Staðlamál
15.11.2011
Alþjóðlegir staðlar skapa traust um allan heim - Alþjóðlegi staðladagurinn 14. október
Alþjóðlegir staðlar vekja með okkur þetta traust á alþjóðlega vísu. Reyndar er eitt af höfuðmarkmiðum staðlastarfs að skapa traust. Kerfi, vörur og þjónusta virka eins og við ætlumst til vegna þeirra grundvallaratriða sem tilgreind eru í alþjóðlegum stöðlum.
Alþjóðlegir staðlar fyrir vörur og þjónustu ýta undir gæði, gott umhverfi, öryggi, áreiðanleika, samvirkni, skilvirkni og árangur. Þessu koma staðlar til leiðar á sama tíma og framleiðendur geta treyst því að ná inn á alþjóðlega markaði, vissir um að vörur þeirra virki um allan heim.
Samvirkni dregur úr framleiðslukostnaði og tryggir að notendur fái sömu þjónustu hvert sem þeir ferðast. Alþjóðlegir staðlar koma því öllum jafnt að gagni, neytendum, framleiðendum og þeim sem veita þjónustu. Þá er mikilvægt að í þróunarlöndum flýtir þetta fyrir dreifingu nýrrar vöru og þjónustu og örvar efnahagsþróun.
Alþjóðlegir staðlar skapa þetta traust vegna þess að þeir eru þróaðir í umhverfi sem er opið og gegnsætt, þar sem allir sem hagsmuna eiga að gæta geta lagt til málanna.
Það er yfirlýst markmið aðila WSC (World Standards Cooperation), IEC, ISO og ITU, að auðvelda og auka þetta traust á heimsvísu, með því að tengja heiminn saman með alþjóðlegum stöðlum.
Klaus Wucherer, forseti Alþjóða raftækniráðsins IEC.
Boris Aleshin, forseti Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO.
Hamadoun Touré, framkvæmdastjóri Alþjóðlegu fjarskipta-samtakanna ITU.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













