Staðlamál
4.5.2007
Kynjastaðall - Staðall til að uppræta kynbundið launamisrétti
Gegn vanahugsun
Í staðlinum er að finna leiðbeiningar sem vinnuveitendur geta fylgt skref fyrir skref þegar þeir leggja mat á störf starfsmanna sinna. Gefin eru góð ráð í sambandi við skipulagningu og undirbúning starfsmats og höfuðáhersla er lögð á að matsferlið sé gagnsætt og sanngjarnt með tilliti til beggja kynja. Auk þess eru í staðlinum leiðbeiningar um innri úttektir, en innri úttektir eru aðferð til að meta hvernig til hafi tekist við starfsmatið, hvort það í raun skili því sem að var stefnt.
Formaður tækninefndarinnar sem sá um gerð staðalsins, frú Philippa Hall, bendir á að launamunur kynjanna stafi ekki af því að vinnuveitendur ætli sér að mismuna fólki eftir kyni. Mismunun eigi sér rætur í fordómum og vanahugsun um þætti eins og ábyrgð, hæfni og kröfur sem taldar eru tengjast tilteknum störfum. „Til dæmis má nefna störf þar sem konur eru fjölmennar, störf sem krefjast sömu hæfni og heimilisstörf; að elda mat, þrífa og annast um börn. Litið er á hæfni til slíks sem „náttúrulega” fremur en að hún hafi verið lærð - og þar með eru störfin vanmetin,” segir frú Philippa Hall. David Shannon, sérfræðingur í starfsmati, segir staðalinn fela í sér bestu aðferðir sem tíðkaðar eru við mat á störfum í fyrirtækjum.
Íslenskur staðall?
Á Nýja-Sjálandi er tímakaup kvenna að meðaltali 85,3% af tímakaupi karla. Á Íslandi er óútskýrður launamunur karla og kvenna um 15%, körlum í hag. Það er spurning hvort íslensk samtök sem berjast fyrir jafnrétti kynjanna hafi áhuga á íslenskum staðli sem mætti nota til þess að vinna gegn kynbundnum launamun á kerfisbundinn hátt.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













