Staðlamál
15.10.2007
Afmælisbarnið - ISO 9001 tvítugur
Sigurganga
Fyrsta íslenska útgáfa alþjóðlega staðalsins ISO 9001 var staðfest árið 1991. Önnur útgáfa var staðfest sem íslenskur staðall árið 1994 og núverandi útgáfa árið 2001. Á heimsvísu er saga ISO 9000-gæðastjórnunarstaðlanna samfelld sigurganga. Þeir eru langþekktastir þeirra staðla sem Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO hafa gefið út. Fyrirtæki með vottuð gæðakerfi samkvæmt ISO 9001 eru í yfir 160 löndum og heildarfjöldi vottaðra gæðakerfa slagar hátt í 800 þúsund. Frá byrjun árs 2004 til loka ársins 2005 óx fjöldi vottaðra gæðakerfa í heiminum um 116476. Velgengnin er langt umfram það sem nokkur lét sig dreyma um fyrir 20 árum. Í könnun Alþjóðlegu staðlasamtakanna kemur fram að á Íslandi voru í árslok 2005 samtals 43 vottuð gæðakerfi samkvæmt ISO 9001. Vottuð gæðakerfi eru hvað algengust meðal þeirra ríkja sem mest kveður að á heimsmarkaði og þeirra sem sækja þar fram með mestum hraða.
Fyrir öll fyrirtæki
Notkun ISO 9001 er ekki bundin við neina eina atvinnugrein, og fyrirtækin geta verið bæði stór og smá. Staðlinum er beitt jafnt í opinberum stofnunum og einkareknum fyrirtækjum; í menntastofnunum, á sjúkrastofnunum, í þjónustufyrirtækjum, í rekstri sveitarfélaga, fjármálafyrirtækjum, hugbúnaðarfyrirtækjum, framleiðslufyrirtækjum. Gríðarleg útbreiðsla vottaðra gæðakerfa er til marks um hve vel hefur tekist til með gæðastjórnunarstaðalinn ÍST EN ISO 9001 Gæðastjórnunarkerfi - kröfur.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













