STAÐLAPÓSTURINN - rafrænt fréttabréf Staðlaráðs
18.1.2011
Staðlapósturinn - rafrænt fréttabréf Staðlaráðs
Staðlapósturinn 19. janúar 2012
Meðal efnis:
- Ný útgáfa ÍST 30 - Skýrari og auðveldari í notkun
- Alþjóðlegur staðall um matvælaöryggi á sveitabýlum
Staðlapósturinn 12. október 2011
Meðal efnis:
- Alþjóðlegi Staðladagurinn 14. október - Ávarp
- Verkefni um betra aðgengi að stöðlum
Staðlapósturinn 14. september 2011
Meðal efnis:
- ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - bók
- Staðall á íslensku um flokkun timburs
Staðlapósturinn 10. mars 2011
Meðal efnis:
- Rafbílar - Mikilvægur áfangi
- Námskeið um hagnýtingu rafrænna reikninga
Staðlapósturinn 17. janúar 2011
Meðal efnis:
- Útkoma íslenskra þjóðarviðauka við evrópska þolhönnunarstaðla
- Námskeið Staðaráðs á vorönn
- ÍST EN ISO 9004 Stjórnun sem miðar að viðvarandi árangri fyrirtækis - Gæðastjórnunarnálgun
7.9.2010
Stofnun tækninefndar um rafræna flutningakeðju 15. september
Boðað er til stofnfundar tækninefndar FUT um rafræna flutningakeðju miðvikudaginn 15. september kl. 14:00 – 15:30. Fundurinn fer fram hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2, Reykjavík
Hlutverk tækninefndarinnar
Meginhlutverk tækninefndar um rafræna flutningakeðju verður að þróa og móta tækniforskriftir og staðla fyrir rafræna miðlun upplýsinga á milli viðskiptaaðila og þjónustuaðila flutningskeðjunnar. Upplýsingarnar geta meðal annars varðað tollafgreiðslu vörunnar, innflutning hennar, afhendingu í og úr vöruhúsi, birgðabreytingar, afstemmingu birgða, staðsetningu vörunnar, ástand hennar og umhverfisaðstæður.
Jafnframt verður tekið mið af því starfi sem á sér stað hjá evrópskum og alþjóðlegum staðlasamtökum. Starfstími nefndarinnar er ótímabundinn, en hún setur sér nánari markmið, verkefna- og tímaáætlun í samræmi við það umboð sem henni er gefið.
17.5.2010
Íslenskt öskufall og alþjóðlegur staðall
Öskufallið frá gosinu í Eyjafjallajökli hefur raskað flugumferð í heiminum þannig að þess finnast engin fordæmi. 
Eldgos eru síður en svo óþekkt fyrirbrigði og því eru margir undrandi á hve flugið stendur berskjaldað gegn öskufallinu. Sú er að minnsta kosti skoðun Kevin W. Knight, en hann leiddi vinnu við gerð alþjóðlegs staðals um áhættustjórnun, sem kom út undir lok síðasta árs. Staðallinn heitir ISO 31000 Risk management -- Principles and guidelines, og er nú notaður til þess að bæta úr andvaraleysinu og meta hættuna sem flugrekstri í heiminum stafar af eldgosum og fleiri þáttum sem ef til vill hafa verið vanmetnir hingað til.
ISO 31000 fjallar almennt um áhættustjórnun, líkt og nafnið gefur til kynna, og nýtist þess vegna í hvers konar rekstri, en ekki aðeins í flugrekstri. Staðallinn er fáanlegur hjá Staðlaráði Íslands, eins og aðrir alþjóðlegir staðlar.
6.5.2010
Frumvöp að íslenskum þjóðarviðaukum
Frumvöp að íslenskum þjóðarviðaukum fyrir evrópska þolhönnunarstaðla hafa verið
auglýst til umsagnar. Umsagnarfrestur er til 1. ágúst.
Hægt er að kaup frumvörpin hér og nú í einu setti á 14.500 kr. Þeir sem það gera fá alla íslensku þjóðarviðaukana senda í einu hefti um leið og þeir hafa verið samþykktir sem íslenskir staðlar, á frekari greiðslu.
