Staðlamál
25.2.2010
Vottuð umhverfisstjórnunarkerfi - Útbreiðsla ISO 14001 vex stöðugt
ISO 14001 og hið opinbera
En það er ekki síður áhugavert að fylgjast með geysimikill útbreiðslu ISO 14001 á undanförnum misserum í opinberum rekstri, bæði hjá stofnunum, ráðuneytum og sveitarfélögum víða um heim. Sveitarfélög sem innleitt hafa umhverfisstjórnun samkvæmt ISO 14001 eru bæði stór og smá. Það sem skiptir mestu máli er að byrja með afmarkaða viðráðanlega einingu, setja upp kerfið, skipuleggja verklag og nauðsynlega fræðslu og nýta síðan reynsluna af innleiðingu á einu sviði á því næsta. Sveitarfélög sem innleitt hafa ISO 14001 eru víða umheim. Nefna má Sydney í Ástralíu, Álaborg í Danmörku, Toronto og Calgary í Kanada, Jesolo í Kína og Ligure á Ítalíu. Í Þýskalandi eru margir bæir og borgir sem komið hafa upp umhverfisstjórnun í samræmi við EMAS-reglugerðina, sem einnig er í gildi hér á landi og og inniheldur kröfur um umhverfisstjórnun samkvæmt ISO 14001. Dæmi um þýska bæi og borgir eru t.d. 6000 manna bær, Uhldingen-Mühlhofen, og stórborgin Hannover, með íbúatölu yfir hálfri milljón. Ráðuneyti hafa sömuleiðis komið á fót umhverfisstjórnun. Til dæmis eru umhverfis-, landbúnaðar-, sjávarútvegs- og skógarráðuneyti Japans með ISO 14001 vottun.
Í orði og á borði
Opinberir aðilar vinna í auknum mæli að vistvænum innkaupum og gera kröfur til sinna birgja og þjónustuaðila um góða umhverfisstjórnun. Í því sambandi þykir eðlilegt að þessir aðilar geri sömu kröfur til eigin rekstrar. Það er sömuleiðis mikilvægt að geta sýnt fram á að reksturinn sé í samræmi við lög og reglugerðir á sviði umhverfismála, að unnið sé skipulega í samræmi við stefnu til að ná skilgreindum markmiðum og bæta stöðugt umhverfislegan árangur í rekstrinum. Driffjöður fyrirtækja til innleiðingar umhverfisstjórnunar er einmitt sú sama og hjá opinberum aðilum, og skiptir þá miklu máli krafa birgja ofar í virðiskeðjunni um vistvæn innkaup. Þess má líka geta að mörg fyrirtæki og opinberir aðilar hafa komið á fót gæðastjórnun samkvæmt staðlinum ISO 9001. Umhverfisstjórnun í samræmi við ISO 14001 er þá eðlilegt skref í framhaldi af því, þar sem stjórnunin sem þessir staðlar lýsa er af sama tagi þótt viðfangsefnið sé annað.
Staðan á Íslandi
Ellefu fyrirtæki á Íslandi hafa komið á vottaðri umhverfisstjórnun í samræmi við ISO 14001. Það er lægra hlutfall miðað við höfðatölu en í nágrannalöndum okkar sem við gjarnan viljum bera okkur saman við. Hins vegar má nú finna fyrir mjög auknum áhuga á þessu sviði og munu nokkur fyrirtæki bætast í hóp vottaðra fyrirtækja á næstunni. Þau fyrirtæki sem þegar hafa tekið upp vottaða umhverfisstjórnun eru orkufyrirtækin Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun, álframleiðslufyrirtækið Rio Tinto Alcan og fyrirtæki í annarri framleiðslu eða þjónustu eins og Borgarplast, Árvakur, lyfjafyrirtækið Actavis, strætisvagnafyrirtækið Hagvagnar og hópbifreiðafyrirtækið Hópbílar sem og Toyota á Íslandi og verkfræðistofurnar Almenna verkfræðistofan og EFLA verkfræðistofa.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar vinnur að því að ná vottun og verður þá fyrsta sveitarfélagið sem kemur á slíkri umhverfisstjórnun hér á landi.
Fjárhagslegur ávinningur af 14001
Hagur af innleiðingu vottaðrar umhverfis-stjórnunar er bæði inn á við og út á við. Innri hagur felst í skilvirkara verklagi sem leiðir til sparnaðar, t.d. hráefnissparnaðar, orkusparnaðar og minni kostnaðar vegna sóunar eða mistaka. Hópbílar náðu t.d. töluverðum sparnaði í eldsneytisnotkun eftir að hafa þjálfað alla bílstjóra í vistakstri, notkun aksturstölva og með mjög markvissu viðhaldi véla. Einnig má benda á að fræðsla og þjálfun starfsmanna verður skilvirkari og samskipti sömuleiðis. Starfsmönnum opnast leiðir til að leggja fram tillögur að umbótum og allt umbótastarf verður markvissara. Slíkt hefur jákvæð áhrif á starfsandann. Ytri hagur fyrirtækja af umhverfisstjórnun felst m.a. í bættri ímynd og möguleikum á betri árangri í útboðum og verkefnaöflun sem aftur gefur möguleika á meiri hagnaði. Í nýlegu útboði Reykjavíkurborgar á ræstiþjónustu var til dæmis horft til þess hvort bjóðendur hefðu komið á fót umhverfisstjórnun.
Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri hjá EFLU verkfræðistofu.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












