Beint á leiðarkerfi vefsins

Staðlamál

5.2.2007

Lýsing á vegum - CEN/TR 13201-1: Val á lýsingarflokkum

Vegaframkvæmdir og lýsing
Einn þáttur vegakerfisins er lýsing veganna. Ákvörðun um það hvort vegur skuli lýstur er tekin á grundvelli umferðarþunga og ýmissa umhverfisaðstæðna. Grundvöllinn fyrir hönnun lýsingarkerfisins er að finna í áðurnefndri tækniskýrslu, CEN TR 13201-1:2003 Road lighting - Part 1: Selection of lighting classes. Við það bætast þrír staðlar: ÍST EN 13201-2:2003: Lýsingarkröfur, ÍST EN  13201-3:2003: Útreikningar og ÍST EN 13201-4:2003: Mælingar.

Lýsingarflokkar
Í tækniskýrslunni er að finna eftirfarandi heiti og skilgreiningar sem öll hafa áhrif á val lýsingarflokka:
Flokkur notenda • Hægfara ökutæki • Vélvædd umferð • Hjólreiðafólk • Fótgangendur • Einkennandi hraði aðalnotanda • Athugunarsvæði • Árekstra-svæði • Mislæg vegamót • Jafnlæg vega-mót • Umferðarflæði ökutækja • Meðalumferð á dag • Vandastig stjórnanda ökutækis • Afbrotahætta • Truflanir í sjónsviði • Ljómastig umhverfisins • Ríkjandi veðurfar.
Auk þess er í skýrslunni gerð grein fyrir kröfum vegna glýju, svo og kröfum til litendurgjafar, sjónleiðingar og orkunotkunar. Einnig eru settar fram reglur til að bera saman lýsingu svæða og samræmingu á lýsingu aðliggjandi svæða. Í tækniskýrslunni er skýrt tekið fram að hana ber ekki að nota til ákvörðunar um hvort vegur skuli lýstur eða ekki. Sé hins vegar ákveðið að lýsa veg, má fylgja þeim reglum sem settar eru fram í tækniskýrslunni og gildandi stöðlum að auki. Með því er best stuðlað að vandaðri lýsingu.

Ljóstæknifélag og Staðlaráð
Á undanförnum árum hefur Ljóstæknifélag Íslands (LFÍ) gefið út nokkur ný rit um lýsingu. Þeim er ætlað að bæta úr þörf fyrir íslensk fræðslurit um lýsingu, svo og um hönnun lýsingarkerfa með tilvísun í gildandi staðla.

Ritið Götu- og veglýsing er eitt þessara rita. Endurprentun þess er nú í undirbúningi, með viðbótarefni um ljósastólpa og annan vegbúnað. Ekki er um staðal að ræða, heldur reglur settar fram með stoð í stöðlum.

Ljóst var frá upphafi að í ritið vantaði kafla um vegbúnað til að í því fælist tæmandi grundvöllur fyrir hönnun. Vegbúnaður, svo sem stólpar, vegrið og skilti, hefur mjög verið til umfjöllunar hjá þeim sem fást við öryggismál í umferð. Til að gæta allra öryggissjónarmiða þótti sýnt að ekki væri nóg að fjalla um gerð og frágang ljósastólpa, heldur yrði einnig að gera öðrum vegbúnaði skil.
Það er ánægjulegt að gott samstarf hefur tekist með Staðlaráði Íslands og LFÍ um þetta mál. Til fróðleiks um samstarf þessara aðila á undanförnum árum er rétt að nefna útgáfu LFÍ á eftirtöldum ritum:

  • Götu- og veglýsing (með Gatnamálastofu, Vegagerðinni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga - 2004)
  • Neyðarlýsing (með Brunamálastofnun - 2004)
  • Ljós og rými (ásamt birtutöflu) (með Vinnueftirlitinu og Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins - 2005)
  • Góð lýsing í skólum (með Menntamálaráðuneytinu - 2006)
  • Ljóstvistar (LED)  (2006)

Í öllum þessum ritum er viðeigandi staðla sérstaklega getið.

Mikill fengur er að ritunum fyrir viðkomandi aðila varðandi gæði lýsingarinnar, svo og framkvæmdir, viðhald og rekstur lýsingarkerfanna. Þau eru einnig gagnleg fyrir verkfræðistofur að því er tekur til hönnunar og útboðsskilmála.

Greinarhöfundar þakka samstarfið við Staðlaráð, framkvæmdastjóra þess og starfsfólk, sem hefur verið með miklum ágætum. Gott samstarf allra aðila, sem ábyrgð bera á umferðaröryggi í landinu, er forsenda þess að góður árangur náist.

Aðalsteinn Guðjohnsen, fyrrverandi rafmagnsstjóri
Egill Skúli Ingibergsson, verkfræðingur.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Staðlamál - fréttir