STAÐLAPÓSTURINN - rafrænt fréttabréf Staðlaráðs
10.11.2008
NÁMSKEIÐ 20. nóvember
10.11.2008
Staðall um launajafnrétti kynja

Félags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við Staðlaráð Íslands að það hafi umsjón með gerð staðals sem notaður verði til að sannreyna hvort launa- og starfsmannastefna stofnana og fyrirtækja samræmist stefnu um launajafnrétti kynja og jafnrétti við ráðningar og uppsagnir. Atvinnurekendur sem uppfylla skilyrði staðalsins eiga síðan að geta fengið formlega vottun fyrir því að launa- og starfsmannastefna þeirra samræmist lögum um jafnrétti kynjanna.
21.10.2008
NÁMSKEIÐ um ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlana 6. nóvember
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði uppbygging og notkun
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 12 manns. Skráning stendur yfir >>
21.10.2008
ÍST 66:2008 Varmatap húsa - Útreikningar
Þann 1. október tók gildi íslenskur staðall ÍST 66 Varmatap húsa – Útreikningar sem gildir með og vísar til danska staðalsins DS 418:2002 Beregning af bygningers varmetab og inniheldur íslensk sérákvæði við hann.
21.10.2008
Nýr ISO 9001 tekur gildi 15. nóvember
Ný útgáfa gæðastjórnunarstaðalsins ISO 9001:2008 mun líta dagsins ljós 15. nóvember. Mikilvægustu punktarnir sem gengið er útfrá í áætlun um innleiðingu nýju útgáfunnar liggja þegar fyrir. Greint var frá þeim í Staðlamálum, fréttabréfi Staðlaráðs.
1.10.2008
NÁMSKEIÐ um gæðaúttektir 9. október
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Innri úttektir samkvæmt ISO
19011
Námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir samkvæmt staðli eða þurfa að þekkja hvernig innri úttektir ganga fyrir sig.
Nánari upplýsingar og skráning >>
1.10.2008
Nýr ISO 9001 væntanlegur
Ný útgáfa gæðastjórnunarstaðalsins ÍST EN ISO 9001:2008 er væntanleg fyrir árslok. Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO og alþjóðleg samtök vottunarstofa, IAF, hafa komið sér saman um áætlun til þess að innleiðing nýju útgáfunnar gangi greiðlega fyrir sig. Eftirfarandi eru mikilvægustu punktarnir sem gengið er útfrá í áætluninni:
8.4.2008
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði, uppbygging og notkun
NÁMSKEIÐ 8. maí
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 12 manns.
8.4.2008
ISO/IEC 29500 verður að alþjóðlegum staðli
Samþykkt var að gera frumvarp að ISO/IEC 29500 Information technology -- Office Open XML file formats að alþjóðlegum staðli. Atkvæðagreiðslunni lauk á miðnætti 29. mars síðastliðinn. Frumvarpið var samþykkt með 75% atkvæða en 14% voru á móti. Til þess að frumvarp verði að staðli þarf það að fá 2/3 hluta atkvæða (66,66%). Það skilyrði er jafnframt sett að 1/4 hluti (25%) atkvæða sé ekki greiddur gegn frumvarpinu.
22.2.2008
UMDEILT FRUMVARP að staðli um skráarsnið - Enn skal reynt
Frumvarpið ISO/IEC DIS 29500 Information technology -- Office Open XML file formats fékk ekki tilskilinn stuðning meðal aðila að Alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO og Alþjóðlega raftækniráðinu IEC í atkvæðagreiðslu síðastliðið haust. Markmiðið með fyrirhuguðum staðli var að auðvelda skipti algengra skjala milli mismunandi stýrikerfa og hugbúnaðar. Töluverður skoðanamunur er uppi meðal hagsmunaaðila, en þekktustu skjöl af þessu tagi eru eflaust þau sem tilheyra svonefndum Office-pakka frá Microsoft: Word, Excel og PowerPoint. Þótt hagsmunaaðilar hafi ekki náð saman í þetta sinn, verður þess enn freistað að ná samkomulagi.
Fundur verður um málið í Genf 25. - 29. febrúar.
22.2.2008
NÁMSKEIÐ um gæðaúttektir 28. febrúar: Innri úttektir samkvæmt ISO 19011
Námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir samkvæmt úttektarstaðlinum ISO 19011 eða þurfa að þekkja framgang gæðaúttekta.
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur skilji til hlítar tilgang og ferli innri úttekta á gæðakerfi samkvæmt ISO 19011, geti gert grein fyrir mikilvægustu atriðum slíkra úttekta og verði færir um að framkvæma innri úttekt í samvinnu við reyndan úttektarmann.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 12 manns.
31.1.2008
ISO 9001:2000 Vinnubók fyrir þjónustufyrirtæki
Í vinnubókinni er sett fram aðferðafræði fyrir þjónustufyrirtæki sem taka ákvörðun um að innleiða gæðastjórnunarkerfi samkvæmt staðlinum ISO 9001 og e.t.v. sækja um vottun. Hjálpartækin í vinnubókinni (spurningar, gátlistar og leiðbeiningar um áætlanagerð) miðast við ákvarðanir og umræður sem þörf er á innan fyrirtækja til þess að innleiða árangursríka gæðastjórnun
31.1.2008
NÁMSKEIÐ 7. og 8. febrúar: Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 17799 - Lykilatriði og notkun
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 17799 og ISO/IEC 27001 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum.
7.1.2008
Breyting á reglugerð um raforkuvirki nr. 264/1971

Neytendastofa hefur vakið athygli á nýrri breytingu á reglugerð um raforkuvirki nr. 264/1971. Helstu breytingar eru þær að að kafli 2 Heiti og hugtök og kafli 3 Reglur um gerð, tilhögun og starfrækslu raforkuvirkja eru felldir niður. Þess í stað skulu háspennt raforkuvirki, háspenntar loftlínur, ásamt lágspenntum raforkuvirkjum (neysluveitum) og lágspenntum loftlínum uppfylla ákveðnar grunnkröfur sem tilgreindar eru í grein 1.10 í reglugerðinni, ásamt sérstökum öryggiskröfum sem tilgreindar eru í greinum 1.11, 1.12 og 1.13.
Fyrrgreind virki sem gerð eru samkvæmt íslenskum stöðlum og sérstökum öryggiskröfum, sem tilgreindar eru í greinum 1.11, 1.12 og 1.13 eru álitin uppfylla grunnkröfur, sbr. grein 1.10.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.




















