STAÐLAPÓSTURINN - rafrænt fréttabréf Staðlaráðs
23.11.2009
Er ISO best falda stjórnunarleyndarmálið? - ISO stjórnunarstaðlar fyrir alla
Ráðstefna fimmtudag 26. nóvember á kl. 9-12 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur
Jafnt fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í gæðastjórnun og þá sem hafa nú þegar vottuð gæðakerfi.
Ráðstefnan er haldin í boði Stjórnvísi, Orkuveitunnar og Staðlaráðs.
2.11.2009
NÁMSKEIÐ 12. nóvember: ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði uppbygging og notkun
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.
2.11.2009
Stofnfundur um grunngerð vefþjónustu banka og sparisjóða
FAGSTAÐLARÁÐÍ UPPLÝSINGATÆKNI (FUT) boðar til stofnfundar tækninefndar föstudaginn 13. nóvember kl. 13:00 - 14:30 hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2, Reykjavík.
Megin hlutverk tækninefndar um sambankaskema verður að þróa og móta tækniforskriftir og staðla fyrir opið og staðlað umhverfi vefþjónustu banka og sparisjóða á Íslandi.
Vinsamlega tilkynnið um áhuga á þátttöku í starfi nefndarinnar og mætingu á stofnfundinn til Guðbjargar Björnsdóttur fyrir hádegi 11. nóvember. Þeir sem hyggja á þátttöku í nefndinni og ekki
eru þegar aðilar að Staðlaráði Íslands munu fá sendar upplýsingar um aðild og umsóknareyðublað.
Nánari upplýsingar er að finna í eftirfarandi skjali:
Stofnfundur - Fundarboð ( pdf, 59 kb )
9.10.2009
Lyklar að hraða og hagræðingu - Ráðstefna á Grand Hótel 14. október kl. 13 - 17
Skýrslutæknifélag Íslands og FUT, fagstaðlaráð Staðlaráðs í upplýsingatækni, efna til ráðstefnu á alþjóðlega staðladaginn um rafræn viðskiptaskjöl og tengda þjónustu. Fjallað verður um efnið frá ýmsum sjónarhornum og leitast við að svara eftirtöldum spurningum:
- Hvernig er rafrænn reikningur útbúinn?
- Hvaða þjónusta er í boði fyrir rafræn viðskiptaskjöl?
- Hver er ávinningur og hagur notenda?
- Hvað þurfa hugbúnaðarhús að hafa í huga?
9.10.2009
NÁMSKEIÐ 22. október: Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 27001 - Lykilatriði, uppbygging og notkun
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum.
9.10.2009
NÁMSKEIÐ 12. nóvember: ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði uppbygging og notkun
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.
3.9.2009
Drög að tækniforskrift - Athugasemdir óskast fyrir 7. september
Gerð hafa verið gerð drög að tækniforskrift fyrir einfaldan rafrænan reikning. Tækniforskriftin lýsir því hvernig setja á upp rafrænan reikning þannig að hann falli að skilgreiningum NES, Northern European Subset, umgjörð 4.
Tækniforskriftin var unnin af tækninefnd Staðlaráðs Íslands um grunngerð rafrænna viðskipta. Stefnt er að því að gefa drögin út sem tækniforskrift síðar í þessum mánuði með þeim breytingum sem þörf kann að verða á.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Björnsdóttir hjá Staðlaráði.
Athugasemdir við tækniforskriftina þurfa að berast Guðbjörgu fyrir kl. 11:00 mánudaginn 7. september.
