ÍST EN 1177 eru fyrir börn, en líka byggingarfulltrúa sveitarfélaga, verktaka, stjórnendur grunnskóla og leikskóla, foreldrafélög, áhugafólk um öryggi barna og aðra sem koma að uppsetningu eða viðhaldi og rekstri leiktækja.

19.2.2002

Staðlabúðin - Pantið staðla á www.stadlar.is

Í staðlabúðinni má meðal annars finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum. Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

19.2.2002

Ódýrir og verðmætir - Staðlar borga sig

Þeir sem nota staðla eru yfirleitt ekki í vafa um gagnsemi þeirra, líta á staðla sem verkfæri og kvarta sjaldnast undan verðinu. Staðlaráð býður enda viðskiptavinum sínum hagstæðari kjör en staðlastofnanir þeirra landa sem við gjarna miðum okkur við. Verð á stöðlum á Íslandi er yfirleitt alltaf lægra og oft miklu lægra í slíkum samanburði.

19.2.2002

Námskeið Staðlaráðs - ISO 9000, vélar og lækningatæki

Námskeið Staðlaráðs hafa hlotið frábærar undirtektir. Þegar eru í boði námskeið um kjarnastaðlana í ISO 9000 röðinni, um CE-merkingu véla og námskeið um CE-merkingu lækningatækja. Námskeiðin eru öllum opin, en Staðlaráð hefur jafnframt haldið sérnámskeið fyrir félagasamtök og fyrirtæki.

19.2.2002

ISO 9000 - Samskipti í brennidepli

Það eru engin ný sannindi að viðskiptavinurinn ráði, þegar allt kemur til alls, gæfu og gengi fyrirtækja. Þess vegna er í gæðastjórnunarstaðlinum ISO 9001:2000 gert ráð fyrir að viðskiptavinurinn sé bæði upphaf og endir allra athafna fyrirtækisins. Í því felst að samskipti við viðskiptavini eru afar mikilvæg.

19.2.2002

Þýðing á stöðlum um steinsteypu - ræðst af áhuga byggingariðnaðarins

Staðlaráð Íslands, í samstarfi við Byggingarstaðlaráð og Samtök iðnaðarins, er að kanna áhuga byggingariðnaðarins og annarra hagsmunaaðila á íslenskri þýðngu tveggja staðla um steinsteypu. Um er að ræða annars vegar staðalinn ÍST EN 206-1 Concrete ? Part 1: Specification, performance, production and conformity, og hins vegar forstaðalinn FS ENV 13670-1 Execution of concrete structures ? Part 1: Common.

19.2.2002

Rafstaðlaráð - Spennandi verkefni

Unnið er að spennandi verkefnum á vegum Rafstaðlaráðs, innan þeirra þriggja tækninefnda sem starfa á vegum ráðsins.

19.2.2002

SARÍS Samráð um rafrænt Ísland

SARÍS ? Samráð um rafrænt Ísland er heiti nýstofnaðs samráðsvettvangs um rafræn viðskipti í íslensku atvinnulífi. Megináhersla er á að stuðla að stöðlun og samræmingu í rafrænum viðskiptum fyrirtækja og stofnana. Stofnfundur SARÍS var 17. janúar síðastliðinn.

19.2.2002

Construct North - málþing 27. febrúar til 3. mars

Samtök iðnaðarins og samstarfsaðilar efna til málþings og ráðstefna á Grand Hótel og fagsýningar og fyrirlestradaga í Laugardalshöll undir yfirskriftinni Construct North ? hönnun, tækni og mannvirkjagerð á norðurslóðum. Að baki efnistökum og þema CN liggur stefnumótun og framtíðarsýn íslensks byggingariðnaðar árið 2005 sem fjölmörg fyrirtæki og fagfélög innan SI tóku þátt í að móta.

19.2.2002

CE-merking véla - Námskeið 20. og 21. febrúar

Staðlaráð Íslands heldur námskeið um CEmerkingu véla 20. og 21. febrúar. Markmiðið er að þátttakendur verði færir um að greina hvort vörur falli undir vélatilskipun ESB og læri hvernig á að CE-merkja slíkar vörur.

19.2.2002

Allir staðlar á einum stað

Staðlaráð Íslands er hvorki elsta n fjölmennasta staðlastofnun Evrópu. Við leggjum okkur hins vegar fram um að þjóna viðskiptavinum af kostgæfni. Markmiðið er að viðskiptavinir okkar geti á einum stað fengið alla heimsins staðla.