Settið með frumvörpunum má panta hér >>
Nánari upplýsingar veitir Arngrímur Blöndahl í síma 5207150, arngrimur@stadlar.is
9.4.2010
Fundur 13. apríl: Staðall um hljóðvist í íbúðar- og atvinnuhúsnæði
Þriðjudaginn 13. apríl kl. 12.00 – 13.00 verða kynnt drög að nýjum staðli um hljóðvist í íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Fundurinn verður haldinn í húsi verkfræðinga að Engjateigi 9.
- Jón Sigurjónsson, formaður Byggingarstaðlaráðs, kynnir vinnu hljóðvistarhóps Byggingarstaðlaráðs.
- Steindór Guðmundsson hjá Verkís fjallar almennt um væntanlegan staðal staðal og breytingar sem munu verða þegar staðallinn leysir af hólmi ÍST 45 Hljóðvist – Flokkun íbúðarhúsnæðis.
- Bergþóra Kristinsdóttir hjá Eflu kynnir dæmigerða kafla úr staðlinum.
- Sigurður Karlsson hjá Vinnueftirlitinu fjallar um hljóðísogsflokka fyrir atvinnuhúsnæði.
- Almennar umræður.
Nánari upplýsingar gefur Arngrímur Blöndahl í síma 5207150 eða netfangi arngrimur@stadlar.is
22.3.2010
Samlokufundur í Verkfræðingahúsi 24. mars kl. 12:00 - Íslenskir þjóðarviðaukar við evrópska þolhönnunarstaðla
Miðvikudaginn 24. mars kl. 12.00 – 13.30 verður haldinn hádegisfundur þar sem kynnt verða drög að íslenskum þjóðarviðaukum við evrópska þolhönnunarstaðla. Fundurinn verður haldinn í húsi verkfræðinga að Engjateigi 9.
Dagskrá fundarins:
1. Inngangur/ Jón Sigurjónsson formaður Byggingarstaðlaráðs
2. Kynning á vinnu einstakra hópa
- Álagshópur / Bjarni Bessason, prófessor við HÍ
- Efnishópur / Snæbjörn Kristjánsson hjá Ferli
- Grundun / Jón Skúli Indriðason hjá Eflu
- Brunamál / Benedikt Jónsson hjá Brunamálastofnun
- Brúarmál / Einar Hafliðason hjá Vegagerðinni
3. Almennar umræður
Frekari upplýsingar gefur Arngrímur Blöndahl í síma 5207150 eða netfangi arngrimur@stadlar.is
2.3.2010
STAÐALVÍSIR - Handbók um ÍST 200 Raflagnir bygginga
2.3.2010
Námskeið 4. mars: Tæknileg innleiðing rafrænna reikninga
24.2.2010
STAÐALVÍSIR - Handbók um ÍST 200 Raflagnir bygginga
9.2.2010
Námskeið um gæðaúttektir 18. febrúar
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Innri úttektir samkvæmt ISO
19011
Námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir samkvæmt staðli eða þurfa að þekkja hvernig innri úttektir ganga fyrir sig.
Nánari upplýsingar og skráning >>
9.2.2010
Þýddir alþjóðlegir staðlar með 25% afslætti - ISO 9001 með 30% afslætti
Auk þess að bjóða íslenska þýðingu ISO 9001:2008 með 30% kynningarafslætti hefur Staðlaráð ákveðið að bjóða valda þýdda alþjóðlega staðla með 25% afslætti. Þannig vill Staðlaráð koma til móts við viðskiptavini vegna mjög óhagstæðrar gengisþróunar undanfarna mánuði.
Eftirtaldir staðlar fást með 25% afslætti. ÍST EN ISO 9001 fæst með 30% afslætti:
7.1.2010
Tæknileg innleiðing rafrænna reikninga
Námskeið fyrir TÆKNIMENN sem annast útfærslu og innleiðingu á rafrænum reikningum.
