Staðlamál
15.10.2007
Reynslusaga - Blóðbankinn og ISO 9001
Sparnaður og umbætur
Breska vottunarstofan BSI var fengin til að votta gæðakerfið og kemur aðili frá þeim tvisvar á ári og tekur út kerfið. Úttektarmenn frá BSI hafa alltaf komið með verðmætar athugsemdir um hluti sem betur mættu fara og þannig sparað okkur bæði vinnu og peninga. Vottunin hefur verið innleidd í áföngum; fyrst var blóðtaka og blóðhlutavinnsla vottuð, þá var afgreiðslu blóðhluta bætt við og nú síðast eigin stofnfrumuvinnsla.
Gæðakerfi Blóðbankans hefur auðveldað móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna. Framleiðsla er meira stöðluð en áður og niðurstöður gæðaeftirlits, ábendingar, frávik og athugasemdir úr innri úttektum notaðar með markvissari hætti til umbóta. Þannig hefur dregið úr förgun og kostnaði henni samfara. Því má segja að uppsetning gæðakerfis Blóðbankans hafi haft í för með sér sparnað í ríkisrekstri. Með aukinni færni starfsmanna hefur nú skapast sá möguleiki að einfalda uppbyggingu gæðahandbókar Blóðbankans og gera hana markvissari og auðlesnari.
Betur búinn undir að mæta reglugerðarkröfum
Á síðustu árum hafa kröfur til blóðbankaþjónustu verið settar fram með formlegum hætti með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2002/98/EB um setningu gæða- og öryggisstaðla fyrir söfnun, prófun, vinnslu og dreifingu blóðs og blóðhluta úr mönnum. Þetta er gert til að staðla blóðbankaþjónustu innan Evrópu og tryggja þannig öryggi blóðgjafa og blóðþega, tryggja gæði blóðhluta og koma í veg fyrir að smit berist með blóðinngjöf. Þessi tilskipun hefur nú verið innleidd á Íslandi með lagabreytingum og setningu reglugerðar. Margar af almennu kröfunum í reglugerðinni eru sambærilegar þeim sem fram koma í ISO 9001 staðlinum, svo sem um skjala- og skráarhald, rekjanleika, skráningu og eftirfylgni frávika. Blóðbankinn hefur einnig fylgt leiðbeiningum sem Evrópuráðið hefur gefið út árlega þar sem fjallað er m.a. um val á blóðgjöfum, innihald blóðhluta og nauðsynlegar prófanir. Blóðbankinn var því vel undir það búinn að mæta þeim kröfum sem gerðar voru af heilbrigðisyfirvöldum í reglugerðinni. Samkvæmt reglugerðinni er nú rekin ein blóðbankaþjónusta á landsvísu. Starfsstöðvar eru þrjár, í Reykjavík, á Akureyri og einnig blóðbankabíll sem notaður er til blóðsöfnunar um allt land. Innleiðing á gæðakerfi Blóðbankans fer nú fram á Akureyri.
Áherslur ISO 9001:2000 þar sem viðskiptavinurinn er settur í forgang hafa reynst Blóðbankanum vel við að auka tryggð blóðgjafa, en án öflugs hóps blóðgjafa getur Blóðbankinn ekki starfað.
Ína Björg Hjálmarsdóttir, gæðastjóri Blóðbankans.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













