Beint á leiðarkerfi vefsins

Staðlamál

15.1.2002

SARÍS Samráð um rafrænt Íslands

Þessi samtök eru Skýrslutæknifélag Íslands, EAN á Íslandi, ICEPRO, nefnd um rafræn viðskipti og Staðlaráð Íslands/FUT.

Meginmarkmið með stofnun SARÍS er að koma Íslandi í fremstu röð meðal þjóða sem hagnýta sér rafræn viðskipti, hvort sem litið er til almennings, atvinnulífs eða stjórnsýslu. Að efla samstarf um stöðlun og samræmingu í rafrænum viðskiptum, miðla upplýsingum um stöðu þeirra og þróun, stuðla að raunhæfum viðhorfum til rafrænna viðskipta meðal fyrirtækja og stofnana, hvetja og virkja hagsmunanaðila til þátttöku og koma í framkvæmd verkefnum sem sinna þarf til að rafræn viðskipti dafni á Íslandi

Þessi atburður fer fram á 14. hæð í Húsi Verslunarinnar, Kringlunni 7, kl. 14:00 og er öllum opinn.

Dagskrá fundarins:

  • Fundarstjóri, Rúnar Már Sverrisson, formaður SARÍS, setur fundinn.
  • Karl F. Garðarsson, formaður ICEPRO, flytur inngang um tilurð og markmið SARÍS og þá þýðingu sem markviss innleiðing rafrænna viðskipta hefur fyrir almenning, atvinnulíf og stjórnsýslu.
  • Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, ávarpar samkomuna.Undirritun samkomulagsins af formönnum aðildarsamtakanna.
  • Guðbjörg Sigurðardóttir, formaður verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið, segir frá verkefnum stjórnvalda á sviði
    upplýsingatækni.
  • Agnar Hansson, deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík ræðir strauma og stefnur í menntun á sviði rafvænna viðskipta.
  • Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður og framkvæmdastjóri Verslunarráðs, gefur innsýn inn í þróun nútíma verslunarhátta og þau tækifæri sem versluninni bjóðast með stöðlun og rafvæðingu viðskipta.
  •  Spurningar og svör
  • Fundarstjóri flytur stutta samantekt og slítur fundi.

    Nánari upplýsingar á SARÍS.IS

Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Staðlamál - fréttir