Beint á leiðarkerfi vefsins

Staðlamál

15.10.2007

ÍST 120 - Íslenskur staðall um landupplýsingar

Mikill fjárhagslegur sparnaður
Staðalinn er ætlaður til notkunar við flokkun landupplýsinga og skráningu, og þegar höfð eru samskipti með gögn sem staðallinn tekur til. Fitjuskrá inniheldur skilgreiningar og lýsingar á fyrirbærum eða hlutum og eiginleikum þeirra. Stór hluti landupplýsingagagna er notaður af opinberum aðilum eða í verkefnum sem tengjast opinberum aðilum, og mikill fjárhagslegur sparnaður er af skýrum reglum um skráningu og samskipti með landupplýsingar. Að sama skapi er brýn þörf á stöðlum á þessu sviði.

Byggir á alþjóðlegum kröfum
Auk þess að auka aðgengi að landfræðilegum upplýsingum er nýja staðlinum ætlað að tryggja eftirfarandi:

  • Öruggari og nákvæmari skráningu landupplýsinga 
  • Samræmda skráningu fitjutegunda og eiginda í landupplýsingakerfum 
  • Skýrar skilgreiningar á fitjutegundum 
  • Að eigindir verði einungis skráðar á einn hátt og á einum stað í flokkunarkerfinu
  • Auðveldara viðhald „fitjuskráa” í landupplýsingakerfum 
  • Að nýskráningar verði einfaldar og möguleikar ótakmarkaðir

ÍST 120 er byggður á kröfum staðalsins ÍST EN ISO 19110:2006 Methodology for feature cataloguing, en sá staðall er alþjóðlegur að uppruna og hefur verið gerður að íslenskum staðli. Staðallinn er úr röð tæknistaðla sem unnir eru af tækninefndinni ISO TC 211, en sú nefnd starfar á vegum Alþjóðlegu staðlasamtakanna, ISO, á sviði landupplýsinga. Landmælingar Íslands hafa unnið að aukinni notkun þessara staðla hér á landi í samvinnu við hagsmunaaðila og Staðlaráð Íslands.

Námskeið um notkun ÍST 120
Áætlað er að halda námskeið á næstunni um skráningu gagna eftir reglum staðalsins. Námskeiðið verður haldið í samvinnu Landmælinga Íslands og LÍSU, Samtaka um landupplýsingar á Íslandi.
Umsjón með gerð staðalsins er hjá Landmælingum Íslands en verkefnið var unnið í samvinnu við LÍSU-samtökin og ýmsar stofnanir og fyrirtæki sem hagsmuna eiga að gæta hvað varðar stöðlun á skráningu landupplýsinga. Staðlaráð Íslands sá um útgáfu staðalsins og sér um dreifingu og sölu.

Anna Guðrún Ahlbrecht, gæðastjóri hjá Landmælingum Íslands.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Staðlamál - fréttir