15.1.2002

SARÍS Samráð um rafrænt Íslands

Fimmtudaginn 17. janúar n.k. munu fjögur samtök sem með einum eða öðrum hætti hafa staðið fyrir umræðu og verkefnum á sviði upplýsingatækni, þ.m.t. rafrænna viðskipta, undirrita samkomulag um samráðsvettvanginn SARÍS, Samráð um rafrænt Ísland.

30.10.2001

Íslenskir staðlar um stjórnun upplýsingaöryggis koma út 15. nóvember Staðlana er hægt að panta nú þegar á sérstöku kynningarverði með 15% afslætti

Um er að ræða íslenska þýðingu á alþjóðlega staðlinum ÍST ISO/IEC 17799:2000 Upplýsingatækni - Starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsingaöryggis og breska staðlinum ÍST BS 7799-2:1999 Stjórnun upplýsingaöryggis - 2. hluti: Forskrift fyrir stjórnun upplýsingaöryggis, sem er kröfustaðall. Staðlarnir eru upphaflega breskir og tilheyrðu röð sem bar auðkennið BS 7799. Telja má víst að staðlarnir eigi eftir að hljóta mikla útbreiðslu á Íslandi líkt og víða um lönd. Þörf fyrir leiðbeiningar og handhæg verkfæri á þessu sviði er brýn. Í inngangi ÍST ISO/IEC 17799 segir meðal annars:

1.10.2001

Eldvarnarprófanir - Staðall fyrir framleiðendur og innflytjendur eldvarnarhurða

Á liðnu ári var staðfestur staðallinn ÍST EN 1634-1:2000 Fire resistance tests for door and shutter assemblies - Part 1: Fire doors and shutters. Líkt og nafnið gefur til kynna, fjallar staðallinn um aðferðir til að prófa og ákvarða viðnám eldvarnarhurða af margvíslegu tagi gegn eldi. Staðallinn er notaður ásamt staðli sem heitir ÍST EN 1363-1 Fire resistance tests - Part 1: General requirements. Staðallinn ÍST EN ISO13943:2000 Fire safety - Vocabulary hefur síðan að geyma skilgreiningar á hugtökum.

1.10.2001

Alþjóðlegi staðladagurinn 14. október 2001 - Staðlar og umhverfi hönd í hönd

Alþjóðlega Staðladeginum verður fagnað í þrítugasta og annað sinn þann 14. október. Þetta árið er dagurinn helgaður umhverfinu. Það er ekki að ófyrirsynju. Skilyrði þess að markmið þjóða í umhverfismálum nái fram að ganga er samkomulag um hvernig skuli t.d. mæla mengun og meta árangur. Án sammælis um slík grundvallaratiði - án staðla - verður hvorki samið um eitt né neitt.

1.10.2001

Stjórnun umhverfismála í fyrirtækjum - ISO 14000

Fyrirtæki víða um heim hafa fundið fyrir vaxandi samkeppni á öllum sviðum síðustu áratugi. Ekki er útlit fyrir annað en samkeppnin haldi áfram að aukast. Lönd sem áður gátu treyst því að vera næstum einráð á ákveðnu sviði standa allt í einu frammi fyrir því að annars staðar á hnettinum er fyrir samskonar þekking, þekking sem miðlað er með sífellt meiri hraða.

1.10.2001

Fötin lækna manninn - British Standards 100 ára

Bresku staðlasamtökin BSI áttu aldarafmæli á þessu ári. Þótt aldurinn færist yfir þá er nýjungagirnin söm við sig, enda 100 ár kannski ekki svo langur tími þegar stofnanir eiga í hlut. Hvaða sem því líður, þótti við hæfi að samtökin héldu uppá afmælið með því að verðlauna einhverja uppfinningu eða nýjung sem skæri sig úr. Fyrir valinu urðu föt sem lækna. Margir sækja sér hressingu og andlega upplyftingu í fatakaup, en hér er dálítið meira á ferðinni.

1.10.2001

Staðlamál og stadlar.is - ekki bara andlitslyfting

Það blasir við og þarf ekki að hafa um það mörg orð: Staðlamál - fréttabréf Staðlaráðs Íslands - hefur fengið nýtt útlit. Þetta er liður í allsherjar andlitslyftingu Staðlaráðs, andlitslyftingu sem reyndar er ekki öll í andliti fólgin heldur snýst fyrst og fremst um að bæta þjónustu við viðskiptavini okkar.

