Beint á leiðarkerfi vefsins

Staðlamál

12.10.2009

Helstu verkefni Byggingarstaðlaráðs BSTR

Verkefnin
Vinnuhóparnir samanstanda af ráðgjafa-verkfræðingum, verkfræðingum úr háskólasamfélaginu og fleirum sem hagsmuni hafa af  staðlastarfi. Umrædd verkefni eru þessi:

  • Gerð þjóðarviðauka við evrópska þolhönnunarstaðlana, svokallaða „Eurocodes“
    Vinna við þjóðarviðaukana er umfangs-mesta verkefni Byggingarstaðlaráðs sem stendur. Um er að ræða 58 staðla sem þarf að fara yfir og aðlaga séríslenskum aðstæðum, svo sem varðandi jarðveg, efnisval og meðhöndlun, vindálag, snjóálag og jarðskjálftaálag.

  • Staðall fyrir hljóðvist í atvinnuhúsnæði 
    Við gerð staðalsins er höfð hliðsjón af norrænum stöðlum. 

  •  Íslensk þýðing á staðlinum ÍST 45 Hljóðvist – Flokkun íbúðarhúsnæðis

  • Endurskoðun staðalsins ÍST 30 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir
    Núverandi staðall er fimmta útgáfa frá árinu 2003. ÍST 30 hefur unnið sér fastan sess í íslenskum verkframkvæmdum og því afar mikilvægt að fylgjast með og endurskoða efni staðalsins með tilliti til þróunar markaðarins. Sem dæmi um þætti sem komið hafa til álita við endurskoðunina í þetta sinn má nefna rafrænt útboðsumhverfi, öryggismál á framkvæmdastað, ábyrgðamál, gagn-kvæm réttindi verktaka og verkkaupa.

  • Gerð fylgistaðals við ÍST EN 206-1 Steinsteypa – 1. hluti: Tæknilýsing, eiginleikar, framleiðsla og samræmi
    Fylgiskjalið mun fjalla um endingarhönnun steinsteypu miðað við íslenskar aðstæður.

  • Gerð staðals um samræmda skráningu herbergja í íbúðarhúsnæði
    Staðlinum er ætlað að kveða á um hvernig talningu og skráningu herbergja í íbúðum skuli háttað. Fyrirhugað er að nota staðalinn við opinbera skráningu, upplýsingagjöf og í viðskiptum með íbúðarhúsnæði.

  • Gerð staðals um skráningu hæða í byggingum
    Notast á við staðalinn þegar lýst er fjölda hæða í byggingum, við hönnun þeirra, skráningu, deiliskipulagsgerð og til ákvörðunar um brunavarnir og lyftuþörf.

Nánari upplýsingar veitir Arngrímur Blöndahl hjá Staðlaráði.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Staðlamál - fréttir