Staðlamál
25.2.2010
STAÐALVÍSIR - Handbók um staðalinn ÍST 200
Mikilvægar skilgreiningar
Það er mjög mikilvægt við lestur staðals að skilja textann rétt. Það verður ekki gert nema þekkja vel til skilgreininga tækniorða sem notuð eru í staðlinum. Því er mikilvægt að notendur kynni sér vel í upphafi allar skilgreiningar í öðrum kafla handbókarinnar. Augljóst dæmi um þetta eru t.d. hugtökin „bein snerting“ og „óbein snerting“. Þó við skiljum öll þessi orð þá þurfum við að lesa skilgreiningar þeirra til að átta okkur á hvað þessi hugtök þýða þegar þau koma fram í texta staðalsins.
Í handbókinni líkt og í staðlinum eru hlutar 4 „Varnaraðgerðir“ og 5 „Val og uppsetning rafbúnaðar“ lengstir og mikilvægastir enda mynda þessir hlutar kjarnann í regluverki um raflagnir bygginga.
Það er von þeirra er að þessari útgáfu standa að handbók þessi falli að þörfum íslenskra rafiðnaðarmanna um fræðslu um staðalinn ÍST 200. Útgáfa hans, niðurfelling reglugerðar um raforkuvirki nr. 264/1971 (bláa bókin) og útgáfa nýrrar reglugerðar um raforkuvirki, nr. 678/2009, er án efa mesta breyting sem hefur orðið í starfsumhverfi rafiðnaðarmanna á Íslandi hin síðari ár.
Ábendingar vel þegnar
Til að handbókin geti þróast og orðið enn betri í næstu útgáfu er mikilvægt að Staðlaráði verði sendar ábendingar um hugsanlegar villur eða ef þörf er á frekari skýringum eða nýjum efnisatriðum. Með samstilltu átaki notenda og útgefanda á því að geta byggst upp í handbók þessari mikilvæg þekking um gott og öruggt verklag við raflagnir bygginga.
Handbókin er þýdd og staðfærð útgáfa af norskri handbók um sama efni. Gunnar Ámundason rafmagnsverkfræðingur þýddi og staðfærði en honum til halds og trausts var ritnefnd skipuð Kjartani Gíslasyni frá Eflu verkfræðistofu, Ásbirni R. Jóhannessyni frá SART, Ólafi Sigurðssyni löggiltum rafverktaka ásamt undirrituðum.
Bókina má panta á vef Staðlaráðs, www.stadlar.is.
Magnús Kristbergsson rafmagnsverkfræðingur, Verkfræðistofu Jóhanns Indriðasonar.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