1.10.2001

Hvað er að græða á gæðastjórnun - Morgunráðstefna fyrir stjórnendur

Efnt verður til stuttrar ráðstefnu í SALNUM, Tónlistarhúsi Kópavogs, föstudagsmorguninn 12. október undir heitinu ?ISO 9000 - verkfæri til að gera betur. Hvað er að græða á gæðastjórnun??

28.9.2001

RÁÐSTEFNA föstudaginn 12. október - Hvað er að græða á gæðastjórnun

Forsvarsmenn framsækninna fyrirtækja segja skoðun sína á því og greina frá reynslu sinni af gæðastjórnun - Morgunráðstefna í SALNUM, Tónlistarhúsi Kópavogs, frá kl. 8:45-11:30. - ÓMISSANDI TÆKIFÆRI FYRIR ALLA STJÓRNENDUR til að kynnast dýrmætri reynslu annarra stjórnenda frá fyrstu hendi. - SKRÁÐU ÞIG STRAX !

24.9.2001

ISO 9000:2000 - Gæðastjórnunarstaðlar á íslensku

Þrír af fjórum kjarnastöðlum í ISO 9000 gæðastjórnunarröðinni voru staðfestir sem íslenskir staðlar 30. júní og fást hjá Staðlaráði í íslenskri þýðingu. Útgáfurnar innihalda einnig texta staðlanna á ensku, en þetta er í þriðja sinn sem staðlarnir eru staðfestir sem íslenskir staðlar. Staðlarnir mynda eina heild og bæta hvern annan upp. Þeir sem vilja vinna samkvæmt ISO 9000 gæðakerfi þurfa að hafa kjarnastaðlana við höndina. Staðlarnir þrír kosta samtals kr. 27.028,-.

1.6.2001

Staðall um fasteignaviðskipti - Fyrir kaupendur og seljendur nýrra og ófullbúinna fasteigna

Í fasteignaviðskiptum almennings er aleigan venjulega í húfi og reyndar gott betur. Þess vegna ríður á að viðskiptin séu traust og örugg. Fyrirtæki, stofnanir, ríki og sveitarfélög eiga einnig mikið undir því að fasteignaviðskipti gangi snurðulaust fyrir sig. Til þess að svo megi verða þarf að tryggja að skilningur kaupenda og seljenda sé hinn sami á ákvæðum samninga sem þeir gera sín á milli. Þegar verið er að kaupa og selja nýtt eða ófullbúið húsnæði er staðallinn ÍST 51 Byggingarstig húsa ómissandi.

1.6.2001

Staðall um alútboð og endurskoðun ÍST 30

Að venju er margt á könnu Byggingarstaðlaráðs. Auk þess að vinna að endurskoðun á staðlinum um byggingarstig húsa, sem fjallað er um á forsíðu fréttabréfsins, eru tvö mál sem ástæða er til að nefna sérstaklega. Annars vegar endurskoðun á staðlinum ÍST 30 og hins vegar hugmynd um að gera staðal um alútboð.

1.6.2001

Nýtt merki Staðlaráðs - Tákn um trausta og fjölbreytta þjónustu

Staðlaráð Íslands flutti í nýtt og betra húsnæði fyrir skömmu. Þess vegna þótti við hæfi að hressa enn frekar uppá útlitið með nýju merki.

1.6.2001

Nýr forseti CEN: Þurfum að flýta gerð staðla

Prófessor Christian Beckervordersandforth var nýlega kjörinn forseti Evrópsku staðlasamtakanna, CEN. Hann hefur frá því 1990 unnið á þróunar- og tækniþjónustusviði stórfyrirtækisins Ruhrgas í Þýskalandi auk þess að kenna við Bochumháskóla. Beckervorder-sandforth gegnir jafnframt margvís-legum trúnaðarstörfum fyrir gas- og vatnsveitur í Þýskalandi. En hvaða skoðanir hefur nýi forsetinn á evrópsku staðlasamstarfi, hvað er þar vel gert og hvað má betur fara?

1.6.2001

Aðalfundur Staðlaráðs - Brot úr ræðu fráfarandi formanns

Aðalfundur Staðlaráðs Íslands var haldinn 3. maí. Það sem helst bar til tíðinda var að formaður ráðsins til margra ára, Friðrik Sigurðsson, óskaði ekki eftir endurkjöri. Í hans stað var kjörinn Víglundur Þorsteinsson. Staðlaráð býður Víglund hjartanlega velkominn um leið og Friðriki eru þökkuð góð viðkynning og ánægjulegt samstarf á liðnum árum. Hér á eftir fara brot úr ræðu fráfarandi formanns, sem hann flutti á aðalfundinum.

Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Staðlamál - fréttir » Viðburðir