3.9.2009
Námskeið 24. september
23.6.2009
Helstu verkefni Byggingarstaðlaráðs
Á vegum Byggingarstaðlaráðs (BSTR) er um þessar mundir unnið að fimm séríslenskum staðlaverkefnum. Hvert verkefni er unnið af hópi sérfræðinga og ráðgjafa sem hittast að jafnaði á tveggja vikna fresti. Ætla má að liðlega 40 sérfræðingar og ráðgjafar sinni þessari vinnu. Vinnuhóparnir samanstanda af ráðgjafaverkfræðingum, verkfræðingum úr háskólasamfélaginu og fleirum sem hagsmuni hafa af staðlastarfi. Umrædd verkefni eru þessi:
23.6.2009
ÍST 150 Raf- og fjarskiptalagnir fyrir íbúðarhúsnæði – Gerð, staðsetning og fjöldi tengistaða
Ný útgáfa staðalsins tók gildi 15. Júní. Tækninefndin var skipuð fulltrúum frá Neytendasamtökunum, SART, Rafiðnaðarsambandinu, Símanum, Eflu verkfræðistofu, Rafiðnaðarskólanum, Orkuveitu Reykjavíkur, Epal og Staðlaráði. Ný útgáfa staðalsins var löguð að að breyttum markaði og breytingum sem hafa orðið á reglugerðum.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Sigurðarson hjá Staðlaráði.
23.6.2009
Staðlar seljast vel í kreppu - Úr ræðu formanns á aðalfundi Staðlaráðs
„Engin er búmaður nema hann kunni að barma sér“ segir íslenskt máltæki – en þrátt fyrir hrun bankanna og snarpan samdrátt í atvinnulífinu kemur rekstur Staðlaráðs vel út og það sem gleður okkur sérstaklega er að staðlar seljast vel í kreppu. Kannski ætti það ekki að koma okkur á óvart. Þegar kreppir að opnast augu manna fyrir gildi þess að nota undirstöðuform, kvarða, viðmið, fyrirmyndir sem er það sem staðall er, samkvæmt orðabókum.
23.3.2009
Tæknireglur um fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði
Tæknireglur um fjarskiptalagnir eru samdar fyrir hönnuði, verktaka, kaupendur og seljendur íbúðarhúsnæðis og eiga við um nýbyggingar, endurnýjun fjarskiptalagna og -búnaðar í eldri húsum og viðhald. Reglurnar fjalla bæði um hönnun, efnisval, handverk og skil á verki. Verkkaupi getur nú gengið frá samningi við verktaka áður en verk er hafið, þar sem tekið er fram að verkið skuli vera unnið samkvæmt TS 151 Tæknireglur um fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði – Loftnetskerfi – Netkerfi – Símakerfi - Hússtjórnarkerfi.
23.3.2009
Námskeið 2. apríl
11.3.2009
ISO 9001:2008 á íslensku - 30% kynningarafsláttur
Íslensk þýðing á nýrri útgáfu ÍST EN ISO 9001 er nú fáanleg hjá Staðlaráði. Líkt og í fyrri útgáfum er enski textinn birtur við hlið þess íslenska. Engar nýjar kröfur eru í 9001:2008. Aðeins er leitast við að skýra kröfurnar betur frá því sem var. ISO 9001:2008 kom út sem alþjóðlegur staðall 15. desember. Ári eftir útgáfu ISO 9001:2008 skulu allar nýjar vottanir og endurvottanir gerðar samkvæmt þeim staðli. Tveimur árum frá þeim tíma falla úr gildi vottanir samkvæmt ISO 9001:2000.
Panta ISO 9001:2008 með afslætti >>
Þýddir alþjóðlegir staðlar með 25% afslætti
Auk þess að bjóða íslenska þýðingu ISO 9001 með 30% kynningarafslætti hefur Staðlaráð ákveðið að bjóða valda þýdda alþjóðlega staðla með 25% afslætti. Þannig vill Staðlaráð koma til móts við viðskiptavini vegna mjög óhagstæðrar gengisþróunar undanfarna mánuði.
Eftirtaldir staðlar verða með 25% afslætti um sinn: ÍST EN ISO 9000, ÍST EN ISO 9004, ÍST ISO 27001, ÍST ISO 27002 (17799), ÍST EN ISO 14001, ÍST ISO 15489-1, ÍST ISO/TR 15489-2.
Pantanir á www.stadlar.is (sláið aðeins inn númer staðals í leitarreit, ekki forskeyti)
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.



