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur öðlist skilning á uppbyggingu staðla fyrir rafræna reikninga og geti innleitt slíka reikninga samkvæmt tækniskýrslunni TS 135.
7.1.2010
Hagnýting rafrænna reikninga
Fyrir stjórendur sem vilja nýta hagræði af rafrænum reikningum.
MARKMIÐ námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á nýtingu staðlaðra rafrænna reikninga. Hvernig nota má rafræna reikninga til aukins hagræðis, draga úr kostnaði, auka skilvirkni við sendingu og móttöku og úrvinnslu reikninga í bókhaldi.
23.11.2009
Er ISO best falda stjórnunarleyndarmálið? - ISO stjórnunarstaðlar fyrir alla
Ráðstefna fimmtudag 26. nóvember á kl. 9-12 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur
Jafnt fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í gæðastjórnun og þá sem hafa nú þegar vottuð gæðakerfi.
Ráðstefnan er haldin í boði Stjórnvísi, Orkuveitunnar og Staðlaráðs.
2.11.2009
NÁMSKEIÐ 12. nóvember: ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði uppbygging og notkun
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.
2.11.2009
Stofnfundur um grunngerð vefþjónustu banka og sparisjóða
FAGSTAÐLARÁÐÍ UPPLÝSINGATÆKNI (FUT) boðar til stofnfundar tækninefndar föstudaginn 13. nóvember kl. 13:00 - 14:30 hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2, Reykjavík.
Megin hlutverk tækninefndar um sambankaskema verður að þróa og móta tækniforskriftir og staðla fyrir opið og staðlað umhverfi vefþjónustu banka og sparisjóða á Íslandi.
Vinsamlega tilkynnið um áhuga á þátttöku í starfi nefndarinnar og mætingu á stofnfundinn til Guðbjargar Björnsdóttur fyrir hádegi 11. nóvember. Þeir sem hyggja á þátttöku í nefndinni og ekki
eru þegar aðilar að Staðlaráði Íslands munu fá sendar upplýsingar um aðild og umsóknareyðublað.
Nánari upplýsingar er að finna í eftirfarandi skjali:
Stofnfundur - Fundarboð ( pdf, 59 kb )
9.10.2009
Lyklar að hraða og hagræðingu - Ráðstefna á Grand Hótel 14. október kl. 13 - 17
Skýrslutæknifélag Íslands og FUT, fagstaðlaráð Staðlaráðs í upplýsingatækni, efna til ráðstefnu á alþjóðlega staðladaginn um rafræn viðskiptaskjöl og tengda þjónustu. Fjallað verður um efnið frá ýmsum sjónarhornum og leitast við að svara eftirtöldum spurningum:
- Hvernig er rafrænn reikningur útbúinn?
- Hvaða þjónusta er í boði fyrir rafræn viðskiptaskjöl?
- Hver er ávinningur og hagur notenda?
- Hvað þurfa hugbúnaðarhús að hafa í huga?
9.10.2009
NÁMSKEIÐ 22. október: Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 27001 - Lykilatriði, uppbygging og notkun
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum.
9.10.2009
NÁMSKEIÐ 12. nóvember: ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði uppbygging og notkun
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.
3.9.2009
Drög að tækniforskrift - Athugasemdir óskast fyrir 7. september
Gerð hafa verið gerð drög að tækniforskrift fyrir einfaldan rafrænan reikning. Tækniforskriftin lýsir því hvernig setja á upp rafrænan reikning þannig að hann falli að skilgreiningum NES, Northern European Subset, umgjörð 4.
Tækniforskriftin var unnin af tækninefnd Staðlaráðs Íslands um grunngerð rafrænna viðskipta. Stefnt er að því að gefa drögin út sem tækniforskrift síðar í þessum mánuði með þeim breytingum sem þörf kann að verða á.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Björnsdóttir hjá Staðlaráði.
Athugasemdir við tækniforskriftina þurfa að berast Guðbjörgu fyrir kl. 11:00 mánudaginn 7. september.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.


















