Staðlamál
15.11.2011
Ný útgáfa ÍST 30 - Skýrari og auðveldari í notkun
Skýrari röðun efnis – auðveldari í notkun
Á haustdögum 2008 stofnaði stjórn BSTR vinnuhóp til að takast á við fimmtu endurskoðun ÍST 30. Vinnuhópurinn var skipaður fulltrúum þeirra sem mestra hagsmuna hafa að gæta við notkun hans, þ.e. verktaka, verkkaupa og ráðgjafa. Þrátt fyrir að efni ÍST 30 hafi staðist vel tímans tönn frá 1969, hefur margt breyst og aðferðir og vinnulag þróast. Orðalag og orðanotkun, sem í sumum tilvikum á uppruna sinn í fyrstu útgáfu staðalsins gáfu tilefni til uppfærslu og nokkur ný hugtök og aðferðir voru innleidd, hugtök og aðferðir sem ekki voru til staðar við fyrri útgáfu staðalsins. Í þessari nýju útgáfu er reynt að kveða skýrar á um ýmis ákvæði og samskipti kaupanda og seljanda verkframkvæmda, og samræma orðalag varðandi skyldur og réttindi þessara aðila. Eitt af meginmarkmiðunum er að staðallinn sé notaður óbreyttur í þessum samskiptum, en einnig skilgreint hvernig skuli fara með frávik frá honum. Sú breyting sem kannski vekur mesta eftirtekt er breytt uppröðun efnis. Efni staðalsins er nú sett fram í sex meginköflum sem er raðað í tímaröð eftir framvindu. Ástæðan fyrir þessari breytingu er fyrst og fremst sú að í eldri útgáfum er nokkuð um að fjallað sé um sömu eða keimlík atriði á fleiri en einum stað í staðlinum og taldi vinnuhópurinn að þessi nýja framsetning gerði hann auðveldari í notkun og skýrari.
Ég vil þakka samstarfsmönnum mínum í vinnuhópnum, þeim Ásgeiri Magnússyni, Sigurði B. Halldórssyni, Guðmundi Pálma Kristinssyni, Kolbeini Kolbeinssyni, Magnúsi Jónssyni, Óskari Valdimarssyni og Sigþóri Jóhannessyni fyrir samstarfið þessi þrjú ár sem við höfum unnið að þessu verkefni. Auk þess á Arngrímur Blöndahl, ritari vinnuhópsins, sérstakar þakkir skildar fyrir að halda utan um allar breytingar og koma þeim til skila í þessa nýju útgáfu.
Rögnvaldur Gunnarsson, forstöðumaður hjá Vegagerðinni.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













