Staðlamál
5.2.2007
Upplýsingaveita um CE-merkingar á byggingavörum - www.si.is/ce
Skref fyrir skref
Hér er á ferðinni gagnlegur gátlisti sem í rökréttri röð inniheldur upplýsingar og staðreyndir sem eru til þess fallnar að veita framleiðendum og birgjum djúpan skilning á efninu með stuðningi raunverulegra dæma. Þetta er gátlisti skref fyrir skref sem hefst á fróðleik og staðreyndum og endar á faglegum upplýsingum og leiðbeiningum.
Leitast er við að láta hvert skref innihalda upplýsingar og dæmi sem auðvelda framleiðendum/birgjum að átta sig á hvaða kröfur eru gerðar til tiltekinnar vöru til að þeir geti tekið réttar ákvarðanir út frá eigin forsendum. Markmiðið er að smám saman öðlist framleiðendur/birgjar nægilega þekkingu til að geta unnið sem best og réttast að því að CE-merkja framleiðslu sína.
Ferdinand Hansen, verkefnastjóri hjá Samtökum iðnaðarins.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













