Beint á leiðarkerfi vefsins

Staðlamál

26.10.2005

Alþjóðlegi Staðladagurinn 14. október - Staðlar fyrir öruggari heim

Nýja aðferðin 20 ára - Einn markaður margir staðlar (26.10.2005)

Nýja aðferðin

Ráðherraráð Efnahagsbandalagsins samþykkti „Nýju aðferðina” árið 1985. Tilgangurinn var að einfalda setningu tæknilegra reglna og flýta því að innri markaðurinn yrði að veruleika. Nýja aðferðin byggist á eftirfarandi grundvallaratriðum:

a) Á þeim sviðum sem mismunandi reglugerðir, sem varða heilsu og öryggi borgara og neytenda, umhverfisvernd eða aðra almannahagsmuni, valda tæknilegum viðskiptahindrunum, takmarkast samræming lagareglna við setningu tilskipana sem innihalda nauðsynlegar grunnkröfur. Vörur sem uppfylla grunnkröfurnar má setja á markað hvar sem er innan bandalagsins.
<!--[endif]-->

b) Evrópskum staðlasamtökum er falið að semja samræmda staðla þar sem grunnkröfurnar eru nánar útfærðar með tæknilegum lýsingum fyrir viðkomandi vöru eða vöruflokk. Samræmdir staðlar eru evrópskir staðlar sem samdir eru samkvæmt stöðlunarbeiðni sem framkvæmdastjórn bandalagsins sendir evrópsku staðlasamtökunum, í samræmi við þær reglur sem staðlasamtökin hafa sett sér. Staðlarnir eru innleiddir sem landsstaðlar í öllum aðildarlöndum samtakanna.
<!--[endif]-->

c) Staðlarnir eru valfrjálsir; notkun þeirra er ekki skyldubundin. Framleiðendur geta

uppfyllt grunnkröfurnar á annan hátt en með því að fara eftir stöðlum. Notkun samræmdra staðla er því ekki eina leiðin til að uppfylla grunnkröfurnar, en vissulega sú einfaldasta.
<!--[endif]-->

d) Stjórnvöld í aðildarríkjunum bera ábyrgð á að framfylgja grunnkröfum tilskipana.

Þau verða að viðurkenna að vörur sem uppfylla viðeigandi samræmda staðla uppfylli grunnkröfurnar og mega þá ekki hindra að slíkar vörur séu settar á markað. Tilvísanir í samræmda staðla eru birtar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (sem viðauki við viðkomandi tilskipun).

Tilskipanirnar

Alls hafa nú, haustið 2005, verið samþykktar 22 tilskipanir sem byggja á nýju aðferðinni. Á fyrstu 10 árum nýju aðferðarinnar voru samþykktar 16 tilskipanir í anda hennar, en frá 1995 hafa einungis verið samþykktar 6 nýjar nýaðferðartilskipanir. fiessar tilskipanir fjalla um svo ólíka hluti sem leikföng, lækningatæki, vélar, gastæki, mælitæki og skemmtibáta, svo nokkur dæmi séu nefnd. Staðlarnir sem samdir hafa verið, eða semja þarf, til að styðja við þessar tilskipanir og útfæra kröfur þeirra nánar eru, fyrir hverja -tilskipun, allt frá einum (tilskipun um ósjálfvirkar vogir) upp í um fimmtán hundruð (tilskipun um byggingarvörur). Samtals voru útgefnir samræmdir staðlar orðnir 2872 vorið 2005.

Ísland getur haft áhrif

  Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið gerðist Ísland aðili að innri markaðinum. Við það óx enn þörfin fyrir þátttökulandsins í evrópskri stöðlunarvinnu. Fyrsti Evrópustaðallinn var staðfestur sem íslenskur staðall árið 1988, en nú, 17 árum síðar, eru vel á 19. þúsund Evrópustaðlar í gildi sem íslenskir staðlar. Reyndar er það mikill minnihluti þessara staðla (um 16 %) sem styður við tilskipanir Nýju aðferðarinnar, en Evrópustaðlar skipta líka miklu máli fyrir innri markaðinn á mörgum öðrum sviðum.

Með aðild sinni að evrópsku staðlasamtökunum getur Staðlaráð veitt íslenskum hagsmunaaðilum beinan aðgang að þátttöku í evrópskri reglusetningu. Í umræðum um Evrópumál hérlendis hefur verið bent á að Ísland hafi mjög takmörkuð áhrif á lög og reglugerðir sem lögleidd eru á Íslandi vegna EES-samningsins. Á þeim sviðum þar sem löggjöf ESB styðst við Evrópustaðla – og Evrópusambandið hefur fullan hug á að fjölga þeim sviðum – eiga íslenskir hagsmunaaðilar hins vegar alveg sömu möguleika á að hafa áhrif á innihald staðlanna, og þar með á nánari útfærslu lagatexta ESB, eins og hagsmunaaðilar í aðildarlöndum ESB. Þetta er staðreynd sem full ástæða er til að benda á, sérstaklega þeim sem hafa áhyggjur af stöðu Íslands utan Evrópusambandsins.
<!--[if !supportLineBreakNewLine]-->
Guðrún Rögnvaldardóttir, framkvæmdastjóri Staðalráðs Íslands .


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Staðlamál - fréttir