Staðlamál
14.10.2004
Faggildingar krafist - Aðalskoðun leiksvæða og leikvallatækja
Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að eftir 1. janúar á næsta ári megi þeir einir framkvæma aðalskoðun leiksvæða sem hlotið hafa til þess faggildingu. Við framkvæmd slíkrar skoðunar koma leikvallastaðlar mjög við sögu. Leikvallastaðlarnir eru að sjálfsögðu nauðsynlegir fyrir þá sem ætla að verða sér út um faggildingu fyrir aðalskoðun leikvalla, en einnig ómissandi fyrir byggingarfulltrúa sveitarfélaga, verktaka, stjórnendur grunnskóla og leikskóla og aðra sem koma að hönnun, uppsetningu, prófunum eða viðhaldi og rekstri leiksvæða eða leiktækja. Í ritinu er að finna staðla úr ÍST EN 1176 röðinni Leikvallatæki að viðbættum ÍST EN 1177 ? Yfirborðsefni á leiksvæðum, öryggiskröfur og aðferðir við prófun.
Leikvallastaðlarnir
Í ritinu Leikvallastöðlum er að finna eftirtalda íslenska staðla:
- ÍST EN 1176-1:1998 Leikvallatæki. Hluti 1: Almennar öryggiskröfur og prófunaraðferðir
- ÍST EN 1176-2:1998 Leikvallatæki. Hluti 2: Rólur, sérkröfur um öryggi og prófunaraðferðir
- ÍST EN 1176-3:1998 Leikvallatæki. Hluti 3: Rennibrautir, sérkröfur um öryggi og prófunaraðferðir
- ÍST EN 1176-4:1998 Leikvallatæki. Hluti 4: Hlaupakettir, sérkröfur um öryggi og prófunaraðferðir
- ÍST EN 1176-5:1998 Leikvallatæki. Hluti 5: Hringekjur, sérkröfur um prófunaraðferðir
- ÍST EN 1176-6:1998 Leikvallatæki. Hluti 6: Rugguhestar, sérkröfur um prófunaraðferðir
- ÍST EN 1176-7:1997 Leikvallatæki. Hluti 7: Leiðbeiningar um uppsetningu, eftirlit,viðhald og rekstur
ÍST EN 1177:1997 ? Yfirborðsefni á leiksvæðum, öryggiskröfur og aðferðir við prófun
Ritið Leikvallastaðla má panta á vefnum www.stadlar.is, undir ?Bækur og upplýsingarit?. Þar má einnig panta ritið Markastaðla, sem inniheldur staðla um fótboltamörk, handboltamörk, hokkímörk og körfuboltaspjöld.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













