Staðlamál
14.10.2004
ISO inn á nýtt svið - Samfélagsábyrgð fyrirtækja
Samfélagsábyrgð
Ákvörðun ISO um gerð staðalsins var tekin á ráðstefnu í Svíþjóð síðastliðið sumar. Þar voru saman komin yfir 300 manns frá öllum heimshornum; fulltrúar fyrirtækja og vinnumarkaðar, frjálsra félagasamtaka, neytendasamtaka og opinberra aðila. Í lok september var svo valin stjórn vinnuhóps sem ætlað er að stýra vinnu við gerð frumvarps að staðlinum. Þeir sem fara fyrir vinnuhópnum eru fulltrúar Brasilíu og Svíþjóðar. Lögð verður áhersla á að tryggja þátt þróunarlanda við gerð staðalsins, enda eru þau 110 af þeim 140 ríkjum sem eiga aðild að ISO.Í skýrslu ráðgjafahóps á vegum samtakanna er ítarlega rætt um hvað felst í samfélagsábyrgð fyrirtækis og saga hugtaksins rakin. Til að gefa hugmynd um það í mjög stuttu máli má vitna til fyrirlesturs sem Thomas Bergmark hjá IKEA hélt á fyrrnefndri ráðstefnu. Um 76.000 manns vinna í tengslum við fyrirtækið, verslanir IKEA eru 165 í 22 löndum, 32 verksmiðjur eru starfræktar í 9 löndum og 27 dreifingarmiðstöðvar í 16 löndum. Birgjar fyrirtækisins eru 1600 í 55 löndum. IKEA leggur metnað í að fylgja settum lögum og reglum í öllum þessum löndum, að sjálfsögðu, en lætur ekki þar við sitja. Bergmark nefnir fjölmörg svið sem snerta samfélagsábyrgð fyrirtækisins er meta þarf á sjálfstæðan og skipulegan hátt, vilji fyrirtækið axla ábyrgð sína. Þar koma til álita vinna barna, félagafrelsi, þrælahald, hvers kyns mismunun, öryggi á vinnustað og vinnuaðstaða, refsingar fyrir agabrot, laun og vinnutími, umhverfisáhrif starfseminnar og svo mætti áfram telja.Væntanlegum staðli er ekki ætlað að koma í stað laga þjóðríkja og alþjóðlegra sáttmála sem snerta þessi efni. Hugmyndin er að leggja fyrirtækjum í hendur verkfæri til að uppfylla slík lög og sáttmála ? og ganga lengra af fúsum og frjálsum vilja. Í orðsendingu til Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO segir Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, að þetta framtak falli afar vel að sáttmálum samtakanna um mannréttindi, vinnumarkaðsmál, umhverfismál og aðgerðir gegn spillingu.
Nánari upplýsingar um samfélagsábyrgð
fyrirtækja og undirbúning væntanlegs staðals er að finna á vefslóðinni: http://www.iso.org/iso/en/info/Conferences/SRConference/home.htm. Sérstaklega má benda á ítarlega og fróðlega skýrslu ráðgjafahópsins.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













